19. júní


19. júní - 19.06.1976, Page 12

19. júní - 19.06.1976, Page 12
vinnudag ættu báðir að hafa tíma og þrek til að sinna börnum sínum og heimilishaldi. Við gætum þá losnað við hina miklu yfirvinnu karlmanna, sem m.a. sviptir þá samneyti við börn sín og börnin handleiðslu þeirra. Bj. Faðir, sem átti í örðugleikum með að ná tengslum við son sinn á gelgjuskeiði leitaði ráða hjá öldruðum manni. — Þvoðir þú synir þínum í framan, þegar hann var yngri? — spurði gamli maðurinn. Nei — var svarið. Þú hafðir tækifæri til að tengjast honum með því að sinna honum þegar hann var ungur — þá hefðir þú verið sjálfkrafa í snertingu við hann núna. Og þetta leiðir hugann að þvi, hvort konurnar, sem mæður og um leið sjálfgefnir uppalendur einoki ekki börnin og skapi sér forréttindi út á það. Hvort þær •séu ekki að móta einstaklinga fyrir samfélag, sem þær eru ekki í lifandi tengslum við, en hitt for- eldrið, sem þekkir daglega önn í þjóðfélaginu að einhverju marki — komi lítið sem ekki nálægt þvi að veita börnunum forsjá. Getur ekki verið viss hætta fólgin í þessu og hvernig er hægt að brjóta þetta upp. M. Fyrsta skilyrðið er að við- urkenna þetta sem vandamál innan heildarinnar og leita lausnar á því og þá er spurning, hvort ekki er hægt að draga úr þessari miklu vinnu fólks. Það getur tekið sinn tíma að finna lausn en sveigjanlegur vinnutimi væri ein leið — en því verður ekki komið við alls staðar. Be. Lífsgæðakapphlaupið er svo mikið og svo launamismunur milli atvinnustétta. Sum hjón eru það lágt launuð að þau komast ekki hjá því að vinna bæði fulla vinnu. 10 Bj. Lífsgæðakapphlaup — þetta vekur spurninguna um, hvaða gildismat höfum við, hver eru hin raunverulegu verðmæti. Hvernig fáum við til baka tímann og orkuna, sem við létum af hendi við uppeldi barna okkar. Að dvelja á heimi og ala upp og annast börn sín er einstaklings- framtak og raunar einkaframtak. Ég legg áherslu á að ala upp — ég lít svo á að það sé annað og meira en að þvo þeim og þvo af þeim. Eg á m. a. við andlega umönnun og andlegt atlæti, sem barni, er svo nauðsynlegt. Það er ekki hægt að alheimta daglaun að kveldi við öll störf. Á ekki verð- mætasköpun sér stað þarna sem skilar sér til okkar seinna — annað hvort beint frá barninu, þegar það er orðið fullgildur einstaklingur eða með hlutdeild þessa fullmótaða einstaklings í þjóðfélaginu, sem við njótum svo óbeint. M. Þú meinar hvort við séum að fjárfesta í börnum okkar. Bj. Já, með tilliti til umræð- unnar um vanmat á störfum unnum inni á heimilum, eru þau ekki, ef þau eru sett í stærra samhengi einmitt verðmæta- sköpun af þessu tagi — og sem skilar sér þó það verði ekki sam- dægurs. G. Félagsleg mótun einstakl- ingsins fer fyrst fram innan vébanda fjölskyldunnar. Fyrsti hópurinn, sem barnið kemur inn í er fjölskyldan og þess vegna er ákaflega mikilvægt fyrir persónulegan alhliða þroska barnsins að þessi fyrsta mótun takist vel. Að tilfinningalegt jafnvægi náist. M. Við fáum það þjóðfélag, sem við sáum til m. a. með umönnun barnanna. G. í sambandi við mat á þeim verkefnum, sem sinnt er um á heimilum getum við tekið dæmi af manni, t.d. iðnverkamanni, sem vinnur að framleiðslu- störfum. Þau börn, sem alast upp á hans heimili verða eins konar endurnýjun vinnuaflsins. Ef móðirin er heima á þessu heimili hefur hún óbeint áhrif á vinnu- markaðinn af þvi að hún stuðlar að endurnýjun vinnuaflsins, en vinnuframlag hennar er hvergi skráð sem slíkt. Bj. Þá er aðkallandi að fá svar við því hverjir eigi börnin. G. Ég held að lausn þessara mála liggi í einhverju öðru fjölskylduformi, en við búum nú við. Kjarnafjölskyldan er kannski orðin úrelt. Be. Hvernig? G. Opna hana. Bj. Fá aftur inn fleira skyldulið — afana, ömmurnar, afasysturnar og ömmubræðurna? G. Já, eða fleiri fjölskyldur og t.d. „kollektiv“ hús (sameiginlegt heimilishald). Við sjáum, ef litið er á heildina, að núverandi til- högun er fjárhagslega óhagstæð — að t.d. hver einasta lítil fjöl- skyldueining skuli hafa sína þvottavél og alla aðra vélvæðingu við heimilisrekstur fyrir sig eina. Það mætti draga eitthvað af þeirri vinnu, sem fram fer á heimilum nú, út af þeim og setja í iðnað s.s. hluta af matar- lagningu, þvottinn. M. Þetta væri svo sannarlega æskilegt — en ef þú minnkar vélvæðingu heimilanna þá dregur þú úr framleiðslu og sölu og þar með atvinnu fólks — þetta er allt i samhengi. Ef þú leysir eitt vandamál með því að stækka fjölskyldueininguna þá skjóta önnur upp kollinum. Fólk er

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.