19. júní


19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 31

19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 31
1. TBL. 1993 31 þeirra sem búa í óvígðri sambúð. Kynna lagalegan mun á sambúð giftra hjóna og þeirra sem eru í óvígðri sambúð. Leiðbeinandi: Svala Thorlacius Fjármál I Markmið: Að kenna algengustu bankavið- skipti og fjalla um fjármálalegar skuldbind- ingar. Leiðbeinandi: Kristín Sigurðardóttir Fjármál II Markmið: Að kenna þægilegar aðferðir við að skipuleggja fjármál einstaklinga. Leiðbeinandi: Kristín Sigurðardóttir Ræðumennska og rundarsköp Markmið: Að kenna og þjálfa ræðuskrif, ræðuflutning, framkomu og fundarstjórn. Leiðbeinandi: Sólveig Ólafsdóttir Greinaskrif Markmið: Að kenna og þjálfa skrif og framsetningu efnis, þ.á.m. gerð fyrirsagna og fréttatilkynninga. Leiðbeinandi: Vilborg Harðardóttir Framkoma í fjölmiölum Markmið: Að kenna og þjálfa framkomu í sjónvarpi og útvarpi. M.a. verður fjallað um viðtalstækni, útlit og raddbeitingu. Leiðbeinandi: Sigrún Stefánsdóttir Námskeiðin eru mismunandi að lengd, allt frá einu kvöldi til átta. Þau eru ýmist fræðslu-. eða þjálfunarnámskeið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við fimmtán til þess að námskeiðin nýtist þátttakendum sem best. Reynt er að stilla þátttökugjaldi í hóf. Hafið samband við skrifstofuna til að fá nánari upplýsingar um námskeiðin. Ritgeröarsamkeppni Verið er að undirbúa ritgerðarsam- kcppni meðal unglinga í efstu bekkjum grunnskóla undir titlinum: „Stelpur og strákar, stöndum við jafnt árið 2000?“ Gert er ráð fyrir að keppnin verði í byrjun vetrarstarfs skólanna næsta haust. VILTU GERAST ÁSKRIFANDI? Nýjum áskriftum er veitt móttaka á skrifstofu Kven- réttindafélags íslands í síma 91-18156 alla virka daga á milli 13 og 15. Einnig er unnt að tala skilaboð inn á símsvara með nafni, kenni- tölu og heimilisfangi. Skrifstofa jafnréttismála (Jafnréttisráð) tekur við nýj- um áskriftum í símum 91- 27420/27877/622421 alla virka daga á milli 9 og 17. SUND HEILSUNNAfí VEGNA IÞROTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ REYKJAVÍKUR m

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.