Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 6
6 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Tannlæknir á Suðurnesj- um hefur verið ákærður fyrir að svíkja rúmar 129 þúsund krónur út úr Tryggingastofnun (TR) með því að hafa rukkað fyrir tannvið- gerðir sem hann ekki vann. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í fyrradag. Verjandi mannsins, Gestur Jónsson hrl., segir málatilbúnað undarlegan og hefur gert kröfu um að málinu verði vísað frá dómi. Þingfesting málsins á sér lang- an aðdraganda. TR kærði tann- lækninn til lögreglu fyrir trygg- ingasvik árið 2006. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum og var jafnvel talið, samkvæmt upp- lýsingum sem þeim voru veittar, að svikin næmu allt að 200 millj- ónum króna síðustu þrjátíu ár, uppreiknað til nóvember 2007. Samkvæmt ákærunni sem þing- fest hefur verið er tannlæknin- um gefið að sök á hafa á árunum 2003 til 2006 svikið út rúmar 129 þúsund krónur vegna 34 tann- viðgerða í ellefu einstaklingum. Sjúkratryggingar Íslands gera einkaréttar kröfu í málinu um að tannlækninum verði gert að endur- greiða mest ríflega 23 milljónir króna en minnst 129.412 krónur. Þá tóku forráðamenn Sjúkra- trygginga Íslands þá ákvörðun fimm vikum áður en tannlæknin- um var birt ákæran að ekki yrði um að ræða frekari endurgreiðslur frá stofnuninni vegna tannlæknis- verka hans. „Þessi 23 milljóna króna krafa er ekki studd neinum haldbærum rökum, heldur áætluð út í loftið.“ segir Gestur Jónsson hæstaréttar- lögmaður, verjandi tannlæknisins. „Rannsóknin er búin að taka rúm fjögur ár og starfsmenn kæranda hafa opinberlega sakað tannlækn- inn um stórfelld fjársvik. Eftir öll þessi ár telur lögreglan, eftir að dómkvaddur sérfræðingur hafði skoðað umrædda sjúklinga, að ekki sé unnt að sjá merki um tann- viðgerðir fyrir rúmar hundrað þúsund krónur. Alvarlegast er þó að ákæra er gefin út án þess að undir tannlækninn hafi verið bornir þeir reikningar sem haldið er fram að hann hafi framvísað ranglega. Hann telur sig hafa full- nægjandi skýringar á þeim öllum. Séu sakar giftir ekki bornar undir sakborning er mál ekki fullrann- sakað og svo er í þessu tilviki.“ Gestur segir að tannlæknir á vegum landlæknis hafi skoðað tannviðgerðir sjúklinganna árið 2006. Sá hafi staðfest að minnsta kosti fimm viðgerðanna sem nú er sagt að vanti. „SÍ skrifuðu ráðherra bréf 4. nóvember þar sem sagt er frá því að búið sé að ákæra tannlækninn. Þar til í síðustu viku vissi hvorki ég né hann að ákæra hefði verið gefin út.“ jss@frettabladid.is DÓMSMÁL „Í júlí síðastliðnum gaf Lögreglustjórinn á Suðurnesj- um Sjúkratryggingum Íslands kost á því að koma á framfæri einkaréttarkröfu vegna meintra afbrota tannlæknisins,“ segir Steingrímur Ari Arason, for- stjóri Sjúkratrygginga Íslands. „Í framhaldinu lagði SÍ fram skaðabótakröfu byggða á meint- um auðgunarbrotum tímabilið 2003 til 2010. Krafa SÍ er byggð á umfangi reikningsgerðar tann- læknisins þessi ár vegna tann- viðgerða sem falla undir sjúkra- tryggingarnar.“ Steingrímur Ari segir SÍ hafa stöðvað þátttöku sjúkratrygg- inga í kostnaði vegna tannlækn- inga tannlæknisins frá 1. október síðastliðnum á þeirri forsendu að hann uppfylli ekki sett skilyrði samkvæmt reglugerð sem tekið hafi gildi 15. september 2010. „Með öðrum orðum, stöðvun greiðsluþátttökunnar hefur það eitt með ákæruna að gera að byggt er að hluta til á sömu upp- lýsingum, það er matsgerð dóm- kvadds sérfræðings í tannlækn- ingum frá 12. júlí 2010,“ útskýrir Steingrímur Ari. „Hún staðfest- ir að tannlæknirinn hafi krafið sjúklinga sína um greiðslur fyrir viðgerðir sem ekki hafa verið framkvæmdar.“ Ekki náðist í Reyni Jónsson tryggingatannlækni hjá Trygg- ingastofnun við vinnslu fréttar- innar. - jss STEINGRÍMUR ARI ARASON Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. TANNVIÐGERÐIR Tannlæknir á vegum landlæknis skoðaði tannviðgerðir sjúklinga mannsins árið 2006. Sá staðfesti fimm viðgerðanna sem nú er sagt að vanti. 200 milljónir urðu að 129 þúsund krónum Tannlæknir á Suðurnesjum hefur verið ákærður fyrir fjársvik upp á 129 þúsund krónur með að hafa rukkað fyrir 34 viðgerðir sem hann ekki vann. Rannsókn málsins tók fjögur ár. Sjúkratryggingar krefjast endurgreiðslu á 23 milljónum. tökum notuð barnaskíði og skó upp í ný SKÍÐASKIPTIMARKAÐUR BRETLAND Julian Assange, stofnandi Wikileaks, gaf sig fram við lögreglu í London í gær og var færður í fang- elsi vegna handtökubeiðni frá Sví- þjóð, þar sem Assange hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Assange þáði ekki boð um að greiða tryggingu gegn því að verða látinn laus meðan mál hans væri til afgreiðslu í Bretlandi. Hann ætlar hins vegar að berjast gegn því að verða framseldur til Svíþjóðar. Tvær konur í Svíþjóð hafa kært Assange til lögreglunnar vegna atburða sem sagðir eru hafa átt sér stað í ágúst síðastliðnum. Ein kæran er fyrir nauðgun, tvær fyrir kynferðislega áreitni og ein fyrir ólögmæta valdbeitingu. Nauðg- unarkæran er flokkuð þannig hjá sænska dómstólnum, að hún lúti að „vægara afbrigði“ nauðgunar, sem getur leitt til fangelsisdóms til allt að fjögurra ára. Samkvæmt breskum fjölmiðlum virðist sem önnur kvennanna saki Assange um að hafa notað ónýtan smokk, en hin saki hann um að hafa notað sig kynferðislega án smokks þegar hún var sofandi. Talsmenn Assange hafa sumir sagt kærurnar sprottnar af annarlegum rótum, jafnvel að undir- lagi Bandaríkjanna. Lögfræðingur kvennanna hafnar öllum ásökunum af því tagi. - gb Julian Assange handtekinn í Bretlandi þar sem hann gaf sig fram í gær: Berst gegn framsalskröfunni JULIAN ASSANGE Tvær konur hafa sakað hann um kynferðisbrot. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Eiga íslensk stjórnvöld að rann- saka meintar njósnir Kínverja hér á landi? Já 56,7% Nei 43,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að eyða minna í jóla- gjafir í ár en í fyrra? Segðu þína skoðun á visir.is TÆKNI Stafræni myndabankinn Getty Images International hefur stefnt eignarhaldsfélaginu Fronti, eiganda Barnaland.is og fleiri vefja, fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur. Ástæðan er notkun á mynd- um sem Frontur hefur ekki greitt fyrir. Fyrirtækið krefst tveggja til þriggja milljóna króna í skaða- bætur vegna notkunar á myndum sem eiga að hafa birst í leyfisleysi á vefjum Fronts, sem hefur farið fram á að málinu verði vísað frá dómi. - sv Getty Images fer í mál: Stefnir síðunni Barnaland.is Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands: Krafan byggð á meint- um auðgunarbrotum KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.