19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 29
1. TBL. 1993
29
Fréttir úr starfi KRFÍ
Nú, þegar 19. júní er farið að
koma út oftar en áður, er ætl-
unin að taka nokkrar síður í
blaðinu undir fréttir af starfi
félagsins, bæði rifja upp það
sem gerst hefur undan farið og skýra frá
áformum um helstu viðburði sem fram
undan eru.
Þegar litið er yfir tímann frá því ársritið
19. júní kom út á sínum hefðbundna tíma
í júní s.l. hefur ýmislegt verið á döfinni hjá
KRFÍ. Skal hér getið þess helsta.
KRFÍ 85 ára
KRFÍ átti stórafmæli á árinu 1992. Þá
voru 85 ár liðin frá stofnun þess. Eiginleg-
ur afmælisdagur félagsins telst 27. janúar
en þann dag, árið 1907, var félagið form-
lega stofnað af fimmtán konum á fundi í
Þingholtsstræti 18 í Reykjavík. Hét það í
upphafi „Hið íslenzka Kvenréttindafélag".
Afmælisins var sérstaklega minnst með
hátíðardagskrá í upphafi landsfundar í
september, eins og fram kemur hér á eftir.
Veslnorræna kvennaþingið
Sumarið einkenndist af undirbúningn-
um fyrir Vestnorræna kvennaþingið, sem
haldið var á Egilsstöðum seint í ágúst og
svo þinginu sjálfu, þar sem
nokkur hundruð konur frá
Grænlandi, Færeyjum og
íslandi báru saman bækur
sínar og ræddu um stöðu
jafnréttismála í heimalönd-
um sínum í þrjá daga. Það
voru þó ekki aðeins hinar
alvarlegri hliðar lífsins sem
velt var upp á þinginu.
Konur léku listir sínar,
söngur, dans, ljóð og leikur
voru ívaf þingsins og jafn-
framt höfðu konur til sýnis
og sölu fagra gripi af ýms-
um gerðum.
.k.
§
7 Landslundiiriiiii
24.-26. seplember
Það er svo sem engin
r nýlunda að haldinn sé
1“ Iandsfundur hjá KRFÍ. Það
hefúr verið gert fjórða
hvert ár undanfarna áratugi. Engu að síður
er það töluverður viðburður í starfi félags-
ins. Þar eru teknar stefnumarkandi ákvarð-
anir um störf félagsins fyrir næsta fjögurra
ára tímabil, kosinn hluti stjórnar og rædd
mál sem efst eru á baugi hverju sinni.
Síðastliðið ár var landsfundarár og var
fundurinn haldinn seint í september.
Helstu viðfangsefnin voru eftirfarandi:
■ lálíöíirdagskrá í lilefni almadis
félagsins
Landsfundurinn hófst með hátíðadag-
skrá í tilefni af 85 ára af-
mæli félagsins á Hótel
Sögu fimmtudagskvöldið
24. sept.
Félagsmálaráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir, ávarp-
aði samkomuna og færði
félaginu kærkomna afmæl-
isgjöf, tvö hundruð þúsund
krónur.
Margt var til skemmtun-
ar á hátíðafundinum:
Annadís Gréta Rúdólfs-
dóttir flutti erindi um
rannsókn á hinum íslenska
kvenleika, félagar í íslenska
dansflokknum sýndu, Alda
Ingibergsdóttir söng við
undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar, félagar í Al-
þýðuleikliúsinu leiklásu
þátt úr verki, Hallfríður
Ólafsdóttir lék á flautu við
undirleik David Knowles