19. júní - 19.06.1976, Side 53
Frá Noregi
I marzmánuði 1975 var lagt
fram í Noregi fyrir Stórþingið
frumvarp til laga um jafnstöðu
kynjanna — Utkast til lov om
likestilling mellom kjönnene.
Frumvarp þetta var að mestu
leyti samhljóða því íslenzka,
þ.e.a.s. íslenzka frumvarpið mun
hafa verið sniðið eftir því norska
að einhverju leyti. Um
páskaleytið í ár var norska frum-
varpið fellt í Stórþinginu.
Frumvarpið var stjórnarfrum-
varp, en borgaraflokkarnir auk
sósíaliska vinstri flokksins
greiddu atkvæði gegn því. Lög
um jafnrétti kynjanna öðlast því
ekki gildi í Noregi að sinni.
Frumvarpinu var ætlað, ef að
lögum yrði, að stuðla að jafnrétti
kynjanna, og þá sérstaklega að
bæta stöðu kvenna — „og tar
særlig sikte pá á bedre kvinnens
stilling.“
Því var ætlað að tryggja jafna
möguleika kvenna og karla til
atvinnu og menntunar og að
konur og karlar fengju jöfn laun
fyrir sambærileg störf.
Mismunun vegna kynferðis var
skv. frumvarpinu óheimil. At-
hyglisvert er, að mismunun, sem
beitt er til að jafna stöðu kynj-
anna, taldist ekki misrétti skv.
því; — „Som forskjellsbehandl-
ing reknes ikke behandling som i
overenstemmelse med lovens
formál fremmer likestilling
mellom kjönnene“. Þarna er
kveðið á um að í sumum tilvikum
sé mismunun heimil, þ.e. þegar
hún þjónar tilgangi laganna.
Um efni frumvarpsins að öðru
leyti er ekki ástæða til að fjalla
um að sinni, en eins og áður segir
var það að mestu samhljóða
íslenzku lögunum. / />
Jafnstaða karla og kvenna
á Bretlandi og íslandi
Það er ekki sambærilegt verk
að lesa yfir bresku lögin um kyn-
ferðislega mismunun sem sam-
þykkt voru í fyrra og íslenska
frumvarpið um jafnstöðu karla
og kvenna sem lagt var fyrir al-
þingi i vetur. Islenska frumvarpið
er 16 greinar á tveim síðum, sjö
blaðsíður alls með athuga-
semdum við einstakar greinar.
Það er skýrt og skipulegt á ljósu
og auðskiljanlegu máli. Bresku
lögin eru 87 greinar, og með
athugasemdum fylla þau 77
síðna bók á tyrfnu og mjög oft
illskiljanlegu lagamáli. Allt er þar
fyrirferðarmeira en í íslenska
frumvarpinu. Til dæmis hljómar
fyrsta málsgrein 6. greinar á þessa
leið í lauslegri þýðingu:
Það er andstætt lögum ef
manneskja, sem ræður starfsfólk
við stofnun á Stóra Bretlandi,
mismunar konu —
(a) með því hvernig afráðið er
hverjum skuli boðin vinnan, eða
(b) með því hvernig henni er
boðin vinnan, eða
(c) með því að neita að bjóða
henni vinnuna eða hafa hana
vísvitandi útundan.
Samsvarandi grein (4. gr.) ís-
lenska frumvarpsins er á þessa
leið:
Starf, sem auglýst er laust til
umsóknar, skal standa opið jafnt
konum sem körlum. 1 slíkri aug-
lýsingu er óheimilt að gefa til
kynna að fremur sé óskað starfs-
manns af öðru kyninu en hinu.
Engar undantekningar eru frá
þessari grein íslenska frumvarps-
ins, en í bresku lögunum fer hér
sem víða annars staðar meira rúm
í að tilgreina undantekningar en
aðalregluna. Undantekin eru t.d.
einkaheimili, sem mega nota
kyngreindar auglýsingar, svo og
fyrirtæki sem hafa 5 eða færri
manneskjur í þjónustu sinni. Auk
þess þarf ekki að taka tillit til
laganna „þegar nauðsynlegt er
starfsins vegna að umsækjandi sé
karlmaður— (7,l,a), t.d. vegna
þess að hreinlætisaðstæður á
vinnustað eru eingöngu handa
körlum.“ Það er svo dýrt að setja
upp klósett!
Grein bresku laganna um
skólamál byrjar á þá leið að ekki
megi útiloka konur frá mennta-
stofnunum kynferðis þeirra
vegna, en í undantekningunum
er skýrt tekið fram að lögin nái
ekki yfir kyngreinda skóla.
Drengjaskólum er ekki gert að
taka inn stúlkur og öfugt. Vand-
séð er því hverju lögin breyta í
þessu efni. I íslenska frumvarpinu
er ekki farið út í nein smáatriði í
skólamálum: „Konum og körlum
skulu veittir jafnir möguleikar til
atvinnu og menntunar . . .“ (2.
gr.). Hér þyrfti að gera athugun á
lögum einstakra menntastofnana
sem eru kyngreindar í raun, og
athuga hvort annað kynið er úti-
lokað frá þeim samkvæmt laga-
bókstaf. Athugandi er líka hvort
Kvennaskólinn í Reykjavík verð-
ur brot á þessum lögum.
Margt er tekið fram í bresku
lögunum sem við þurfum ekki á
að halda. T.d. má ekki lengur
banna konum aðgang að krám og
veitingahúsum eins og hefur
tíðkast á sumum stöðum fram á
þennan dag. Hitt kæmi að meira
gagni að taka fram í okkar lögum
51
Fréttir frá útlöndum:
JAFNRÉTTISMÁL