Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 23
—151— veita unglingunum, stendur undirbúningur sá undir ferm- inguna, sem vjer leitumst við að láta þeim í tje. Oss virðist, sem fermingar-athöfnin hati verið skoðuð á ætt- jörð vorri sem dauð seremonía og sje það enn. Sú upp- fræðsla, sem allur þorri íslenzkra presta gefur ungmenn- unum, er víst ekki nema nafnið tómt. })ví sú skoðun er orðin almenn hjá fólki voru, að þessi undirbúningstími undir ferminguna eigi að vera sem allra-stytztur og ung- lingarnir eigi að fermast sem allra-yngstir, hvort sem nokk- ur líkindi eru til, að hlutaðeigandi hafi öðlazt þann and- lega þroska, sem til þess útheimtist, að gjöra sjer grein fyrir hinum ýmsu atriðum kristilegrar trúar. -— þetta mál hefur opt verið rætt í blaði voru, og skal jeg því vera stuttorður utn það hjer. Fermingin á að vera innifalin í frjálsri játning þess, sem trúna hefur öðlazt, um það, að hann sje og vilji vera sannur lærisveinn Jesú Krists; og sá, sem gjörir þessa góðu játning, á að gjöra hana, af því það er orðin honum þörf. Undirbúningurinn undir ferm- inguna á að leiða hina ungu inn í samfjelagið við lausn- arann, kenna þeim að umgangast hann í bæninni og leiða þeim lærisveinsstöðuna þannig fyrir sjónir, að hin opinbera játning geti bæði verið frjáls og sönn og sprottin af lifandi sannfæring. — Að leitast við að láta undirbúninginn undir ferminguna vera þannig er eitt af því, sem vjer liöfum ritað á vort kirkjulega prógram. Eitt af því, er vjer leitumst við að koma hirium ungu í skilning um — og annars öllum, sem vjer náum til — er það, að ekki sje unnt að nema kristindóminn utan að, svo að nokkru gagni sje, heldur sje hann innifalinn í því, að maðurinn breyti eptir dæmi frelsarans, sökum þess að hjarta hans sje fullt af lifandi trú og kærleik. Stefna hugarfarsins kemur ósjálfrátt fram í lííi mannsins. Hafi kærleikurinn til frelsarans sett sitt innsigli á hana, segja orð hans og gjörðir greinilega til þess. jiaö er svo tii ætlazt, að kristnir menn sjeu salt jarðarinnar. Kirkj- an á eldci að láta neitt mannlegt vera sjer óviðkomandi. j)að er ein af stór-syndum hennar, að hún hefur svo opt vanrækt hina borgaralegu hiið lífsins, Hún hefur lát-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.