19. júní - 19.06.1976, Side 61
hún undan endurkosningu. I
hennar stað var kosin Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir.
Ur varastjórn áttu að ganga
Anna Þorsteinsdóttir og Signý
Gunnarsdóttir. Anna gaf ekki
kost á sér til endurkjörs og var
Þóra Brynjólfsdóttir kosin í
hennar stað ásamt Signýju.
Stjórn KRFÍ skipa nú:
Sólveig Ólafsdóttir, formaður
Björg Einarsdóttir, varaformaður
Lára Sigurbjörnsdóttir, ritari,
Sigríður Anna Valdimarsdóttir,
gjaldkeri,
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Fanney Long Einarsdóttir
Guðrún Gísladóttir
Margrét Einarsdóttir
Valborg Bentsdóttir
— Konan og dagurinn
Framhald af bls. 27
fjöllin eru heppileg mótív. Það er
líka hægt að veiða lax. Guði sé lof
fyrir áhugamálin, þegar allt
annað bregst.
Konan gengur inn til manns-
ins. Lítil, feimin og blíð. Dálítið
sek. Mátulega sek. Gæti verið
saklaus.
Vertu ekki reiður. Ég verð svo
hrædd,ef þú ert reiður.
Maðurinn lítur á hana, kalt,
hlutlaust. Hún gengur alveg til
hans, og leggur höndina á öxl
hans. Hann kippist aðeins við,
lætur svo gott heita.
— Við skulum vera sátt, vinur.
Þú trúir engu ljótu um mig. Mig,
móður barnanna þinna. Þú gætir
aldrei trúað neinu ljótu um mig,
gætirðu það?
Maðurinn lítur upp. Hann er
að bráðna, hann er svo fljótur að
bráðna. Hann er sérlega þægi-
legur og hentugur maður.
— Það leit svo út . . .
Hún leyfir honum ekki að ljúka
setningunni.
— Það væri ekki líkt þér að
dæma eftir líkum, heldur stað-
reyndum. Nema þú sért ekki sá
maður, sem ég hef trúað að þú
værir. Gáfaður, öruggur, hleypi-
dómalaus. Kannski mér hafi
skjátlast. Kannski bregst allt, sem
maður trúir á . . .
Konan kann að tala við mann-
inn sinn. Þau sættast og hann er
ánægður, bara dálítið þreyttur.
Þau drekka koníak með kvöld-
kaffinu. Þau gera það stundum til
hátíðabrigða. Hún undirbýr
sveitadvöl sína. Maðurinn er
samþykkur. Hún hefði gott af að
fara í sveit um tíma, og nota sól-
ina. Og svo getur hann heimsótt
hana um helgar.
Konan er fegin að sofna í
kvöld. Hún er þreytt eftir langan
og tilbreytingarlausan dag. A
morgun fer hún upp í sveit.
Kannski verður sólskin. Ef til vill
skemmtilegt fólk. Kannski verður
eitthvað.
Annáll
Framhald af bls. 31
—- Tillaga til þingsályktunar um setningu
löggjafar um jafnrétti kynjanna lögð
fram á Alþingi af nokkrum þingmönn-
um A Iþýðuflokksins. (60. mál)
— Frumvarp til laga um breytingar á
Ijósmœðralögum frá 1933 er enn á ný
lagt fram á Alþingi. Breytingarnar
miðast aðaltega við kjör umdœmisljós-
mœðra.
— Frumvarp til laga um breytingar á al-
mannatryggingarlögum flytur Vilborg
Harðardóttir þannig, að meðlag greiðist
alltaf strax frá fœðingu barns — ekki
beðið eftir viðurk. á faðerni bamsins.
(nóvember — 68. mál)
— Svava Jakobsdóttir o.fl. flytja frumvarp
til laga um Lánasjóð dagvistunar-
stofnana (des. 112. mál)
— Undir lok kvennaársins samþykkti Al-
þingi að fella niður alla hlutdeild
ríkisins í rekstri ýmissa félagslegra
verkefna, svo sem til heimilishjálpar í
viðlögum, til orlofs húsmæðra, til
dvalarheimila aldraðra og til dagvist-
unarheimila fyrir börn. (Samþykkt á
Alþingi 19. des. 1975.)
— Brostnir hlekkir
Framhald af bls. 55
skipta hag smælingja, vanheilla og van-
gefinna. Á æskuárum kenndi hún um
skeið við Heyrnleysingjaskólann í
Reykjavík, en þá var þar skólastjóri fóst-
ursystir hennar, Margrét Bjarnadóttir
Rasmus. Stefanía eignaðist fjögur börn,
þrjú i fyrra hjónabandi, en eina dóttur í
því síðara.
ÞÓRHILDUR JÓNASDÓTTIR var
fædd 4. maí 1946 í Reykjavík, dáin 26.
október 1975. Foreldrar hennar voru
hjónin Hrefna Magnúsdóttir og Jónas
V aldimarsson pípulagningameistari.
Þórhildur stundaði nám í Kvennaskól-
anum í Reykjavík og Kennaraskóla fs-
lands. Hún tók kennarapróf árið 1966 og
einnig íþróttakennarapróf árið eftir. Hún
varð kennari við Laugarnesskólann í
Reykjavík árið 1967 og gegndi því starfi
til dánardags. Hún var góður og vinsæll
kennari, og það er til marks um það
traust, sem hún naut hjá starfsfélögum
sínum, að hún, svo ung, var kjörin í stjórn
Sambands íslenskra barnakennara, þar
sem hún átti sæti síðustu árin. Hún var
einmitt á ferðalagi um Vestfirði s.l. haust
í þágu Sambandsins, þegar dauða henn-
ar bar að í bílslysi. Þórhildur var gift
Stefáni Árnasyni, kennara í Garðabæ, og
áttu þau eitt barn.
Guð blessi minningu allra þessara
mætu félaga.
G.H
Hlutverkaskipti.
Amman við ungu nýgiftu
dótturdóttur sína: „Hjálpar
hann Siggi þér nokkurn tíman
við uppþvottinn?“
„Nei, en ég hjálpa honum
stundum.“
59