Fréttablaðið - 08.12.2010, Qupperneq 54
38 8.
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hef aldrei verið jafn ánægður á
ævinni,“ segir Egill „Gillzenegger“
Einarsson rithöfundur.
Í gær lauk þriggja mánaða bið hjá
Agli þegar honum var tilkynnt að
umsókn hans um inngöngu í Rithöf-
undasamband Íslands hefði verið sam-
þykkt. Fréttablaðið sagði frá umsókn
Egils í september en hún vakti nokkurt
umtal. Rithöfundurinn segist hlakka til
starfsins í sambandinu og ætlar þegar
að taka til hendinni. „Það eru nokkur
markmið sem ég hef sett mér. Ég ætla
að kjöta Sjón upp, ætli ég sendi honum
ekki SMS strax á eftir, ég ætla að rífa
hattinn af Hallgrími Helga, það þarf
einhver að segja honum að hattar voru
töff árið 2005. Og svo er aðalmark-
miðið að koma meðal fituprósentunni
hjá meðlimum Rithöfundasambandsins
niður í 25 prósent.“
Þó Egill sé hæstánægður með inn-
gönguna ber þó einn skugga á starfið
fram undan. „Um leið og ég fékk góðu
fréttirnar renndi ég yfir meðlimi í Rit-
höfundasambandinu og það eru nokkr-
ir sem eiga ekkert að vera þarna. Til
dæmis Hávar Sigurjónsson, ég veit
ekki til þess að hann hafi gefið út bók.
Ég neyðist til að tilkynna honum á
morgun [í dag] að hann sé ekki lengur
meðlimur.“
Rithöfundurinn áformar mikil
veisluhöld til að fagna þessum áfanga.
Hann er að íhuga að halda ára-
móta partí á heimili sínu fyrir
félaga sína í Rithöfundasam-
bandinu en tekur þó forskot á
sæluna. „Fyrsta partíið verð-
ur um helgina. Það verður
Burn-partí á Austur, Burn-
skvísur að afgreiða
drykki og allur pakk-
inn. Auðvitað er öllum
meðlimum sambands-
ins boðið.“ - hdm
Gillz býður rithöfundum í Burn-partí
KOMINN INN Egill Einarsson
er orðinn meðlimur í Rithöfundasam-
bandinu og ætlar að taka til þar.
„Þetta á að vera svona spjallþáttur svipaður Loga í
beinni, nema með Mána,“ segir Fannar Sveinsson,
nemi í Kvikmyndaskóla Íslands.
Um þrjátíu nemendur Kvikmyndaskólans vinna nú
hörðum höndum að því að undirbúa sjónvarpsþáttinn
„Máni í beinni frá Garðabæ“, en um er að ræða einn
prufuþátt þar sem nemendur Kvikmyndaskólans
læra á allt sem við kemur beinni útsendingu á sjón-
varpsþætti. „Við fengum Völu Grand og Svavar Sig-
urðsson til að koma í spjall og Friðrik Dór ætlar að
taka lagið,“ segir Fannar. Það verður Þorkell Máni
Pétursson, útvarpsmaður X-ins, sem sér um þátta-
stjórnina en upptökur fara fram í Latabæjarstúdíó-
inu.
Þeir nemendur sem taka þátt í verkefninu hafa
verið að sækja áfanga tengda þessu í vetur, en það er
Heimir Jónasson, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar
2, sem kennir áfangann. „Þetta er í rauninni eins og
skólaverkefni í beinni útsendingu,“ segir Fannar, en
hann segir að þetta sé einungis hugsað fyrir skólann.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kvikmyndaskólinn
vinnur að verkefni sem þessu. „Þetta var líka gert í
fyrra, en þá var það Villi naglbítur sem sá um þáttar-
stjórnina,“ segir Fannar. - ka
Fá skemmtikrafta í skólaverkefni
Í FULLUM UNDIRBÚNINGI Nemendur Kvikmyndaskólans fá til
sín góða gesti í spjallþátt sem er liður í skólaverkefni þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er alveg magnað, við höfum
prentað tíu þúsund eintök og höfum
núna selt sjö þúsund. Þetta er henn-
ar langbesta byrjun á jólabóka-
vertíðinni og allt útlit fyrir að hún
slái eigið sölumet,“ segir Pétur
Már Ólafsson, útgefandi hjá Ver-
öld. Hann telur óhætt að tala um
tveggja turna tal á jólabókamark-
aðinum í ár og Arnaldur Indriðason
væri þá hinn turninn. „Yrsa hefur
toppað Arnald á tveimur listum um
þessi jól og það segir sitthvað um
hennar vinsældir. Það hefur ekki
gerst áður,“ bendir Pétur Már á og
vísar þar meðal annars til nýlegs
metsölulista Hagkaups sem birtist
í Fréttablaðinu í gærmorgun. Nýr
listi frá Félagi bóksala ýtir undir
þessa fullyrðingu; Yrsa og Arn-
aldur hafa komið sér makindalega
fyrir í þriðja og öðru sæti á eftir
Léttum réttum Hagkaups.
Pétur segir að bækur Yrsu hafi
selst í áttatíu þúsund eintökum en
Ég man þig er fimmta skáldsaga
hennar. Rithöfundurinn nálgast
nú milljón eintaka múrinn á heims-
vísu og þýskt framleiðslufyrir-
tæki keypti nýlega sjónvarpsrétt-
inn að bókum hennar. „Umtalið
hefur verið gott, dómarnir góðir
og að mati Times standast bækur
Yrsu það besta í glæpasagnaheim-
inum.“
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, segir það
vissulega gleðilegt að Yrsa skuli
seljast vel. En hann er hins vegar
ekki reiðubúinn til að kvitta upp á
fullyrðingu Péturs Má um tveggja
turna tal þetta árið. „Það er alveg
ljóst að bækur Arnaldar og Yrsu
falla Íslendingum vel í geð. Arn-
aldur hefur hins vegar borið höfuð
og herðar yfir aðra rithöfunda,
hann hefur átt mest seldu skáld-
sögu ársins á undanförnum árum,“
segir Egill og bendir á að nýjast
bók Arnaldar, Furðustrandir, hafi
PÉTUR MÁR ÓLAFSSON: TVEGGJA TURNA TAL UM ÞESSI JÓL
Arnaldur og Yrsa að stinga
af í jólabókaflóði ársins
MYND/KRISTINN INGVARSSON
„Draumadagurinn væri að vera
með Frank Sinatra í eyrunum
að syngja New York, New York.
Allir sem hafa verið í New York
vita að það er málið.“
Baldur Öxdal matreiðslumeistari
„FRÁBÆR BÓK“
S G / M O R G U N B L A Ð I Ð
J Y J / F R É T T A B L A Ð I Ð P B B / F R É T T A T Í M I N N
2. PRENTU
N
VÆNTANLE
G
Snjóbrettajakki úr Firefly EVO-efni sem hrindir frá snj
léttri rigningu. Límdir saumar og góð öndun. Dömustæ
Snjóbrettabuxur úr Firefly EVO-efni sem hrindir frá sn
léttri rigningu. Límdir saumar og góð öndun. Dömustærðir.
um þessi jól selst betur og hrað-
ar en nokkru sinni og allt útlit
sé fyrir að hann slái sitt fyrra
Íslandsmet sem Myrká setti fyrir
tveimur árum þegar bókin rauf 30
þúsund eintaka múrinn. „Þá töld-
um við að toppnum væri náð og
við gætum ekki selt fleiri eintök.
En annað er að koma í ljós,“ segir
Egill og bendir á að Arnaldur hafi
selt nálægt 300 þúsund eintök hér
á landi undanfarin þrettán ár eða
síðan Synir duftsins kom út.
freyrgigja@frettabladid.is
ALGJÖRT MET
Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðar-
dóttir eru líkleg til að slá eigin met um
þessi jól. Yrsa rýfur sennilega tíu þúsund
eintaka múrinn en Arnaldur gæti sett nýtt
Íslandsmet og selt yfir þrjátíu þúsund
eintök af Furðuströndum.