Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.11.1889, Blaðsíða 25
•153— bendingum í siðferðisáttina; en þær vantar allt afl til aS geta gripið hugi nianna, af því orðatiltækin og hugleiðing- arnar eru svo almenns eðlis, að þær koma hvergi við það líf, sem þær ættu að lýsa. Prestarnir ættu að setjast við fætur hinna realistislcii skálda, sem nú eru uppi víðs veg- ar um löndin, og læra af þeim að lýsa lífinu, eins og það er í ljótleik þess og niðurlæging, til þess að láta Ijósbirtu kristindómsins falla með því skærari ljóma yfir það. Kirkj- an á að hripsa vopnin úr höndum þeirra, sem misskilja köll- un hennar og á nióti henni berjast. og bregða þeiin sjálf. Hún á að sýna það, að hennar beztu menn eru jafn-herraborn- ir og hverjir aðrir og geta ferðast eins ofarlega á fjalllendi mannlegrar hugsunar og þeir, sem djarfastir eru. Annars dregst hún aptur úr og verður hrum af elli, meðan æskan hendir gaman að hærum hennar og dregur dár að elliglöpuin hennar. þegar hún flytur sannleiksþyrstum mönnunum erindi ki-istin- dómsins, rná hún ekki særa upp úr gröfum liðinna alda hina fölleitu vofu þess siðalærdóms, sem annars vegar er rændur lífsneista kristindómsins, og hins vegar slitinn úr sambandi við það líf, sem hann á að kenna mönnum af lifa. I verkum skáldanna þekkja mennirnir sig aptur, af því þau lýsa satt og rjett iífinu og tifinninguin mannanna í upphefð og niðurlæging. I ræðum prestanna ættu menn- irnir einnig að þekkja sjálfa sig aptur í stríði sínu og baráttu, bágindum og neyð. Sú ræðan er bezt, sem getur látið hverjum tilheyrandanna út af fyrir sig tínnast, að hún beina orðuin sínum að honum, lýsa hans sálarástandi og rjetta honum þau sannindi, sem sál hans þyrstir eptir. Ef kirkjan prjedikar siðalærdóm á annað borð, eins og hún sjálfsagt á og þarf að gjöra, verður hún að setja hann í samband við það ijelagslíf, sem hverjum kristnum manni er ætlað að taka þátt í. Hún á að lypta öllum lífshreif- ingurn, sem uppi cu í tímanum, upp í ijósbirtu kristin- dómsins og fella yfir þær svo rjettlátan dóm, sem drottinn gefur henni skilningsþroska til. — AS leitast við að láta kenning vora í hinni kristilegu siðfræði stefna í þessa átt er eitt af því, sem sjerstaklega vakir fyrir oss hjer fyrir vestan. (Niöurl, í næsta nr.).

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.