Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 20
—148- ar, með neinni lífshreifing, sem gæti orðið þeim yfirsterkari. Hún hefur einiægt sýnt það með allri sinni framkomu, að hún er langt á eptir tímanum. Hin helzta framför, sem orðið hefur í hinum guðfræð- islega heimi á þessari öld, finnst mjer vera í því fólgin, hve mikið ljósari hin mannlega hlið kristindómsins er orðin nú, en hún var á fyrri öldum. ])ótt trúarjátningar kirkjunn- ar sjeu hafðar í heiðri, er ekki lengur lögð jafn-einstreug- ingslega hörð áherzla á hin ýmsu smærri atriði, og áður var gjört. það er þungamiðja kristindómsins, sem öll hin trúarlega hugsun hneigist að. Aldrei hefur vitnisburðurinn um Jesúm Krist verið fluttur með meira afli og sterkari persónulegri sannfæring, síðan á dögum postulanna, en ein- mitt á yfirstandandi tímum. Hið bezta vopn, sem kirkjan getur haft á móti vantrúnni, er sterk og lifandi persónu- leg trú á frelsarann og friðþæginguna. ])ar, sem kirkjuna skortir þetta vopn, stendur hún verjulaus uppi. Með hin- um lifandi vitnisburði um hina guð-mannlegu persónu frels- arans getur kirkjan að eins leyst það hlutverk sitt af hendi, að leiða börn sín inn í trúarinnar og kærleikans samband við hann. — það er framúrskarandi merkilegt atriði þetta, að meðan hin trúarlega hugsun aldarinnar hneigist að þungamiðju kristindómsins, persónu frelsarans, hneigist hin trúarlega hugsun á Islandi frá þessari þungamiðju. Með- an hinn kristni heimur kemst til dýpri og gleggri sann- færingar um guðdóm frelsarans gegnum dýpri og gleggri skilning á hinni mannlegu hlið lífs hans, eru fleiri og fleiri af kirkjunnar mönnum á Islandi, sem týna sannfær- ingunni um guðdóm lausnarans úr hjarta sínu. Hvers vegna? Vegna þess þeir hafa staðið fyrir utan allt starf aldarinnar í trúarefnum, og hafa þannig staðið uppi verju- lausir gagnvart hinum sterku vantrúarhugsunum, sem brot- jzt hafa inn yfir þá úr öllum áttum. Hafi hugsun fólka vors dregizt frá þungamiðju krist- indómsins, þarf sannarlega að draga hana þangað apt- ur. þess vegna setjum vjer allra-efst á vort kirkjulega prógram hinn lifandi vitnisburð um frelsarann og frið- þæginguna. Vjer leitumst við að leiða hugi fólks vors inn

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.