Sólskin - 01.07.1967, Page 59
Segir hún honum, að hún hafi frétt um allt hið
mótdrœga, er ó daga hans hafi drifið, og um
það, er hann strauk fró föður sínum. — Kvikn-
aði þó hjó mér heitasta óst ó þér og löngun
til að bœta úr böli þínu. Skaltu vita, að ég
sendi riddarana 10 til að leita þig uppi og hafa
þig hingað. Vil ég nú bjóða þér hér að vera
og allt mitt ríki til forróða, og skal ég leitast
við að bœta úr böli þínu, það ég megna. —
Og þó að kóngsson vœri mjög daufur og
óhyggjufullur, þó sér hann þó ekki annað róð
en að þekkjast boð þetta og taka róðahagn-
um við meykónginn. Er því stofnað til veizlu
mikillar, og þau saman vígð, að þess lands
siðvenju. Tekur hinn ungi kóngur þegar við
ríkisstjórn allri og ferst hún vel úr hendi. Líða
svo fram nokkrir tímar.
Nú víkur sögunni aftur til hins gamla kóngs,
að eftir hvarf kóngssonar gerðist hann mjög
mœddur, með því að hann var og hniginn ó
efra aldur. Drottning hans var og fyrir nokkru
önduð. Það var einn dag, að förukona nokkur
kom til hallarinnar. Hún var fróð mjög um
marga hluti og kunni fró mörgu að segja.
Hendi kóngur mikið gaman að sögum hennar,
57