19. júní


19. júní - 19.06.1976, Side 59

19. júní - 19.06.1976, Side 59
— Skiptar skoðanir Guðrún Erlendsdóttir Framhald af bls. 24 réttislaga, hefur það valdið hvað mestum deilum, hvort hafa skyldi ákvæði um forréttindi kvenna. f norska frumvarpinu um jafn- stöðu kynjanna, sem verið hefur til meðferðar í Stórþinginu, er berlega sagt, að því sé einkum ætlað að bæta stöðu kvenna, og þar er ákvæði, sem heimilar forgangsstöðu kvenna, ef það verður til að auka jafnrétti kynj- anna. Svíar hafa ekki viljað setja al- menn jafnréttislög, þar sem þau myndu koma í veg fyrir, að áfram yrði unnt að veita konum þau forréttindi, sem þær í dag njóta á ýmsum sviðum. í íslenzku jafnréttislögunum er ekki ákvæði um forréttindi til handa konum. Að mínu mati er ekki rétt að hafa slíkt ákvæði í jafnréttislögum, það stríðir gegn réttarvitund minni. Hætta er á, að slíkt forréttindaákvæði færi ekki svo auðveldlega úr lögunum, ef það væri einu sinni komið þar inn og gæti það haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar, sem væru and- stæðar jafnréttishugsjóninni. — Skiptar skoðanir Rannveig Jónsdóttir Framhald af bls. 25 f fyrra, árið 1975, luku alls 238 nemendur lokaprófum frá Háskóla fslands. Þar af voru 47 stúlkur, eða aðeins 19,7% þeirra er luku prófi. Getur nc *'kur trúað því lengur að á íslandi hafi konur og karlar sömu möguleika til náms? Þó er menntunarskortur kvenna langtum meiri og alvar- legri á sviði iðn- og tæknimennt- unar. Það er staðreynd, að stúlkur eru innan við 10% nema í iðn- skólum landsins. Við skulum reyna að líta á málið frá öðrum sjónarhóli og hugsa okkur að þessar fréttir komi frá útlöndum; frá lýðræðis- ríki, sem á við kynþáttavandamál að stríða, eins og sagt er; landi þar sem aðeins helmingur íbúanna er hvítur, hinn helmingurinn svartur. Og okkur er sagt að í þessu landi séu svertingjar aðeins 19,7% þeirra sem ljúka háskóla- prófi og þeir séu innan við 10% þeifrá sem stunda nám í iðn- skólum. Mundum við ekki telja að „eitthvað væri rotið innan Danaveldis“, jafnvel þótt þess væri ekki getið, að í nefndu lýð- ræðisríki séu svertingjar aðeins 5% fulltrúa á Þjóðþinginu, þótt þeir hafi haft kosningarétt og kjörgengi síðan 1915? Nú vaknar spurningin, hvernig er unnt að hjálpa íslenskum konum til þess að fá leiðréttingu mála sinna? Skilningur manna skiptir miklu máli og viðhorf uppvax- andi kynslóðar er mikilvægast af öllu. í nýja jafnréttisfrumvarpinu segir: „í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum skal veita fræðslu um jafnrétti karla og kvenna.“ Vegna ríkjandi ástands, sem er konum svo mjög í óhag, tel ég að mesta áherslu þurfi að leggja á það, að litlar stúlkur fái alveg sérstaka hvatn- ingu frá blautu barnsbeini til þess að standa sig vel og leita inn á nýjar brautir í leikjum og námi. Það þarf að styrkja sjálfstraust og heilbrigðan metnað þeirra og þjálfa þær í að taka á sig ábyrgð og standa á rétti sínum. Almennt séð verður að hætta að beina leikjum barna og viðhorfum inn á fyrirfram afmarkaðar brautir eftir kynjum eins og gert hefur verið fram á þennan dag, heldur leyfa hverjum einstakling að njóta sín og þroskast eftir sínu upplagi án tillits til kynferðis. Án þess er ekki hægt að tala um jafna möguleika í lífinu. Nauðsynlegt er að halda nám- skeið fyrir fóstrur, kennara, for- eldra, stjórnmálamenn, starfs- menn fjölmiðla og aðra þá, sem hafa afdrifarík áhrif á viðhorf annarra, og veita þeim upplýs- ingar um jafnréttismál og vekja þá alveg sérstaklega til meðvit- undar um þann aðstöðumun, sem konur líða fyrir. Sjálfsagt er að nota sjónvarpið við þessa fræðslu, en það mundi ekki nægja. Árangursríkast held ég að væri að halda fræðslu og um- ræðufundi í vinnutíma á stofn- ununum sjálfum; á barnaheim- ilum og í skólum; með starfs- mönnum fjölmiðla og sveitar- stjórnum; og síðast en ekki síst á Alþingi. Fræðslan gæti farið fram með umræðum og hópvinnu, og svo mundu nemarnir að sjálf- sögðu fá með sér lesefni heim og verkefni til íhugunar. Störfin í þjóðfélaginu skiptast yfirleitt í karlastörf og kvenna- störf, og kvennastörfin teljast til láglaunastarfa. Félagslegar hefðir og menntunarskortur kvenna eru meðal orsaka þessarar verka- skiptingar. Það er augljóst að leggja þarf áherslu á að konur geti öðlast aukna menntun. Það þarf að reka áróður fyrir aukinni menntun kvenna á öllum aldri og gera þeim námið kleift með námsstyrkjum og barnagæslu. Ég tel það réttlátt, að konur séu styrktar sérstaklega til náms á Jafnréttisáratugnum, vegna þess að þær hafa minni fjárráð en karlar almennt. Einstæðar konur eru yfirleitt fátækari en einstæðir karlar vegna minni atvinnu- 57

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.