Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 44
28 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR Plötuútgáfan Record Records ætlar að fagna uppskeru árs- ins með veglegri tónleikaveislu á Faktorý á föstudags- og laugar- dagskvöld. Ensími, Bloodgroup, Of Monsters and Men og Sing For Me Sandra stíga á svið fyrra kvöldið en Agent Fresco, Moses Hightower, For a Minor Reflect- ion og Útidúr á því síðara. „Þetta var í fyrra á Sódómu og gekk ósköp vel. Þá var þetta hald- ið á miðvikudegi en það var bara eins og á laugardagskvöldi,“ segir Haraldur Leví hjá Record Records. „Núna leigðum við nýtt hljóðkerfi og þetta verða stærstu tónleikar ársins á Faktorý.“ Miðaverð er 1.000 krónur á stakt kvöld og 1.500 kr. á bæði kvöldin. Húsið verður opnað kl. 22 bæði kvöldin og hefjast tónleikarnir hálftíma síðar. Forsala miða fer fram á Midi.is, í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi og Brimi í Kringlunni. - fb Fagna plötuútgáfu AGENT FRESCO Hljómsveitin Agent Fresco stígur á svið á laugardagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gamanleikarinn Will Ferrell er orðinn þreyttur á því að leika sömu persónurnar og vill spreyta sig á vondum körlum í auknum mæli. Hann lék hinn illa Mustafa í Austin Powers-myndunum og hafði mjög gaman af því. „Ég hef ekki feng- ið að prófa þetta nógu oft. Mustafa var vondur en hann var í aukahlut- verki og entist ekki lengi,“ sagði Ferrell. „Illska hans fékk ekki að njóta sín nógu vel.“ Nýjasta mynd Ferrells er teikni- myndin Megamind. Þar leikur hann náunga sem er illur en sýnir á sér mjúkar hliðar. „Það var gaman að leika í Megamind. Hann lítur út fyrir að vera illur en síðan kemst fólk að því að hann er góður í sér og vill bara vera elskaður.“ Vill meiri illsku WILL FERRELL Leikarinn vill spreyta sig á fleiri illum persónum. Dóttir gamanleikarans Jims Carrey, Jane, hefur skilið við eiginmann sinn Alex Santana eftir einungis eins árs hjónaband. „Þau verða áfram vinir og munu annast í sameiningu uppeldi níu mánaðar sonar þeirra,“ sagði blaðafulltrúi leikarans. Jane Carrey, sem er 23 ára, eignaðist Jackson Riley, eina barn þeirra fyrrverandi hjóna, í febrúar síðastliðnum. Carrey og Santana, sem eru bæði tónlistar- menn, giftu sig í nóvember. Jane er eina barn Carrey og fyrrver- andi eiginkonu hans Melissu Womer. Þau giftust 1987 en skildu átta árum síðar. Dóttir Jims Carrey skilin JIM CARREY Dóttir gamanleikarans er skilin eftir aðeins eins árs hjónaband. Börkur Sigþórsson gerir áhuga- verða stuttmynd eftir handriti Stu- art Beattie. Í aðalhlutverki er Björn Thors sem leikstjórinn segir að sé besti leikari sinnar kynslóðar. „Við skutum hluta myndarinnar síðasta vetur og núna erum við að klára,“ segir Börkur Sig- þórsson, leikstjóri stuttmyndarinnar Come to Harm. Myndin skartar Birni Thors í aðalhlut- verki, en með önnur hlutverk fara Þrúður Vil- hjálmsdóttir, Magnús Ragnarsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Jón Páll Eyjólfsson, svo einhverjir séu nefndir. Börkur segir þetta enga venjulega stuttmynd, heldur sé hún hluti af mun stærra verki. „Þetta verkefni kom til mín í gegnum fyrirtæki sem ég tengist í Los Angeles en það fyrirtæki tengist áströlsku framleiðslufyrirtæki sem á í rauninni upphafið að þessu öllu saman,“ segir Börkur. Framleiðslufyrirtækið ástralska fékk hand- ritshöfundinn Stuart Beattie til þess að skrifa gróft handrit að stuttmynd og síðan fengu sex leikstjórar, hver úr sinni áttinni, handritin í hendurnar. Þegar allir leikstjórarnir hafa lokið tökum á myndunum, verða þær settar saman í eina kvikmynd í fullri lengd. „Þetta er svolítið eins og þú sæir sex mismunandi uppfærslur af sama leikverkinu,“ segir Börkur. Stuart Beattie er þekktur handritshöfund- ur en úr smiðju hans eru myndir á borð við Collateral, Australia og Pirates of the Caribbean svo einhverjar séu nefndar. Börkur segir tök- urnar hafa gengið ágætlega. „Þetta var frekar lengi að komast af stað en þetta fer að klárast.“ Eins og áður sagði fer Björn Thors með aðal- hlutverkið í myndinni. „Við Bjössi erum gamlir félagar og höfum unnið mikið saman í gegnum tíðina. Hann er einn af mínum nánari vinum og er að mínu mati besti leikari sinnar kynslóðar. Það var frekar augljóst frá upphafi hver myndi fara með aðalhlutverkið,“ segir Börkur, en hann vann myndina í samstarfi við Kvikmyndamið- stöð Íslands og íslenska framleiðslufyrirtækið Republik. kristjana@frettabladid.is STÓR NÖFN Í STUTTMYND BARKAR STYTTIST Í STUTTMYNDINA Björn Thors (að ofan) og Þrúður Vil- hjálmsdóttir fara með stór hlutverk í myndinni Come to Harm sem Börkur Sigþórsson leikstýrir. Jólakaupauki Flottur hátalari fylgir GSM tilboði á meðan birgðir endast. Vertu með „four- square“ í símanum Jólainneign 1.000 kr. á mánuði í 12 mánuði fylgir. Samsung Galaxy 5 0 kr. útborgun m.v. 12 mánaða greiðsludreifingu eða 12x3.325 kr.* www.ring.is / m.ring.is www.facebook.com/ringjarar E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 6 3 6 *Dreifingargjald 250 kr. á mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM folk@frettabladid.is 25 KG hafa farið af söngkonunni Jennifer Hudson síðan hún sló í gegn í American Idol árið 2004.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.