19. júní - 19.06.1976, Síða 32
um sögulega þróun stöðu kvenna á
Norðurlöndum. Sýningin verður á veg-
um Riksutstállningar í Svíþjóð og með
aðstoð Dr. Asta Ekenvall, eins af
stofnendum kvennasögusafnsins í
Gautaborg.
Rikisútvarpið, bœkur, blöð o.fl.
Allmörg erindi og þcettir voru í
útvarpinu í tilefni kvennaársins. T.d.
voru erindi að tilhlutan Kvenstúdent-
afélags Islands og Rauðsokkahreyf-
ingin hafðiþrjá þætti, sem nefndir voru
1101 —> ellefu hundruð og eitt. Ot-
varpsslöðvar á Norðurlöndum höfðu
samvinnu um að gera hálftíma dagskrá
frá hverju landi og eina sameiginlega.
Allar dagskrámar voru með ensku tali.
Sigríður Thorlacius sá um íslenska
hlutann (júlí—ágúst). Sjónvarpið
sýndi m.a. kvikmynd í mörgum þáttum
um kvenréttindabaráttuna í Englandi
(ágúst—september).
,Jafnrétti kynjanna“ kom út í júní-
mánuði. Bókin er skýrsla um niður-
stöður af rannsókn, sem Guðrún Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir gerði á vegum
Námsbraular í þjóðfélagsfrœðum við
Háskóla Islands, og prófessor Ólafur
Ragnar Grímsson bjó til prenlunar.
Þingsályktunartillaga, sem lögð var
fram á Alþingi 1971, lá til grund-
vallar þessari rannsókn.
Ritgerðasamkeppni fyrir ungt fólk á
aldrinum 15—20 um „stöðu konunnar
í þjóðfélaginu“ var auglýst á vegum
menntamálaráðuneylisins í júní. Verð-
launin, vikudvöl í aðalstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í New York hlaut
María Haraldsdóttir, 17 ára, (í
desember).
Menntamálaráðuneytið lét þýða á ís-
lensku yfirlýsingu A llsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna frá ‘7. nóv 1967
um afnám misréttis gagnvart konum.
Jafnrétlisnefndir til að vinna að jafn-
stóðumálum kvenna og karla voru settar
á stofn í nokkrum sveitarfélögum: I
Kóþavogi í júlí, síðan í Garðahreppi
(Garðabce) í Hafnarfirði í desember,
og í undirbúningi er nefnd í Neskaup-
stað. I Reykjavík var á borgarstjóm-
arfundi í nóvember vísað frá tillögu um
að skipa jafnréttisnefnd.
Frímerki var gefið út í tilefni kvenna-
ársins. Verðgildi 100 krónur. Myndin
er af listaverki eftir Nínu Tryggva-
dóttur (útg. 15. okt. ’75).
Framkvæmdanefndin um kvennafríið á
Akureyri setti á laggirnar í nóvember
nýja nefnd karla og kvenna — eða
Á Loftleiðaráðstefnunni 20. og 21. júní 1975.
Frímerki í tilefni kvennaárs af mál-
verki eftir Nínu Tryggvadóttur.
jafnréttissamtök — með fjölþœtta
verkefnaskrá.
— Otgefendur virlust laka mið af
kvennaárinu með vali jólabóka sinna.
Karlmenn, sem skrifuðu í blöð eða
minntust opinberlega á kvennaárið og
kvennafriið, gerðu það yfirleitt af
skilningi og sanngirni, en nokkrar ill-
girnisraddir vöklu athygli. Nokkrar
hjáróma kvennaraddir heyrðusl einnig.
— Samvinnunefndir á Norðurlöndum œtla
að rannsaka, hvernig hlutur kvenna í
þjóðfélaginu kemur fram í fjölmiðlum.
Islenska nefndin „Fjölmiðlanefnd“ var
stofnuð í nóvember.
— Kvenfélagið Framtíðin á Akureyri
hafði í tilefni kvennaársins mynd af
Aðalbjörgu Sigurðardóttur á jólamerki
st’nu 1975.
— Fyrrverandi þingskrifarar, konur,
stefna A Iþingi vegna þess að karlþing-
skrifari fékk hœrri laun en þœr. Málið
kom fyrir borgardóm Reykjavxkur í
fyrsta skipti í desember.
— Kvennafríið 24. október 1975
Hámark kvennaársins á tslandi var kvennafríið
24. október 1975. Hugmyndin um það
var búin að vera nokkurn tima til
umhugsunar og umræðu (sbx. Vísir 27.
6. 1974), en á ráðstefnunni á Loft-
leiðahótelxnu i júni 1975 var samþykkt
að skora á konur landsins að taka sér frí
frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna
á kvennaárinu. Konur þœr, sem að til-