Sólskin - 01.07.1967, Side 53

Sólskin - 01.07.1967, Side 53
þetta, vill hann fyrir hvern mun fá eplið og hyggur, að hann muni trautt fá þann hlut, er betur geðjist kóngsdóttur. Biður hann kaup- mann því að sélja sér eplið og segir honum frá öllum málavöxtum, og að undir því sé ein- göngu komin tímanleg velferð sín, að hann verði ekki eftirbátur brœðra sinna í gripaút- vegunum. Rann kaupmanni svo til rifja sögu- sögn kóngssonar, að hann selur honum eplið, og heldur svo kóngsson aftur heimleiðis, glað- ur og ánœgður. Segir nú ekki af þeim brœðrum, fyrr en þeir eru allir komnir saman í áður ákveðinn stað, segja þeir hver öðrum af ferðum sínum allt af létta. Hugsar nú elzti bróðirinn sér til hreyf- ings, að hann skuli þó verða fyrstur til að sjá kóngsdóttur og hvernig henni líði. Tekur hann því upp sjónpípuna og stefnir henni heim til borgar. Hann sér þá, hvar kóngsdóttir liggur í sœng sinni, náföl og að dauða komin. Kon- ungurinn, faðir hans, og hinir œðstu höfðingj- ar við hirðina, standa í kring um sœngina í svörtum sorgarbúningi og hryggir í huga, og bíða síðasta andvarps hinnar fögru kóngs- dóttur. Þegar kóngsson sá þessa sorgarsjón, 51

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.