Fréttablaðið - 08.12.2010, Qupperneq 10
8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR10
WIKILEAKS: Skjöl úr sendiráði Bandaríkjanna
ÓKEYPIS
RÚÐUVÖKVI
FYRIR DÆLULYKILSHAFA
Komdu við á bensínstöð Atlantsolíu við Bíldshöfða í dag á milli kl. 16 og 18.
Sýndu dælulykilinn og við fyllum á hjá þér með rúðuvökva af bestu gerð.
Rúðuvökvinn frá Kemi er lyktarlaus og þolir -18°C
en gáðu að því að hámarksáfylling er 3 lítrar á bíl.
AKTU ÖRUGGARI INN Í SKAMMDEGIÐ MEÐ TANDURHREINA RÚÐU.
Starfsmaður bandaríska sendi-
ráðsins var árið 2006 sendur í
rannsóknarferð inn á nektar-
staðinn Goldfinger í Kópavogi,
þar sem hann fékk tilboð um
„kynlífsþjónustu“, eins og það er
orðað í skýrslu sendiráðsins, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum
og Wikileaks hefur boðað birt-
ingu á.
Rannsóknarferð sendiráðs-
starfsmannsins, sem ekki er nafn-
greindur í skjalinu, var þáttur í
samantekt fyrir árlega skýrslu
Bandaríkjastjórnar um mansal í
heiminum.
Sendiráðið leggur á ári hverju
mikla vinnu í Íslandskafla skýrsl-
unnar, þar sem fjallað er um man-
sal á Íslandi, hversu algengt það
er, hvernig löggjöf sé háttað og
til hvaða aðgerða stjórnvöld hafa
gripið.
Við undirbúning skýrslunnar
árið 2006 ræddu starfsmenn
sendiráðsins við þrettán manns,
þar á meðal við Guðrúnu Jóns-
dóttur, fjölmiðlafulltrúa Stíga-
móta, Jóhann Benediktsson, lög-
reglustjóra á Suðurnesjum, og
Ásgeir Davíðsson, eiganda Gold-
finger.
Ásgeir er sagður neita því að
nokkuð ólöglegt fari fram á Gold-
finger. „Starfsmanni embættisins,
sem heimsótti staðinn, var engu
að síður boðin kynlífsþjónusta –
sem bendir til þess að eigendur og
lögregla láti að minnsta kosti sem
þeir sjái ekki ólögmæta iðju sem
stefnir konum í hættu. Hann tók
einnig eftir því að einn dansar-
anna virtist vera með glóðarauga,
sem gæti – að vísu eingöngu byggt
á atvikslýsingu – bent til misnotk-
unar í tengslum við starfið.“ - gb
Fékk tilboð um kyn-
ferðislega þjónustu
Bandaríska sendiráðið sendi einn starfsmanna sinna inn á nektarstað í Kópa-
vogi til að kanna þar ástandið. Heimsóknin var þáttur í samantekt sendiráðsins
fyrir Íslandskaflann árlega í skýrslu Bandaríkjastjórnar um mansal í heiminum.
ÁSGEIR
DAVÍÐSSON
Einn við-
mælenda
bandaríska
sendiráðs-
ins um
mansal á
Íslandi.
GOLDFINGER Starfsmaður bandaríska sendiráðsins tók eftir því að einn dansarinn
var með glóðarauga.
Hvalveiðar Íslendinga eru
meðal þeirra mála sem
reglulega koma til umræðu
í skýrslum bandaríska
sendiráðsins til stjórn-
valda í Washington.
Bandarísk stjórnvöld
eru andvíg hvalveiðum
og koma þeim skilaboðum
jafnan til skila á fundum
með fulltrúum íslenskra
stjórnvalda.
Meðal annars er rætt
um tregðu Japana til að kaupa
hvalkjöt frá Íslandi og í júlí 2009,
þegar veiðar á langreyðum voru
hafnar á ný eftir þriggja ára hlé,
skýrir Neil Klopfenstein sendi-
ráðunautur frá því að
hafa rætt við sendifull-
trúa Japans, sem sagðist
„ekki telja að neinn mark-
aður væri fyrir langreyð-
ar í Japan“.
Einar Guðfinnsson,
þáverandi sjávarútvegs-
ráðherra, hafi hins vegar
svarað því til þegar þetta
var borið undir hann, að
markaðsmál væru á könnu
einkafyrirtækis en ekki
vandamál íslenskra stjórnvalda.
„Skortur á markaði fyrir kjöt
af langreyði virðist ekki hafa nein
áhrif á veiðarnar,“ segir í skýrslu
frá Klopfenstein. - gb
Fjallað um skort á markaði fyrir hvalkjöt í Japan:
Einar lét sér fátt um finnast
Fyrir þingkosningarnar vorið 2007
segir í skýrslu bandaríska sendi-
ráðsins að Ólafur Ragnar Grímsson
forseti sé einn þeirra óútreiknan-
legu þátta sem gætu haft áhrif á
þróun mála eftir kosningarnar.
Hann hafi nokkrum sinnum átt í
deilum við ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar, meðal ann-
ars um fjölmiðlafrumvarpið 2004.
Hafðar eru eftir „sérfræðingum í
núverandi stjórn“ vangaveltur um
að Ólafur Ragnar sé „sannfærður
um að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks sé að valda
þjóðinni óbætanlegum skaða“ og
gæti því átt það til að „taka annað
fordæmislaust skref í maí og veita
einum vinstriflokkanna umboð
til stjórnarmyndunar“. Tæpu ári
síðar, þegar Ólafur Ragnar skýrði
frá því í áramótaræðu sinni að
hann myndi bjóða sig fram til
fjórða kjörtímabils í embætti,
segir Neil Klopfenstein að með
þessu hafi Ólafur frestað öllum
áformum um að bjóða sig fram
til alþjóðlegs embættis, til dæmis
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Jafnframt hafi áformum um að
ævisaga forsetans yrði gefin út á
ensku fyrir næstu jól verið frestað
um óákveðinn tíma.
„Ævisagan, sem líklega átti að
hefja veg Grímssonar á alþjóða-
vettvangi, var víða talin liður
í undirbúningi þess að hann
skipti um starfsvettvang,“ segir
Klopfenstein. - gb
Olli bandaríska sendiráðinu nokkrum heilabrotum:
Sagður óútreiknanlegur
EINAR
GUÐFINNSSON
Tölvuþrjótar hafa nú tekið sig saman um að ráðast
á vefsíður fyrirtækja sem neitað hafa að veita upp-
ljóstrunarsíðunni Wikileaks þjónustu.
Þannig hafa þeir ráðist á svissneska bankann
PostFinance, sem hefur fryst inneignir Wikileaks
á reikningi sem notaður var til að afla fjár til starf-
seminnar. Einnig hafa þeir ráðist á síðuna PayPal,
sem hætti að taka við greiðslum til Wikileaks. Meðal
þriggja bankareikninga sem gefnir eru upp á vef-
síðu Wikileaks er einn í Landsbanka Íslands. Þeim
reikningi hefur ekki verið lokað og engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um að loka honum, að sögn
Kristjáns Kristjánssonar, upplýsingafulltrúa bank-
ans. - gb
Tölvuþrjótar koma uppljóstrunarsíðunni Wikileaks til varnar:
Árásir til stuðnings við WikileaksÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Ævisaga á ensku talin liður í undirbúningi alþjóð-legs starfsvettvangs.