Sólskin - 01.07.1967, Qupperneq 62
með því að þú hefur gengið á mitt vald, og
þess annars, að þú ert son minn, þá nenni ég
ekki að láta drepa þig, en þrjár þrautir mun
ég leggja fyrir þig, er þú skalt hafa unnið að
ári liðnu, og liggur líf þitt við. Hin fyrsta er,
að þú skalt fœra mér tjald það, er rúmi 100
manns, en megi þó fela í lófa sínum. Önnur
er, að þú skalt fœra mér vatn það, er lœknar
öll mein. Hin þriðja er, að þú skalt koma hing-
að þeim manni og sýna mér, er ólíkur sé öll-
um öðrum mönnum í heiminum. —
— Hvert vísar þú mér til að vinna þrautir
þessar? — segir hinn ungi kóngur.
— Það skaltu segja þér sjálfur, — mœlti
hinn.
Snýr hinn gamli kóngur þá á braut, en ungi
kóngurinn býr sig þegar til heimferðar, og varð
ekki af kveðjum. Segir ekki af ferðum hans,
fyrr en hann kemur heim í ríki sitt. Er hann
þá mjög daufur og þungt í skapi, og gengur
drottning hans freklega á hann, hvað að hon-
um gangi. En hann segir það engu skipta.
Drottning mœlti: — Veit ég, að fyrir þig
munu hafa verið lagðar þrautir þœr, er ekkí
mun auðvelt að vinna. En hvað dugir þér að
60