Fréttablaðið - 08.12.2010, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. desember 2010
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Þetta var geggjuð flott sýning,
eins og gelgjan sagði.
Og hvað viljið þið meira?“
B.S., pressan.is „Critics choice“
Time Out, London
Gefðu Gjafakort Arion banka í jólagjöf.
Gjafakort sem hægt er að nota hvar sem er.
Þú velur fjárhæðina og þiggjandinn velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið án endurgjalds
í desember í öllum útibúum Arion banka.
Gjafakort
Arion banka
er hægt að nota
hvar sem er
Árlegt 16 daga átak gegn kyn-bundnu ofbeldi stendur
nú yfir. Barnaheill – Save the
Children á Íslandi eru þátttak-
endur í átakinu, en samtökin berj-
ast fyrir auknum mannréttindum
barna hérlendis og erlendis, m.a.
með því að stuðla að vernd barna
gegn hvers konar ofbeldi.
Margir foreldrar í ofbeldis-
samböndum telja sig geta hald-
ið börnunum fyrir utan ofbeld-
ið. Oftar en ekki er ofbeldið gegn
móðurinni. Það er alla jafna vel
falið fjölskylduleyndarmál, sem
gerir það að verkum að börnin fá
sjaldnast tækifæri til þess að tala
opinskátt um líðan sína og ástand-
ið á heimilinu. Börnin eru því ein
með hugsanir sínar. Þau reyna
sjálf að finna skýringar á því sem
þau hafa séð og heyrt á heimilinu
en þora ekki að spyrja foreldra
sína að því sem brennur á þeim,
eða vilja ekki íþyngja þeim með
spurningum sínum.
Ólíkt fullorðnum hafa börn-
in ekki þroska til þess að skilja
það sem á gengur og eiga engin
ráð við því sem er að gerast. Það
gerir aðstæðurnar sérstaklega
erfiðar fyrir þau og veldur kvíða
og ótta, en það er einstaklings-
bundið hvernig þau láta vanlíðan
sína í ljós. Þessi lífsreynsla fylgir
þeim áfram út ævina og hætta er
á því að úr verði langvinnir erfið-
leikar.
Eftir því sem börnin verða eldri
og þroski þeirra eykst, fara þau
að skilja betur veruleikann sem
þau búa við. Að sama skapi er
hætta á því að þau fari að þróa
með sér samviskubit og finnist
þau með einhverjum hætti bera
ábyrgð á ofbeldinu. Þegar spenn-
an á heimilinu magnast, hafa þau
hægt um sig og eru hrædd um að
þau muni stuðla að frekari árás-
um á móður sína. Annað sem oft
kemur fram í viðtölum við börn-
in er mikil eftirsjá að hafa ekki
stöðvað ofbeldið og þeim finnst
þau hafa brugðist móður sinni.
Börnin læra snemma um erfið-
ar staðreyndir lífsins, staðreynd-
ir sem þau hafa ekki enn þroska
til að skilja. Af illri nauðsyn full-
orðnast þau of fljótt á vissum
sviðum og fá ekki að njóta þess
að þroskast á eðlilegan máta eins
og önnur börn. Þau fara gjarn-
an að gera óraunhæfar kröfur
til sín og taka á sig óásættan-
leg hlutverk á heimilinu til þess
að koma niðurbrotnum foreldr-
um sínum til hjálpar. Sláandi
dæmi um þá ábyrgð sem ungt
barn getur tekið á sig er átta ára
drengur sem dvaldi með móður
sinni í Kvennaathvarfinu. Hann
kom reglulega til starfskvenn-
anna og bað um leigulistann til
þess að finna húsnæði fyrir sig og
móður sína. Hann reyndi að finna
út hvar væri ódýrast fyrir þau að
leigja, með tilliti til staðsetningar,
hversu háar húsaleigu bætur
væru greiddar í viðkomandi
sveitar félagi og hver ferðakostn-
aður yrði fyrir móður hans til
að komast til vinnu. Sömuleiðis
er vel þekkt að börn taki að sér
foreldrahlutverk og annist yngri
systkini á erfiðum tímum á heim-
ilinu. Sum leggja mikið á sig til
að vernda systkini sín þegar allt
fer í bál og brand á heimilinu, t.d.
með því að skipuleggja fyrirfram
hvernig þau ætla að koma þeim
í skjól.
Það er afar mikilvægt að beina
athygli að þeim börnum sem eru
vitni að ofbeldinu. Í dag er það
svo að athyglin beinist einkum
að þeim sem eru beinir þolendur
ofbeldisins. Afleiðingarnar, sem
þetta hefur á líðan og heilsu
barna, eru stórlega vanmetnar og
geta fylgt þeim fram á fullorðins-
ár. Allir sem umgangast börn
þurfa því að vera vakandi fyrir
líðan þeirra. Nauðsynlegt er að
koma börnunum í skilning um að
ofbeldið er ekki þeim að kenna og
að tilfinningar og hugsanir þeirra
séu eðlileg viðbrögð við erfiðum
aðstæðum. Þau þurfa að finna að
þau séu ekki ein og að fjölskyldan
muni fá hjálp.
Við hvetjum þig því til að láta
þig málið varða. Ef þú veist um
barn sem býr við ofbeldi, í hvaða
mynd sem er, hikaðu þá ekki við
að koma barninu til aðstoðar og
ráðfæra þig við starfsmenn barna-
verndar í þínu sveitarfélagi.
Barnaheill – Save the Children
á Íslandi hafa frá febrúar síðast-
liðnum unnið rannsóknarverkefni
hér á landi um þann félagslega
stuðning sem stendur börnum til
boða sem eru vitni að kynbundnu
ofbeldi á heimilum sínum. Verk-
efnið er styrkt af Daphne-áætlun
Evrópusambandsins og er unnið
í samstarfi við Barnaheill – Save
the Children á Spáni og Ítalíu.
Niður stöður rannsóknarinnar
verða kynntar á ráðstefnu Barna-
heilla – Save the Children á
Íslandi í febrúar 2011.
Átta ára drengur
óskar eftir íbúð
Barnaheill
Örnólfur
Thorlacius
sálfræðingur og
verkefnastjóri
Barnaheilla
Petrína
Ásgeirsdóttir
framkvæmdastjóri
Barnaheilla - Save the
Children á Íslandi
Það er afar mikilvægt að beina athygli að
þeim börnum sem eru vitni að ofbeldinu. Í
dag er það svo að athyglin beinist einkum
að þeim sem eru beinir þolendur ofbeldisins.
AF NETINU
Yfirburðir Þjóðverja
Áhrif Þjóðverja í Evrópu hafa aldrei verið jafn mikil og nú, síðan í seinni
heimsstyrjöldinni. En í þetta sinn er það ekki herstyrkur sem Þjóðverjar
byggja á heldur yfirburðir í hagstjórn. Hinn prússneski stjórnunarstíll sem
Friðrik hinn mikli og faðir hans innleiddu í prússneska herinn og er í dag
notaður af Nato, á við á fleiri stöðum en í hernaði. Þjóðverjar hafa sýnt að
hinn prússneski agi og stíll hentar vel í hagstjórn, en af einhverjum ástæð-
um hafa þjóðir verið mun tregari að nota reynslu þjóðverja í hagstjórn en í
hernaði.
Nú er það þekkt lögmál að efnahagslegum yfirburðum fylgja pólitískir
yfirburðir. Evran hefur fært Þjóðverjum efnahagsleg völd og þar með pólitísk
áhrif. Framtíð ESB og evrunnar er nú í höndum Þjóðverja.
blog.eyjan.is/andrigeir
Andri Geir Arinbjarnarson