Sólskin - 01.07.1967, Blaðsíða 73
eggjum í. Eggin ultu til jarðar og fóru í mola.
Kom þá út úr öðru egginu ungur örn, en í hinu
lá lítill gullhringur. Örninn óx og óx, unz hann
var orðinn á stœrð við mann. Hann skók vœng-
ina, eins og vildi hann reyna, hvað þeir þyldu,
hóf sig lítið eitt frá jörðu og sagði:
— Þú hefur leyst mig úr álögum. Þiggðu af
mér í launaskyni hringinn, sem var í hinu egg-
inu. Það er óskahringur. Ef þú snýrð honum á
fingri þér og óskar þér einhvers um leið, þá
mun það þegar rœtast. En það er aðeins ein
ósk í hringnum. Þegar þú ert búinn að óska
þér hennar, þá missir hringurinn allan undra-
mátt og verður að venjulegum hring. Hugsaðu
þig þess vegna vel um, áður en þú óskar
þér einhvers, svo að þú þurfir ekki að iðrast
neins. —
Að svo mœltu hóf örninn sig í háa loft, hnit-
aði marga og stóra hringa yfir höfði bóndans
og sveif svo burt til austurs.
Bóndinn tók hringinn, dró hann á fingur sér
og hélt heimleiðis. Um kvöldið kom hann til
borgar einnar. Þar rakst hann á gullsmið, sem
hafði á boðstólum sœg af dýrum hringum.
Bóndinn sýndi honum hring sinn og spurði
71