19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 26

19. júní - 19.06.1976, Síða 26
Skiptar skoöanir Við umræður um frumvarp til laga um jafnstöðu karla og kvenna í neðri úeild alþingis í marz s.l. lét einn þingmanna þau orð falia, að til þess að hraða því, að konur næðu jafnri stöðu á við karla á sem flestum sviðum þjóðlífsins, bæri að veita þeim tímabundin forréttindi. Um þetta atriði hafa verið skiptar skoðanir bæði hér á landi og í nágrannalöndum Gerður G. Óskarsdóttir: Segja má, að með kvennaárinu og þó einkum kvennadeginum 24. okt. hafi náðst hér á landi almenn viðurkenning á þeirri staðreynd að misrétti sé milli kynjanna. Þetta er að sjálfsögðu mikilvægt skref í baráttunni fyrir jafnrétti, en það er langt í land og hætt við að þróunin verði afar hæg. Ef einhverjar verulegar breyt- ingar eiga að verða á þessum næstu 10 árum, sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að helga bar- áttunni fyrir jafnrétti kynjanna, þá verður að grípa til einhverra aðgerða. Að sjálfsögðu er gjör- breytt þjóðfélag eina lausnin, en þar sem hún er ekki í augsýn, verður annað að koma til. Ég tel að tímabundin forrétt- l’Ti Ji kvenna á einhverjum sviðum séu réttlætanleg. Karlmenn njóta nú slíkra forréttinda á nær öllum sviðum, því má ekki láta jafn- réttishugsjónina villa sér sýn og halda að konur komist upp að hlið karlanna, en þeir þurfi ekki að láta af neinu í staðinn. okkar. Ritnefnd „19. júnP4 taldi, að lesendum blaðsins gæti verið fengur að því að heyra álit nokkurra manna á þessu máli og lagði spurning- una: „Hvert er viðhorf þitt til tímabundinna forréttinda kvenna?“ fyrir þau Gerði, Guðrúnu, Rannveigu og Þorstein. Blaðið birtir hér svör fjór- menninganna. Bj.E. Guðrún Erlendsdóttir: Ég er andvíg því, að konur njóti sérstakra forréttinda fram yfir karla til að ná jafnri stöðu í þjóðfélaginu, og mun ég í stuttu máli gera grein fyrir þessari skoðun minni. Undanfarin ár hefur verið sterk jafnréttishreyfing víða um heim i þá átt að bæta stöðu kvenna. Sú skoðun er útbreidd, Konur hafa misréttið stöðugt fyrir augunum, þær sjá að konur eru lægra settar, störf þeirra eru lægra metin til launa, þeim er ekki trúað fyrir ábyrgð, fram hjá þeim er gengið um stöðuveit- ingar. Þær eru í minnihluta (ef þær þá sjást) í stjórnum, nefndum og á fundum, ekki er tekið tillit til skoðana þeirra og álits þeirra leitað. Fæstar þora að tjá sig af ótta við að karlarnir í kringum þær hafi miklu meira vit á málunum. Konum er líka vel ljóst, að aðrar vonir eru bundnar við stúlkur en drengi. Til þess er Framhald á hls. 56. Gerður að þjóðfélagið verði að leggja sitt af mörkum til að raunverulegt jafnrétti náist milli kynjanna. Áhugi hefur vaknað á því að nota löggjöfina til að ná fram raun- verulegu jafnrétti með því að setja almenn jafnréttislög. ísland varð fyrst Norðurlanda til að setja slíka almenna löggjöf um jafnrétti kvenna og karla, sem samþykkt var á Alþingi nú í vor. Hugtökin jafnrétti (jafnstaða) og mismunun eru ekki skýrð í Mannréttindayfirlýsingu S. Þ., eða í Mannréttindasáttmála Evr- óðu. Bann gegn mismunun felur í sér samkvæmt orðanna hljóðan, að hvorki megi gera betur né verr við einn mann en annan, ein- göngu vegna kynferðis hans. Jafnstaða felur i sér, að ekki megi maður hljóta einhverja sérmeð- ferð kynferðis síns vegna. Það er almennt viðurkennt, að sú sérmeðferð, sem byggist á hin- um líffræðilega mismun kynj- anna, teljist ekki mismunun í þeirri merkingu, sem að ofan er lýst (sbr. fæðingarorlof). í þeim löndum, sem ibugað hafa setningu almennra jafn- Franihald á hls. 57. 24

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.