Sólskin - 01.07.1967, Page 30
kemur út í vorið og hefur tíma til að lesa bók
lífsins, sem er opin alla daga. Það er hœgt
að vera fullviss um það, að é bak við allt þetta
býr kraftur, sem er guð í alheims geimi og
guð í sjálfum þér. öll störf og hugsanir barns-
ins eiga því að vera í anda þessa kraftar, lúta
honum og tilbiðja hann, svo að maðurinn geti
verið öruggur hlekkur í keðjunni.
Gott er því að nota vorið og sumarið til að
frœðast um allt, sem stendur í bók néttúrunn-
ar. Skilja af hverju fiðrildin eru svona samlit
sumum blómum, af hverju sum blómin eru
svona litfögur, af hverju ánamaðkarnir koma
til hélfs upp úr moldinni og leggjast hlið við
hlið. Af hverju þrösturinn syngur svona mikið
á vorin. Það er margt, sem mannsaugað sér
á vorin. Þá eiga börnin að spyrja þá fullorðnu
og fá svör við því, sem þau ekki skilja.
Vorið er tími ástarinnar í lífi náttúrunnar.
Fuglarnir og blómin opinbera þá ást sína. Það
er unaðslegt að fylgjast með þeirri tjáningu
blóma og fugla, sem ekki geta talað, en opin-
bera tilfinningar sínar á annan hátt. Notið
stundirnar og frœðist um allt þetta á nœsta
sumri.
28