19. júní - 19.06.1976, Síða 24
Heimsókn i fjárhagsnefnd 1945
Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur ræðir viðTeresíu
Guðmundsson, fyrrum veðurstofustjóra.
Eitt af síðustu verkum
Alþingis á þessu vori var
að samþykkja lög sem
miða að því að tryggja
jafnrétti karla og kvenna.
Um leið og við fögnum
þessum áfanga hvarflar
hugurinn að þeirri löngu
baráttu sem hefur skilað
okkur í þennan áfanga-
stað og að þeim laga-
greinum um jafnrétti sem
áður hafa verið sam-
þykktar.
Árið 1945 voru í fyrsta
sinn sett heildarlög um
laun starfsmanna ríkisins.
Þar segir svo í 36. grein.
,,Við skipun í starfsflokka
og flutning milli launa-
flokka skulu konur að
öðru jöfnu hafa sama rétt
og karlar“.
Ég minnist þess að hafa
heyrt um það talað að
hópur kvenna hafi komið
á fund þingmanna þegar
langt var komið umræðu
um þessi yfirgripsmiklu
launalög og fengið fjár-
hagsnefnd efri deildar til
þess að smeygja þessari
grein inn í lögin. Nokkrar
kunnar kvenréttinda-
konur voru orðaðar við
þessa áhrifaríku heimsókn
í þingið, þar á meðal Ter-
esía Guðmundsson,fyrrum
veðurstofustjóri. Ritstjórn
19. júní hefur beðið mig
að spyrja Teresíu um
þessa heimsókn í þingið.
Hvaða konur voru þetta, Ter-
esía, og hvað höfðu þær á bak við
sig, sem nægði til þess að fá þing-
menn til að samþykkja, að launa-
jafnrétti skyldi gilda meðal ríkis-
starfsmanna?
Laufey Valdimarsdóttir,
þáverandi formaður K.R.F.l. var
foringi hópsins og við hinar
vorum fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna í stjórn félagsins. Ég var
fulltrúi Alþýðuflokksins, Védís
Jónsdóttir var fyrir Framsóknar-
flokkinn, Guðrún Pétursdóttir
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Dýrleif Árnadóttir fyrir Sósíal-
istaflokkinn. Einnig minnir mig
að Aðalbjörg Sigurðardóttir hafi
verið með í förinni og e.t.v. ein-
hverjar fleiri. Á bak við okkur var
Kvenréttindafélagið sem var
mjög öflugt um þessar mundir.
Kvenréttindafélagið hafði
verið endurskipulagt á stórglæsi-
legum landsfundi kvenna sem
haldinn var 19.—26. júní
lýðveldisvorið 1944. Hluti
fundarins fór fram á Þingvöllum
að nýlokinni þjóðhátíð og yfir
fundinum öllum var hinn sérstaki
ljómi þjóðhátíðarinnar, allir voru
hamingjusamir og blíðir. Laufey
beitti sér fyrir þeirri breytingu að
stjórnmálaflokkarnir skyldu til-
nefna hver sína konuna í stjórn
Adda Bára og Teresía ræðast við á bókasafni Veðurstofunnar.
22