19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 37

19. júní - 19.06.1976, Síða 37
Ég hef ákveðið að læra söng . . . skóla, Hagaskóla og M.R. Alltaf þegar ég sé Melaskólann dettur mér í hug rúgbrauð með kæfu og mjólk með sólarbragði. Ég var í M.R. í tvo vetur, hætti og fór í Sál að nema leiklist. Lékstu í M. R. ? Ég var formaður herranætur og settum við upp Lísu í Undra- landi, norskan söngleik. Þar lék ég klikkaðan héra, óskaplega við- kvæman og vælugjarnan. Við gerðum mestallt sjálf, þýddum leikritið, teiknuðum og smíðuð- um leiktjöld og búninga, út- settum og sömdum músikina og lékum svo auðvitað. Leikstjórnin var eina utanaðkomandi að- stoðin. Hvers vegna hættirðu í M.R.? Eiginlega mest til að mótmæla þeim hömlum, sem lagðar eru á nemendur hvað snertir félagslífið í skólanum. Við gátum ekki fengið þá vinnu sem lögð var í félagsstarfið, svo sem leikstarf, skipulag funda og ferða, viður- kennt sem þátt í náminu. Þvert á móti var verið að þrengja meira og meira að nemendum, hvað þessu viðvék og um það leyti sem ég fór var „mórallinn“ orðinn þannig, að krakkarnir voru farin að flýja skólann. Þess má geta að í M.H. er vinna að félagsstörfum tekin til greina, þegar náms- árangur er metinn. Þetta er líka nauðsynlegur undirbúningur fyrir lífið, sem almennir skólar eiga tvímælalaust að stuðla að. Hvernig líkaði þér í Sál? Þetta ár hafði geysigóð áhrif á mig bæði andlega og líkamlega. Þar tíðkaðist að nemendur sjálfir skipulegðu námið og réðu kenn- arana. Hverárgangurendurbætti og þróaði námsfyrirkomulagið og tók þá mið af reynslu fyrra árs. Það kom af sjálfu sér að velja ekki auðveldar leiðir, því að við skildum, að til þess að þroskast og taka verulegum framförum er engin auðveld leið til. Þá gerðum við uppkast að rekstri skólans og kennararnir gerðu síðan athuga- semdir. Núna síðan Ríkisskólinn kom til, gera kennararnir upp- kastið, en nemendur koma með athueasemdir. Þú léksl í Brekkukotsannál, hvernig atvikaðist það? Ég var að vinna hjá Kleppi það sumar og var eiginlega ofan í annarri skúringafötu, þegar hringt var í mig og spurt, hvort ég vildi fara i prufu í Brekkukots- annál, — ég vissi ekki einu sinni hvað það var. Ég mætti ásamt nokkrum öðrum og við vorum látnar lesa og ganga um og síðan var filma af þessu send út. Þá reyndust tvær eftir til að velja úr og vorum við beðnar að lesa úr handritinu. Þegar ég var búin var klappað á öxlina á mér og ég beðin að mæta næsta dag til að taka mál fyrir hárkollu. Hvemig samdi ykkur fröken Gud- mundsen? Mér fannst auðvelt að setja Framhald á bls. 55. 35

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.