19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 52

19. júní - 19.06.1976, Síða 52
MUNIÐ JÁRNIÐ Járnauðug fæða. Járnskortur og meðfylgjandi blóðleysi (anæmia) er kvilli, sem mjög margar konur þjást af án þess að vita sjálfar. Blóðleysi vegna blæðinga og barneigna hefur sjálfsagt háð konum öldum saman, en fæðan nú á dögum er mun járnfátækari en áður fyrr, t.d. vegna þess að járnpottar eru ekki notaðir lengur og einnig vegna aukins hreinlætis í meðferð matvöru. Áróðursher- ferðir heilsupostula hafa hingað til ekki snúist um járnskort þó stór hluti ungra kvenna líði fyrir hann og alltof mörg ungbörn hafi hlotið verulegan skaða af járn- skorti vegna ofneyslu mjólkur- matar. Helstu einkenni blóðleysis eru þrekleysi — þreyta — aukin svefnþörf og kulsælni, jafnvel höfuðverkur og hjartsláttarköst. Járnskortur veldur þar að auki þurrki og rýrnun á slímhúð og húð, og hefur raunar áhrif á allar frumur líkamans. Það er alltof algengt að heyra þá, sem betur ættu að vita, segja: „Þetta er bara eðlilegl blóð“ þegar kona hefur um 12g% blóðrauða (hæmoglobin) þ.e. „80% blóð“, sem kallað er. Þá er víst átt við að mælingin lafi í lágmarki þess sem venjulega mælist hjá konum (12—16%), sem er mun lægra en hjá körlum, vegna hins algenga blóðleysis kvenna, þó hið aeskilega sé auðvitað „100% blóð“. Konur athugið: ef þið hafið svokallað „80% eðlilegt blóð“, eða enn minna og eins ef þið eruð fölar, þreyttar og með önnur ein- kenni blóðleysis, að þið eigið ekki að sætta ykkur við þetta ástand vegna þess að það er algengt heldur láta rannsaka blóðið með tilliti til járnskorts og taka síðan járn í langan tíma, ef um skort er að ræða. Nú fást járnhylki, sem fara vel í maga, en sjálfsagt er að fá læknisráð um meðferð við blóðleysi. Þessi áskorun er skrifuð í 19. júní vegna þess, að blóðleysi háir stórum hluta kvenna og kemur í veg fyrir að þær njóti sin og hafi umframorku til að taka þátt i félagsmálum, m.a. jafnréttisbar- áttunni. Hlédís Guðmundsdóttir 50 „Blóðleysi háir stórum hluta kvenna og kemur í veg fyrir að þær njóti sín og hafi umframorku til að taka þátt í félagsmálum, m.a. jafnréttisbaráttunni.“

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.