19. júní


19. júní - 19.06.1976, Síða 55

19. júní - 19.06.1976, Síða 55
Fjáröflun — póstkort Á fundi stjórnar K.R.F.I. í vor lá fyrir tillaga um fjáröflun fyrir félagið, er tæki mið af 70 ára afmæli þess 27. janúar 1977. Markmið þessa sérstaka fjár- öflunarátaks skyldi vera að bæta híbýlakost og starfsaðstöðu félagsins að Hallveigarstöðum. I fjáröflunarnefnd voru valdar Bessí Jóhannsdóttir, Björg Einarsdóttir, Edda Svavarsdóttir, Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir og Unnur Jóhannesdóttir. Nefndin hefur skilað tillögu og áætlun um 2. Skylduskólinn. 3. Starfsmenntun og starfsval. Tveir málshefjendur voru um hvern þessara þriggja þátta, en síðan var fjallað um þá i starfshópum. Á sunnudag var fjallað um niðurstöður starfshópa og síðan um ýmis málefni félagsstarfsins fyrir næstu 4 ár. Þá var enn- fremur kosið í stjórn, fulltrúaráð, stjórn Menningar- og minningarsjóðs og ritnefnd 19. júní. útgáfu og sölu á mynd — póst- korti — í stærðinni 22 X 15 sm í blá/grá/hvítum lit. Valdar hafa verið tvær myndir frá útifundinum á Lækjartorgi í Reykjavík 24. okt. 1975 — á degi Sameinuðu þjóðanna á Alþjóð- lega Kvennaárinu. Aftan á kort- inu verður stuttur texti á íslenzku og fjórum öðrum tungumálum. Ljósmyndararnir Ari Kárason og Sveinn Þormóðsson leyfðu birtingu myndanna. Rafn Hrafnfjörð, prentsmiðjustjóri, sá um útlit kortsins og Litbrá h/f um prentun. Kortið verður til sölu í flestum bókabúðum, minjagripaverzl- unum og i skrifstofu K.R.F.Í. að Hallveigarstöðum þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga, kl. 15:00 — 17:00, sími 18156. Enn fremur hjá Eddu Svavarsdóttur, sími 21200, Sigurbjörgu Aðal- steinsdóttur, sími 38967 og Björgu Einarsdóttur, sími 14156. Útsöluverð er kr. 100.00, en fé- lögum, sem vilja kaupa ákveðið magn er gefinn kostur á að semja sérstaklega um verð. Mikill áhugi er fyrir þessari fjáröflun félagsins m.a. hjá félagsmönnum K.R.F.I. í Reykjavík og ekki er að efa að sama verður uppi á teningnum úti um land. Það hefur mælst sérstaklega vel fyrir hjá mörgum, sem sóttu fundi i tilefni Kvenna- frísins, að eiga þarna kost á að eignast mynd frá atburðinum i höfuðstaðnum. Þarna gefst tækifæri til sam- tímis að efla hag félags, sem á að baki sér langa og markverða sögu um baráttu fyrir þjóðfélagslegum réttindum kvenna hér á landi og eignast um leið minningu um einstæðan atburð i sögu kvenna í heiminum, sem við allar, íslenzk- ar konur, áttum þátt í að tókst jafn vel og raun ber vitni. Þessi mynd er sérstaklega vel til þess fallin að senda til vina og kunningja erlendis og ættu konur að taka sig til, vegna 70 ára afmælis K.R.F.I., og senda þessa skemmtilegu kveðju til útlanda og okkar í milli innanlands, ef einhver sérstök tækifæri eru eða jafnvel án þess. Bj.E. 53

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.