Sólskin - 01.07.1967, Side 11

Sólskin - 01.07.1967, Side 11
loksins, — svo þú fannst fuglinn niðri í fjöru. Fórst þú nú alla leið inn í Vatnagarða? Þú veizt, að ég hef beðið þig þess að fara ekki svo langt í burtu og svo ertu nú ekki nema sjö ára, þótt þú sért stór eftir aldri, — og nú brosti mamma við drengnum sínum. — Nei, mamma. Ég fór bara inn í Laugar- nes og þar var aumingja fuglinn og kúrði sig niður milli steina. Ég fann, að honum var voðalega kalt. Það er líka haust, og hann veik- ur með brotinn vœng. Veiztu, mamma. Ég œfla að búa um hann niðri í miðstöðvarher- bergi. Setja tuskur í kassa svo að vel fari um hann. Svo þarf hann að fá vatn og mat, þá kannski batnar honum. — Mamma brosti við drengnum sínum og sagði: — Jú, Nonni minn. Ég skal hjálpa þér, en það er ekki víst að honum batni. Svo er þetta sjófugl, svartfugl sýnist mér, og þeir kunna ekki við sig í landi. En við skulum sjá til. — Nonni og mamma fóru niður í kjallara, þar sem þau fundu lítinn pappakassa. Lét mamma mjúkar ullartuskur í botn kassans. 9

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.