19. júní


19. júní - 19.06.1976, Side 47

19. júní - 19.06.1976, Side 47
Á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin var í Mexico dagana 19. júní— 2. júlí s. 1., var samþykkt framkvæmda- áætlun til næstu 10 ára. 1 þessari framkvæmdaáætlun voru ríkis- stjórnir hvattar til að stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum svið- um, m.a. með lagasetningu, sem kveði á um fullt jafnrétti í vinnu- málum, menntamálum o. fl.“ Að því er varðar löggjöf erlendra ríkja, er það að segja, að mörg ríki hafa sett löggjöf, sem ætlað er að útrýma mismunum kynjanna. Lagaákvæði þessi eru nokkuð mismunandi, allt frá almennu banni gegn mismunun, til lagaákvæða, sem beinast að sérstökum tegundum mismun- unar, og þá aðallega á sviði at- vinnulífs. Lög um jöfn laun fyrir sambærilega vinnu hafa verið sett í mörgum löndum, og jafn- réttislöggjöf er mjög þróuð t.d. í Vestur-Þýzkalandi og ýmsum fylkjum Bandaríkjanna. Á Norðurlöndum hafa ekki enn verið sett almenn lög, sem banna mismunun kynjanna, (sbr. nánar um afdrif lagafrumvarps í Noregi á öðrum stað í blaðinu). Þess má geta, að á fundi Norðurlanda- ráðs, sem haldinn var í Reykjavík febrúar 1975, var samþykkt að skipa sérstaka samstarfsnefnd um jafnréttismál, til að fylgjast með því, sem er að gerast í þessum efnum á Norðurlöndum, en þau hafa öll staðfest alþjóðasamn- inga, sem skuldbinda þau til að koma í veg fyrir hvers konar mis- mun kvenna og karla. Lög um jafnrétti kvenna og karla frá 18. maí 1976: 1. gr. Tilgangur laga þessara er að stuðla að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla. 2. gr. Konum og körlum skulu veittir jafnir möguleikar til atvinnu og menntunar og greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. 3. gr. Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kyn- ferði, og gildir það meðal annars hvað varðar ráðningu og skipun í starf, stöðuhækkun, stöðuheiti, uppsögn úr starfi, veitingu hvers konar hlunninda og almenn vinnuskilyrði. 4. gr. Starf, sem auglýst er laust til umsóknar, skal standa opið jafnt konum sem körlum. í slíkri aug- lýsingu er óheimilt, að gefa til kynna að fremur sé óskað starfs- manns af öðru kyninu en hinu. 5. gr. Nú er umsækjandi um auglýst starf kona, en það hefur verið veitt karlmanni, og skal þá Jafn- réttisráð, ef umsækjandi óskar þess, fara fram á það við hlutað- eigandi atvinnurekanda, að hann veiti því skriflegar upplýsingar um hvaða menntun, starfsreynslu og aðra sérstaka hæfileika sá hefur til að bera, er ráðinn var í starfið. Sama rétt skal karlmaður, sem er umsækjandi um starf, hafa, ef konu er veitt starfið. 6. gr. Konur og karlar, er starfa hjá sama atvinnurekanda skulu njóta sömu möguleika til framhalds starfsþjálfunar og til að sækja námskeið, er haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undir- búnings annarra starfa. 7. gr. í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum skal veita fræðslu um jafnrétti kvenna og karla. Kennslubækur og kennslutæki, sem þar eru notuð, skulu vera þannig úr garði gerð og hönnuð, að kynjum sé ekki mismunað. 8. gr. Auglýsendum er óheimilt að birta nokkrar þær auglýsingar í orðum eða myndum, er orðið geti öðru kyninu til minnkunar eða lítilsvirðingar. 9. gr. Jafnréttisráð skal annast fram- kvæmd laga þessara. Jafnréttis- ráð skal skipað 5 mönnum til þriggja ára í senn og skulu þeir ásamt varamönnum skipaðir þannig: einn skipaður af Hæsta- rétti og er hann formaður ráðsins og skal hafa lokið embættisprófi í lögum, einn skipaður af félags- málaráðherra, einn skipaður af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn skipaður af Alþýðu- sambandi Islands og einn skip- aður af Vinnuveitendasambandi íslands. Jafnréttisráð hefur skrifstofu og ræður framkvæmdastjóra til að veita henni forstöðu. Kostnaður greiðist úr ríkissjóði. T0.gr. (OB72I.tí3'mtí? | BllISV O.S Jí Verkefrii Jafnréttisráðs er að: 1. Sjá um að ákvæðum 2.—8. 45

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.