Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 8. desember 2010 21 Nýjasta útspil í sparnaði Sjúkra-trygginga Íslands er að aftur- kalla heimahjúkrun. Þarna er verið að ráðast á garðinn þar sem hann er ekki til staðar. Hversu lágt er hægt að leggjast þegar ráðist er á langveik börn sem ekki geta varið sig með því að taka frá þeim heimahjúkrun. Foreldrar þessara barna eru yfirleitt svo örmagna að þeir hafa heldur ekki kraft til að bíta frá sér. Fólkið sem er ábyrgt fyrir þessu ætti að skammast sín og segja upp strax ef þetta er það eina sem þeim dettur í hug til að spara. Hvað með stjórnlagaþing þar sem verið er að eyða 500 milljón- um að minnsta kosti? Sendiráð sem eru dekkuð upp fyrir 700 milljón- ir? Hvernig væri að fara að kenna þessu fólki stærðfræði aftur? Svona lítur dæmið út: Fyrir eina heimsókn heimahjúkrunar borg- ar ríkið 10.000 kr. Fyrir innlögn í einn dag borgar ríkið 130.000 kr. Foreldrar langveikra barna spara ríkinu 120.000 kr. á dag með því að hafa barnið heima. Á einum mánuði spara foreldrar langveikra barna ríkinu 3.600.000 kr. ef barnið væri heimsótt á hverj- um degi en svo er ekki þannig að sparnaður er meiri. Þetta gera 43.200.000 á ári á hvert barn. Þetta er raunverulegur sparnaður. Vilja ráðamenn fá þessi 80 langveiku börn inn á spítalann aftur? Það myndi kosta 3.456 milljónir á ári í auknum framlögum ríkisins ef öll þessi börn legðust inn sem þau hafa fullan rétt á að gera. Þrjúþúsund fjögurhundruðfimmtíuogsexmillj- ónir á ári. Það er því ekki flókið að sjá að það er alls enginn sparnaður fólginn í því að leggja niður heima- hjúkrun þvert á móti miklu, miklu meiri kostnaður. Er ekki réttara að klappa foreldr- unum á bakið, þakka þeim kærlega fyrir að halda börnunum sínum heima og jafnvel rétta þeim frek- ari hjálparhönd heldur en að stinga þá svona rækilega í bakið? Ef þetta er eitthvert pólitískt útspil af hálfu Sjúkratrygginga til að fá frekari fjárlög þá er það ómaklegt að spila svona með lang- veik börn og fjölskyldur þeirra. Það ætti að taka þessa ráðamenn á hné og rassskella þá rækilega á miðju Lækjartorgi til að fá þá til að vakna til lífsins. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir því að það eru ekki allir með milljón á mánuði fyrir að taka rangar ákvarðanir ofan í rangar ákvarðanir og fá að halda vinnunni. Sum okkar þurfa að bera ábyrgð á gjörðum okkar. Það ætti að rassskella suma ráðamenn AF NETINU Skýrslur sendiherra Íslands Fréttamönnum Ríkisútvarps fannst það fréttnæmt, að sendiráð Banda- ríkjanna á Íslandi skyldi fylgjast með mönnum og málefnum og ekki síst stjórnmálahorfum og þróun á Íslandi. Það er hlutverk sendi- ráða að vera augu og eyru lands síns í gistiríkinu. „Afla upplýsinga“ sagði Jón Baldvin fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra í Bandaríkjunum í Ríkisútvarpinu (06.12.2010) Sendiherrar Íslands sendu til skamms tíma, og gera líklega enn, skýrslur ársfjórðungslega til utanríkisráðuneytisins í Reykjavík um stjórnmál og efnahagsmál í gistiríkinu. Ekki fer hjá því að í slíkum skýrslum sé vikið að sam- tölum við nafngreinda einstaklinga stjórnmálamenn og frammámenn í atvinnulífi og lagt mat á menn og málefni. Umfjöllun Ríkisútvarpsins um skýrslur bandaríska sendiráðs- ins í [Reykjavík] hefur á stundum verið einfeldningsleg , barnaleg og ekki borið vott um djúpstæða þekkingu. Svo var Jón Baldvin sagður sendiherra Bandaríkjanna (!) í morgunútvarpi Rásar tvö (06.12.2010). Engum datt í hug að leiðrétta. Sama kurteisin við hlustendur. Sagt var í morgunútvarpi Rásar tvö (06.12.2010), að Kínverjar hefðu stundað iðnaðarnjósnir á Íslandi. Hið rétta er að starfs- menn bandaríska sendiráðsins á Íslandi hafa haldið þessu fram. Ekkert slíkt liggur fyrir eða hefur verið sannað. Hér er ekki verið að bera blak af Kínverjum, heldur einungis benda á að enginn er sekur fyrr en sekt er sönnuð. Í þessu máli hefur sekt ekki verið sönnuð. Fjölmiðlamenn eru ekki dómarar í sakamálum. blog.eyjan.is/esg Eiður S. Guðnason Þeirra er valið Það er sótt að WikiLeaks úr öllum áttum. Nú ætla Visa og Mastercard að stöðva greiðslur til WikiLeaks – en áður hefur PayPal gert hið sama. John Noughton skrifar um þessa atburðarás í Guardian og segir að hræsnin í stjórnmálaelítunni á Vesturlöndum sé himinhrópandi. Bæði Hilary Clinton og Barack Obama hafa talað um mikilvægi frjáls upplýsingaflæðis á netinu – og gagnrýnt sérstaklega Kínverja fyrir að þrengja að því. Nougton segir að annað hvort geti stjórnmálamennirnir ákveðið að lifa í heimi þar sem upplýs- ingar leka út eða reynt að loka internetinu. Þeirra sé valið. silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Heimahjúkrun Sigurður Hólmar Jóhannesson faðir langveikrar stúlku Fyrir eina heim- sókn heima- hjúkrunar borgar ríkið 10.000 kr. Fyrir innlögn í einn dag borgar ríkið 130.000 kr. Foreldrar langveikra barna spara ríkinu 120.000 kr. á dag með því að hafa barnið heima. Frábærar Jólagjafir í 60 árGæða rúm á góðu verði Liam Ella Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opnunartími: Mán-fös 10-18 og laug 11-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.