19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 19
1. TBL. 1993
19
SKRIFSTOFU JAFNRETTISMALA
Ábyrgöarmaöur: Elsa S. Þorkelsdóttir
Eru meðgöngukvillar
höfuðverkur atvinnu-
rekandans?
í auknu atvinnuleysi
sækja karlar í
„kvennastörfin“.
Stórhuga vestfirskar
konur í atvinnusköp-
un.
. Á"-- ^
'*ir.
NORDISK FORUM -
undirbúningurinn er
kominn í gang!
Norræna jafnlauna-
verkefnið.
Fréttir frá jafnréttis-
fulltrúa Akureyrar.
Landsfundur jafn-
réttisnefnda sveitar-
félaga.
Skrifstofa jafnréttismála
Jafnréttisráö - Kærunefnd jafnréttismála
Hvað er Jafnréttisráð? Er það skrifstofan eða er það nefnd
þeirra sjö kvenna og karla sem móta stefnu stjórnvalda í jafn-
réttismálum eða er Jafnréttisráð stofnunin í heild sinni? Lög-
in um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla gera ekki
greinarmun á stofnuninni og ráöinu. ! hugum flestra er Jafn-
réttisráð þetta tvennt. Þaö hefur hins vegar oft valdiö ómæld-
um ruglingi að ekki er gerður greinarmunur á stofnuninni og
ráðinu. Á skrifstofu Jafnréttisráðs eru oft hýst ýmis verkefni,
s.s undirbúningur Norræns kvennaþings. Þessi verkefni hafa
sjálfstæða stjórn. Kærunefnd jafnréttismála hefur aðsetur á
skrifstofunni en heyrir ekki að neinu leyti undir Jafnréttisráð.
Til þess aö afmarka hvern þátt starfseminnar sem best,
var ákveðið nú fyrir skömmu að taka upp heitið Skrifstofa jafn-
réttismála fyrir stofnunina. Skrifstofa jafnréttismála þjónar
þannig bæði Jafnréttisráði og kærunefnd jafnréttismála.
Skrifstofa jafnréttismála hýslr einnig ýmis tímabundin verk-
efni, eins og undirbúningsnefnd Nordisk forum 1994 og
starfsmann hennar. Af þessu tilefni var einnig ákveðiö að
breyta bréfsefni stofnunarinnar, bæði lit og uppsetningu.
Skrifstofa jafnréttismála er nýtt heiti og okkur ekki enn tamt.
Þaö er hins vegar von okkar að hinu nýja nafni veröi vel tekiö
og að þaö öðlist með tímanum þann sess í vitund okkar aö
vera ríkisstofnunin sem sameinar á einum stað ýmis verkefni
og aögerðir, nefndir og ráð á vegum hins opinbera sem öll
hafa sama markmiö - aö vinna aö jafnri stöðu kvenna og
karla.