Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1888, Side 24

Sameiningin - 01.07.1888, Side 24
—88— þá var samþykkt, að grundvallarlögin og aukalögin skyldi prentuð í „Sam.“ Síðan var kosið í hina standandi nefnd, og hlutu þessir lcosning, auk prestanna séra Jóns Bjarnasonar, séra Friðriks Bergmanns, séra N. Steingr. þorlákssonar og séra Magnúsar Skaftasens: Yilhelm Pálss., Friðjón Friðrikss., E. H. Bergmann. I minnisvarðanefndina voru aulc forseta kvaddir: séra Friðrik J. Bergmann og Friðjón Friðriksson. I útgáfunefnd „Sam.“ voru kosnir allir þeir sömu, sem áðr voru í henni, og Vilhelm Pálssyni bœtt við sem varamanni. A kveðið, að ályktan síðasta kirkjuþings viðvíkjandi ferming slcyldi prenta sérstaklega til útbýtings meðal ung- linga og annarra meðal íslenzks almennings hér í landi. ]»á var kosinn English Gorresponding Secretary séra Friðrik J. Bergmann, og honum falið að þakka járnhraut- arfélögum, sem von er á að flytji þingmenn með niðr settu verði heim frá kirkjuþinginu. Víkr-söfnuði þakkað fyrir hinar góðu móttökur, sem þingið naut meðan það stóð. Embættismönnum félagsins og sérstaklega forseta þakk- að fyrir framkomu þeirra á þinginu. Gjörðabók fyrir þennan síðasta fund lesin og samþykkt. Fundinum og kirkjuþinginu síðan slitið af forseta, kl. lþ eftir miðnætti, og flutti varaforseti séra Friðrik J. Bergmann bœn að skilnaði. Lcxíur fyrir sunnudagsskólann; þriöji ársfjóröungr 188S. 5. lexia, sd. 5. Ag.: Brennifórnin (3. Mós. 1, 1—9). 6. lexía, sd. 12. Ág.: Friðþægingarhátíðin (3. Mós. 16, 1—16). 7. lexía, sd. 19. Ág.: Laufskálahátíðin (3. Mós. 23, 33—44). 8. lexía, sd. 26. Ág.: Skýstólpinn og eldstólpinn (4.Mós. 9, 15—23). ,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi $1.00 árg.; greiðist fyrir fram.—Skrifstofa blaðsins: 190 Jemima Str., Winnipeg, Manitoba, Canada. —Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), I’áll S. Bardal (féhirðir), Magnús Pálsson, Friðrik J. Bergmann, Sigurðr J. Jóhannesson. Pkentsmidja Lögbergs, Winnipeg.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.