19. júní


19. júní - 19.06.1976, Page 63

19. júní - 19.06.1976, Page 63
Islands virkar sem öfugmæli, meðan hið almenna skólakerfi og sérskólar ýmsir sinna þessum undirstöðugreinum í engu. Matvælaframleiðsla er undir- stöðuatvinnuvegur þjóðarinnar. Almenn þekking og góðir fag- menn eru forsenda þess, að svo megi verða áfram. Guðrún Hallgrímsdóttir. Of langt gengið. „Hvar settirðu gólfklút- inn?“, sagði unga konan við eiginmann sinn, prófessorinn — barnið hafði hellt niður. Aldraðri frænku, sem var nær- stödd ofbauð og varð að orði: „Spyr hún ekki háskóla- menntaðan manninn um gólf- klút“. „Hringborð“ á Hellu Framhald af bls. 15 á heimilinu eða utan þess — frelsi hennar liggur í hennar eigin frjálsu hugsun. M Eins og allra manna. G. Konur geta ekki leyst vandamál sín á einkagrundvelli — það getur engin kona leyst t.d. dagvistunarmálin ein, það er sameiginlegt úrlausnarefni. Be. Og konur geta ekki leyst nein vandmál ef karlar gera það ekki með þeim — samvinna verður að koma til. Samvinna allra — þjóðarinnar í heild og allra hagsmunahópa þjóðfélags- ins. Bj. Erum við þá mótfallnar því að skipta fólki upp í stéttir eða hópa — viljum við ekki aukna stéttaskiptingu? Hinar. Hamingjan góða! Bj. Hvaða álit hafið þið þá á dagvistunarheimilum, sem stofnuð eru fyrir ákveðnar starfs- stéttir. Be. Ég ætlaði varla að trúa því, þegar ég las um barna- heimilið við Borgarspítalann — að þar gætu læknar og hjúkrunarfólk haft börn sín en ekki t. d. fólkið, sem ræstir stofnunina. L. Er þá ekki alveg jafn fáránlegt að reka barnaheimili fyrir stúdenta. G. Eða fyrir einstæða foreldra. Be. Þetta er spor aftur á bak, að því leyti að svona tilhögun stuðlar að stéttaskiptingu, og býður þvi þjóðfélagslega starfs- mati heim að sum störf séu verðmætari eða mikilvægari en önnur. Hvernig væru sjúkra- húsin, ef starfsfólkið væri ekki allt á sínum stað — svona skipting, þar sem allir vinna á sama stað er framandi. Bj. Verður ekki, með þessu áframhaldi, stutt skref yfir í það, í hinu almenna skólakerfi, að sérstakir bekkir verði fyrir börn lækna eða t. d. börn verslunar- fólks. Þarna átti, á vissan hátt, merkt framtak sér stað — en það beinist í þessa átt. M. Þetta er spurning um hvernig þjóðfélag við viljum skapa. Bj. Að stórum hluta er það réttur þéttbýlisbarnsins að fá að vera á leikskóla eða barnaheimili. Tilvera þess hlýtur oft að vera einhæf og ófrjó ef það á að vera mikilvægustu mótunarár sín í snauðu íbúðarhverfi e. t. v. i stóru fjölbýlishúsi og sjá ekki daglangt nema annað foreldri sitt. Aðstaða dreifbýlisbarnsins er önnur að þessu leyti. L. Oft fáum við, sem kennum á unglingastiginu þá tilfinningu að við séum búin að taka við unglingunum af foreldrunum og sitjum uppi með þá án þess að geta sinnt um þau eins og við vildum . . . Umræðuefnin eru óþrjótandi — en það hallar að kvöldi á Hellu og Beta verður að halda austur á bóginn en hinar til vesturs. Um- ræðunni er ekki lokið — e.t.v. er hún rétt að hefjast og þær munu halda henni áfram, hvert sem leiðir liggja. Dæmigert. Nýlega sá ég snotra keramikkrús í listaverkaversl- un og spurði eftir hvern hún væri. — „Ég man ekki hvað hún heitir, konan sem hefur gert þessa muni,“ var svarað, en hún er gift honum Sveini.“ Ekki sama hvernig á er haldið. „Heyrðu — ert þú ekki systir hans Björns?“ „Hann er bróðir minn.“ Misrétti?! Stjórnmálaflokkur, sem ár- lega sendir okkur hjónunum happdrættismiða — sendir eiginmanni mínum 10 miða en mér aðeins 2! 61

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.