19. júní


19. júní - 19.06.1959, Page 37

19. júní - 19.06.1959, Page 37
baksneyzlu sinni af Grikkjum, væri tóbaksfram- leiðslunni borgið. Olívurækt er einnig mikil og olívuolía aðalútflutningsvaran. Vínberin eru sér- lega góð, smá og kjarnalaus. Gömul menning og ný. Ég minntist áður á, að Parthenon væri það fyrsta, sem sæist, þegar komið er til Aþenu, og auðvitað varð mér tíðförult þangað. En á Akro- pólishæð er fjöldinn allur af gömlum hofum og öðrum byggingum. Er grátlegt að hugsa til þess, að þessi mikla og fagra marmarahöll, sem þó hafði orðið fyrir skemmdum af Tyrkjum og öðrum, skyldi vera lögð í hálfgerða rúst nú á seinni öld- um. En það gerðist árið 1687, þegar Tyrkir og ítalir börðust um yfirráð i Aþenu. Tyrkir notuðu musterið fyrir púðurgeymslu, og þegar sprengja frá Itölum féll á það, var auðvitað ekki að sökum að spyrja. Þó er það enn í dag eitt af furðuverk- um veraldar. örskammt er frá Akrópólis til Aresarhæðar, þar sem sagt er, að Páll postuli hafi boðað Grikkjum kristni. Þaðan sér yfir gamla markaðstorgið, þar sem Sókrates reikaði um með lærisveinum sínum. Ég treysti mér ekki til að lýsa þeim tilfinningum, sem gripu mig á þessum stað, þar sem sagan eins og rís lifandi allt í kring. Og ekki má gleyma Heródesar Attícusar-leik- húsinu, sem reist var á annarri öld eftir Krist. Af því stendur ekki annað eftir en leifar af fram- hliðinni og svo sætaraðirnar, byggðar í hálfhring og rúma 5000 áhorfendur. Það er svo haglega gert, að einu gildir, hvort setið er i efsta sæti eða neðsta, alls staðar heyrist jafnvel. Þar átti ég yndisleg- ustu stundirnar á öllu ferðalaginu við að horfa á harmleik Sofoklesar, „ödipus konúng“, fluttan á sama hátt og gert var 400 árum fyrir Krist. Skáldum sínum og spekingum eiga Grikkir að þakka, hvílík öndvegisþjóð þeir voru. 1 Grikklandi er nú hafið mikið viðreisnarstarf við ræktun og uppbyggingu landsins. Á styrjaldar- árunum, þegar barizt var í fjöllunum að heita mátti um hvert skarð, eyðilagðist ógrynni af þorp- um og bændabýlum. En þau voru öll hátt uppi í fjallshlíðunum, þar var hægara að verjast árás- um Tyrkja. Þegar farið var að byggja þorpin upp aftur, vildi stjórnin flytja þau niður í dalina, þar sem ræktarlandið er. En bændurnir tóku það ekki í mál, þorpin urðu að vera á sínum gamla stað. Eftir þingið var 30 fulltrúum boðið í 5 daga SKELIN MÍN. Ég ú mér litla öðuskel svo undur fína að sjá, þó einu sinni á œgisströnd hún orpin sandi lá. Hann afi suður við Svartahaf mér sendi þessa skel, þú heyrir í henni hafsins nið, ef hlustar fast og vel. Þú heyrir brotna brim við strönd og byltast úfinn sœ, þá heldurðu Svartahafið sjálft sé hjá okkur inni í bæ. Agnia Barto. Agnia Barto heitir rússnesk skáldkona og hefur skrifað margar barnabækur. Þetta litla ljóð er úr einni þeirra, sem heitir Litil ljóð fyrir lítið fólk og er gefin út á mörgum tungumálum. Agnia Barto var hér á ferð nýlega. — H. B. B. k--------- ------------------------------------J ökuferð til Norður-Grikklands til að skoða barna- heimili, sem Drottningarsjóður, sem svo er nefnd- ur, kostar. Drottningin beitti sér fyrir fjársöfnun heima og erlendis eftir stríðið, og nú fær þessi sjóður einnig margvíslega skatta, t. d. af tóbaki, áfengi og skemmtunum. Við komum á heimili fyrir munaðarlaus börn, sums staðar var búið að byggja lítil, lagleg hús, en annars staðar var enn notazt við gamla hermannaskála. Alls staðar fögn- uðu börnin okkur með söng og dansi og virtust hraust og glöð. Það er burtrekstrarsök, ef kennari eða eftirlitsmaður rekur barni löðrung. Alla stjórn og umsjón með þessum stofnunum annast konur, að miklu leyti í sjálfboðavinnu. Víða eru líka fé- lagsheimili, þar sem unglingum í nágrenninu er kennd alls konar handavinna og þeir geta komið saman til að skemmta sér við söng og þjóðdansa undir eftirliti forstöðukonunnar. Þennan tíma, sem við vorum í Grikklandi, voru oft hörð átök í Kýpurdeilunni, og ekki furða, þótt mörgum væri þungt í skapi til Englendinga. En aldrei urðu samt ensku konurnar þess varar, að þær væru látnar gjalda þess á nokkurn hátt. Virðist mér þetta sanna orð þau, sem formaður gríska kvenréttindasambandsins sagði við opnun þingsins. Sigríður J. Magnússon. 19. JtJNl 35

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.