Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 1
Mánað'arrit til stuð'nings lcirlcju og kristindómi íslendinga, gefið út af hinu ev. lút. kirlcjufélagi ísl. í Vestrkeimi. RITSTJÓRI JÓN BJARNASON. . u. ■■ - ■■ ■„ 4. árg. WINNIPEG, OKT. og NÓV., 1889. Nr. 8. og 9. TO Bitd Jftatthmsar Joiimmssonar Eptir Friðrik J. Bergmann. Skáldið og presturinn Matthías Jochumsson hefur tekið til máls út af grein þeirri, er stóð í Maí-núm- eri „Sam.“ um skyldu/r vorar við ísland. Hann hefur ritað langa og fjöruga grein um hana í 24. tölublaði „Lýðs“. Með því að leiða ekki fram hjá sjer að svara þeirri grein, hefur hann enn á ný fært löndum sínum, bæði austan hafs og vestan, heim sanninn um það, að hann er einn hinna sárfáu andlega vakandi manna þjóðar sinn- ar. Enda má nú til þess ætlazt af honum, sem talinn er öndvegishöldur hinna íslenzku skálda. Hann kallar grein þessa „lögeggjan", enda mun það ekki hafa verið fjarri tilgangi höfundarins, að hún væri skilin á þá leið. Eins og lesendur blaðs þessa mun reka minni til, fór jeg í grein þessari allhörðum orðum um sinnuleysið, þögnina og dauðann, sem kæmi fram í krist- indótnsmáiurn þjóðar vorrar. Jeg benti á það, að hvergi í blöðum þeim nje tímaritum, sem út koma á Islandi, væri talað eitt orð um hið kirkjulega ástand; þessir c. 200 guðfræðingar steinþegðu um það málefni, sem þoir hafa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.