Fréttablaðið - 08.12.2010, Qupperneq 46
30 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Tónlist ★★★
Alpanon
Hjaltalín
Hljómsveitin Hjaltalín hefur verið
yfirburðasveit undanfarin ár. Tvær
fyrstu plöturnar hennar, Sleep-
drunk Seasons (2007) og Terminal
(2009), eru margverðlaunaðar og af
mörgum taldar bestu plötur síðustu
ára í íslensku poppi. Hjaltalín hefur
líka verið dugleg við spilamennsku
og lagt í mörg metnaðarfull verk-
efni. Útsetningin á Þú komst við
hjartað í mér var snilldarleikur og
á Listahátíð 2009 spilaði hljómsveit-
in eftirminnilega tónleika í Íslensku
óperunni með kammersveit. Og svo
voru það stór tónleikar með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í júní 2010 sem
nú eru komnir á geislaplötu og
DVD-disk undir nafninu Alpanon.
Popphljómsveitir sem spila með
Sinfó er konsept sem gengur misvel
upp, en það er óhætt að reikna með
góðu þegar Hjaltalín á í hlut þar
sem klassískur þráður er þegar í
tónlist hennar. Og það er margt sem
gengur upp á Alpanon. Umgjörðin
er falleg og það eru ágæt tilþrif í
gangi í útsetningunum. Umslagið
er líka fallegt, tilbrigði við hið frá-
bæra umslag á Terminal. Hljóm-
urinn er góður og öll vinnsla til
fyrirmyndar.
Samt varð ég fyrir vonbrigðum
með þessa tónleika. Kannski hefði
mátt leggja meira upp úr nýju efni.
Á disknum eru tvö ný lög, A Bag
Lady og Year of the Horse, og það
eru mín uppáhaldslög á Alpanon,
sérstaklega það fyrrnefnda. Þrjú
lög eru af Sleepdrunk Seasons og
níu af Terminal. Það er kannski
vandamálið við þessa útgáfu. Það
er of stutt liðið frá því að Term-
inal kom út og búið að spila mörg
þessara laga í tætlur síðustu miss-
eri. Og útsetningarnar bæta litlu
við lög eins og Sweet Impressions,
Stay By You og Feels Like Sugar.
Stærri útsetning er ekki endilega
betri. Kannski hefði mátt hugsa
einhver lög alveg upp á nýtt? Fyrir
utan nýju lögin eru samt nokkur
sem koma sérstaklega vel út, t.d.
Traffic Music, Hooked on Chili,
Song From Incidental Music og
Trailer Music.
Á heildina litið er Alpanon falleg-
ur pakki fyrir Hjaltalín-aðdáendur
þó að það dragi úr hvatanum til að
setja hann í tækið hvað maður er
búinn að heyra mörg þessara laga
oft undanfarið. Það verður spenn-
andi að hlusta á hann eftir svona
fimm ár og meta hann upp á nýtt.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Margt vel gert, en nýju
lögin hefðu mátt vera fleiri.
Fallegur pakki fyrir aðdáendur
Þrátt fyrir að hafa starfað í
stuttan tíma er hljómsveitin
Skálmöld tilbúin með plötu,
búin að skrifa undir útgáfu-
samning og á leiðinni á risa-
stóra þungarokkshátíð í
Þýskalandi á næsta ári.
„Við höfum trú á því sem við erum
að gera,“ segir gítarleikarinn
Björgvin Sigurðsson í hljómsveit-
inni Skálmöld.
Víkingarokksveitin Skálmöld
var stofnuð í fyrra og kemur fram
á Wacken Open Air-hátíðinni, sem
er stærsta þungarokksútihátíð
heims, næsta sumar. Hátíðin hefur
verið haldin frá árinu 1990 og yfir
80.000 manns sóttu hana á þessu
ári, en þá komu fram hljómsveitir
á borð við Iron Maiden, Mötley
Crüe og Slayer. Á næsta ári hefur
myrkraprinsinn Ozzy Osbourne
boðað komu sína ásamt hljóm-
sveitum á borð við Judas Priest og
Sepultura.
En hvernig fer ársgömul hljóm-
sveit að því að komast á Wacken?
„Það er góð spurning. Ætli það
sé ekki aðallega heppni,“ segir
Björgvin. „Hópurinn sem fór þang-
að í fyrra tók með sér kynningar-
diska frá okkur og lét menn hafa.
Það var greinilega einhver sem
var hrifinn og okkur var boðið að
taka þátt.“
Björgvin vísar þar í hljómsveit-
ina Sólstafi, sem kom fram á Wack-
en í fyrra, og tónleikahaldarann
Þorstein Kolbeinsson. Hann hefur
staðið fyrir árlegri hljómsveita-
keppni þar sem þungarokkarar
keppast um að fá að koma fram á
hátíðinni.
Meðlimir Skálmaldar eru engir
aukvisar, en þeir koma úr hljóm-
sveitinum Ljótu hálfvitarnir,
Ampop, Innvortis, Klamydía X og
Hraun. Og það er ýmislegt á döf-
inni, fyrir utan stærstu þunga-
rokkshátíð heims. „Við erum á
leiðinni til Svíþjóðar að spila á
tvennum tónleikum. Platan kemur
út í næstu viku, þannig að það er
mikið að gerast hjá okkur núna,“
segir Björgvin. Færeyska útgáfu-
fyrirtækið Tutl gefur plötu hljóm-
sveitarinnar út.
Lagalisti plötunnar var tilbúinn
áður en Skálmöld kom fyrst saman,
en á plötunni er sögð saga sem
vísar í íslenska goðafræði. „Um
leið og hljómsveitin var stofnuð
var lagður grunnur að plötu,“ segir
Björgvin. „Svo voru lög samin
fyrir plötuna. Við vorum langt
komnir með að taka upp plötuna
þegar við spiluðum á fyrstu tón-
leikunum. Þetta er concept-plata
sem segir eina sögu í tíu lögum.
Okkur fannst hugmyndin svo flott
að við vikum aldrei frá henni.“
atlifannar@frettabladid.is
Skálmöld bókuð á stærstu
þungarokksútihátíð heims
DUGNAÐUR Hin ársgamla Skálmöld hefur gert meira á einu ári en margar hljómsveitir gera á fimm. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
FASTER kl. 8 - 10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10
THE NEXT THREE DAYS KL. 5.45
JACKASS 3D KL. 5.45
16
16
12
12
Nánar á Miði.is
FASTER kl. 5.50 - 8 - 10.10
FASTER LÚXUS kl. 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE NEXT THREE DAYS KL. 8 - 10.40
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3.50 - 6
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10
ARTHÚR 3 KL. 3.40
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.50
AULINN ÉG 3D ÍSL. TAL KL. 3.50
16
16
16
12
L
12
L
L
L
FASTER kl. 8 - 10.10
AGORA KL. 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
ARTHÚR 3 KL. 6
SKYLINE KL. 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
BRIM KL. 6
16
14
L
L
12
L
12
L
12
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
ÍSL. TAL ÍSL. TAL
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
- bara lúxus
Sími: 553 2075
PARANORMAL ACTIVITY 2 8 og 10.10 16
FASTER 8 og 10.10 16
THE NEXT THREE DAYS 8 og 10.30 12
NIKO OG LEIÐINN TIL STJARNANNA 6 - ISL TAL L
ARTÚR 3 6 - ISL TAL L
ÚTI ER ÆVINTÝRI 6 - ISL TAL L
12
12
10
10
10
10
10
10
10
10
LL
L
L
- BOXOFFICE MAGAZINE
- ORLANDO SENTINEL
- TIME OUT NEW YORK
M I Ð A S A L A Á
M I Ð A S A L A Á
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20
RED kl. 8 - 10:20
KONUNGSRÍKI UGLANNA M/ ísl. Tali kl. 5:50 THE JONESES kl. 5:50 - 8 - 10:10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30
DUE DATE kl. 8 - 10:20
THE SWITCH kl. 5:50
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5.30, 8 og 10.30
HARRY POTTER kl. 5, 6, 8, og 9
DUE DATE kl. 8 og 10.10
GNARR kl. 6
7
LIFE AS WE KNOW IT kl. 6 - 8 - 10:10
HARRY POTTER kl. 6 - 9
“SPRENGHLÆGILEG”
ALI GRAY, IVILLAGE.COM
“FUNNY, SEXY AND
SURPRISINGLY SWEET!”
SAINT BRYAN, NBC-TV