Fréttablaðið - 08.12.2010, Page 26
8. DESEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hans
1. Heildarsafnið af Sex and the
City. Ekki gefa honum eitthvað sem
er augljóslega ætlað fyrir sjálfa
þig en ekki hann.
2. Fótboltatreyja með
merki rangs félags. Ekkert
særir meira en að fá staðfest-
ingu á því að þú þekkir
hann ekki neitt. Liðið
sem hann heldur með
er heilagt. Hafðu það á
hreinu.
3. Bollastell. Alveg sama
hversu góður kokkur
hann er og smekklegur í
sér, þá langar hann ekki í
bollastell í jólagjöf.
4. Eyrnalokka. Segir það sig
ekki sjálft?
5. Gjafabréf í líkamsvax. Sendir
þau skilaboð að þér þyki líkami
hans ekki nógu aðlaðandi. Ekki
uppbyggilegt fyrir ástalífið.
- fsb
Líkamsvax
Eyrnalokkar
Bollastell
Sex and the City
Fótboltatreyja
Mörgum þykir erfitt að finna jólagjafir handa sínum heittelskaða.
Frumlegt skal það vera auk þess sem gjöfin á að vekja ómælda
lukku og ekki sakar að hún sé hagnýt. Þrír valinkunnir Íslending-
ar segja frá bestu jólagjöfinni sem þeir hafa gefið maka sínum.
Vel lukkaðar
jólagjafir
Ég man vel eftir þeirri jóla-gjöf sem hefur vakið hvað mesta lukku,“ segir Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari um
best heppnuðu jólagjöf hennar til
eiginmannsins Gunnars Kvaran.
Þau eiga bráðlega silfurbrúðkaup
og hafa því verið gift í 25 ár. „Það
var lambaskinnsjakki sem ég held
að sé orðinn yfir tuttugu ára og er
enn í notkun daglega,“ segir Guðný
glaðlega. Hún segist hafa borgað
skildinginn fyrir jakkann á sínum
tíma en það hafi borgað sig. „Ég
fékk hann hjá manni sem var að
selja þýskar leðurvörur í Kjör-
garði,“ segir Guðný, sem sjálf fékk
forláta leðurpils að gjöf frá Gunn-
ari úr sömu verslun sem hefur nýst
vel. „Gunnar hefur farið vel með
jakkann, látið gera við hann og
farið með hann í hreinsun,“ upp-
lýsir Guðný. Hún segir jakkann
enn mjög vinsælan. „ Ef ég er að
leita að bíllyklinum þá veit ég ná-
kvæmlega hvar ég á að leita. Í vas-
anum á gula skinnjakkanum.
Guðný sér ekki eftir peningunum sem
fóru í rándýra skinnjakkann.
Felix Bergsson, leikari og út-varpsmaður, kveðst ekki muna nákvæmlega hvað hann
gaf eiginmanni sínum Baldri Þór-
hallssyni stjórnmálafræðingi
fyrstu jólin sem þeir áttu saman.
Hann þykist hins vegar nokkuð
viss um að jólagjafirnar til síns
heittelskaða hafi ávallt hitt í mark.
„Ég gef honum nú yfirleitt prakt-
ískar gjafir, til dæmis eitthvað
sem hann hefur vantað, eins og úr
og farsíma,“ segir hann og bætir
við að mesta lukku veki þó yfirleitt
eitthvað sem tengist einu helsta
áhugamáli bóndans. „Hann er mik-
ill útivistarmaður og það hefur
alltaf virkað vel að gefa honum
eitthvað í tengslum við það.“
Ekki rekur Felix minni til ann-
ars en að gjafirnar hafi glatt Bald-
ur, enda segir hann eiginmanninn
allt of vel uppalinn til að láta annað
en þakklæti í ljós.
En hver skyldi vera besta gjöfin
sem hann hefur sjálfur fengið frá
Baldri? „Í fyrra fékk ég alveg geð-
veika úlpu frá 66 gráður Norður og
er eiginlega alltaf í henni síðan,
hvert sem ég fer,“ segir hann. „Svo
fékk frá honum fallegt og karl-
mannlegt hálsmen frá Jens fyrir
tíu til tólf árum og ber það enn.“
- rve
Felix segist naskur á jólagjafir sem
gleðja eiginmanninn.
GPS-staðsetningartæki varð fyrir valinu í fyrra handa mínum heittelskaða,“ segir
Margrét Eir Hjartardóttir söng-
kona og heldur áfram. „Hann fer
mikið á rjúpu og var einhvern
tíma búinn að nefna að hann lang-
aði í svona tæki. En hann er ekki
mjög tölvu- og símavænn og því
hefur tækið ekki verið notað enn
þá enda er hann maður sem fer
sínar eigin leiðir. Hann verður lík-
lega að vera svolítið villtur fyrst.
Tækið er samt komið úr umbúðun-
um svo við skulum segja að málið
sé í vinnslu.
Svo er það spurning hver gjöfin
verður í ár. Ég reyni alltaf að átta
mig á hverjar óskirnar eru áður
en ég fer af stað í innkaupin. Þess
vegna legg ég við hlustir allt árið
um kring.“ - gun
„Ég var búin að hugsa mig lengi um
áður en ég keypti GPS-tæki,“ segir
Margrét.
Samkvæmt óformlegri könnun
Fréttablaðsins verja konur og
karlar jafn miklum tíma í eld-
húsinu og er jafnvel ívið meira
um að karlpeningurinn eldi
matinn. Þeir vilja margir hafa
góðar græjur við höndina
og er ýmislegt sem freistar.
Fréttablaðið hafði samband
við tvær verslanir og fékk
ábendingar um heimilistæki
sem höfða til karlmanna.
Græjur í eldhúsið
Heimilistæki Ken-
wood-hrærivél
89.995 krónur.
Heimilistæki Matvinnsluvél með bland-
ara 39.995 krónur.
Bræðurnir Ormsson Popp-
vél 9.900 krónur.
Bræðurnir Ormsson Martello-kaffivél
29.900 krónur.
Fimm gjafir sem þú átt
aldrei að gefa honum
Bræðurnir Orms-
son Skaftryksuga
19.900 krónur.
Heimilistæki Mínútugrill 21.995 krónur.
Bræðurnir
Ormsson Jamie
Oliver pottar og
pönnur.
JÓLAGJÖF
VEIÐIMANNSINS
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Veiðikortið fæst á N1