19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 50

19. júní - 19.06.1976, Síða 50
Sigríður: „Ég hef fremur fundið fyrir því, að mér hefur verið hlíft við óþrifa- legum eða erfiðum verkefnum.“ Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælaverkf ræðingur. Ekki get ég hreykt mér af því að hafa gerst brautryðjandi í nýrri starfsgrein. Frá örófi alda var fæðuöflun og forðasöfnun í verkahring kvenna. Þær vissu, að „guðlaus má lifa en grautarlaus ekki“, og beittu þekkingu sinni og hugviti til að halda lífi í fólkinu í harðæri og hallæri. Öflun fæðu var árstímabundin rétt eins og nú. Kjöt og slátur féll til á haustin, mjólk aðallega á sumrin, fiskur á vertíðum. Án nútíma geymsluaðferða var það list að geta geymt fæðu frá ári til árs, og krafðist mikillar þekkingar í matvælafræðum. Auk þekk- ingar formæðra okkar á samsetn- ingu matvæla og geymsluaðferð- um var nýtni þeirra slík, að nú- tíma hagræðingar gætu aldrei látið sig dreyma um að ná þvílík- um árangri. Með iðnvæðingu og breyttum Framhald á bls. 60. Guðrún H.: „Þátttaka kvenna í matvælaiðnaði er aðeins eðlilegt framhald á störfum þeirra á heimilunum.“ Sigríður Ásgrímsdóttir, rafmagnsverkfræðingur. Ég hef oft verið spurð að því, hvernig sé að vera kona og starfa sem verkfræðingur. Það er ágætt starf og líklega svipað fyrir konur og karla. Það vekur alltaf athygli, þegar konur velja sér nám eða starf, sem áður hefur eingöngu verið stundað af körlum. Margir álíta að þær konur sem Vcrk- fræðíngar Þar sem fáar íslenzkar konur hafa lagt stund á verk- fræði, ákvað ritnefnd 19. júní að kynna fjórar íslenzkar konur, sem lokið hafa námi í þeirri grein. Lagðar voru spurningar fyrir þessar konur um nám þeirra og störf, einnig um það, hvernig þeim líkaði starf sitt og þeim hefði verið tekið sem verkfræðingum. Var þeim í sjálfsvald sett, hvort og hvernig þær svöruðu spurn- ingum okkar. Við vonum, að verða til þess að ryðja brautina, hljóti að hafa sérstakar ástæður fyrir því. Ég get aðeins svarað fyrir mig, en ástæðan fyrir vali mínu var sú, að ég hafði óljósa hugmynd um, að verkfræðingar ynnu við útreikninga og teikn- ingar og sérkunnátta þeirra væri aðallega á sviði eðlisfræði og annarra náttúruvísinda. Þetta voru fög, sem ég hafði mestan áhuga á í skóla og langaði til að læra meira um. Þó er alls ekki Framhald á bls. 60. i

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.