Sólskin - 01.07.1967, Side 87

Sólskin - 01.07.1967, Side 87
En eitt var sameiginlegt með öllum Indíán- um. Þeim var áhugamál að verja landið sitt fyrir hvítu mönnunum, sem komu nú á skip- um í stórhópum og vildu setjast að á beztu stöðum landsins, þar sem Indíánarnir höfðu verið einvaldir frá alda öðli. Lenti brátt í bardögum milli rauðra og hvítra manna. Hvorugir skildu mál hinna, og í skiln- ingsleysi börðust þeir upp á líf og dauða um landið, sem gat fœtt þá alla og miklu, miklu fleiri menn. Indíánum fannst hvítu mennirnir vera að taka landið sitt í óleyfi, en hvítu mennirnir töldu sig hafa sama rétt til landsins, eins og þeir sem fyrir voru. Auk þess litu þeir á Indí- ána eins og réttlausa villimenn. Hvítu mennirnir voru miklu betur vopnum búnir. Þeir voru til dœmis með hið œgilega vopn, byssuna, og notuðu hana þegar í bar- daga var komið. Hvítu mennirnir gátu því rek- ið Indíánana undan sér og hrakið þá af þeim stöðum, sem bezt var að dvelja á. En rauðu mennirnir fylltust hatri gegn þessum hvítu yfir- gangsseggjum og notuðu hvert tœkifœri til þess að lœðast að hvítu mönnunum. 85

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.