Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Síða 5

Sameiningin - 01.11.1889, Síða 5
—133 hefur sjeS, aS hjer hafa veriS myndaSir söfnuSir, og aS allir )?essir söfnuðir hafa myndað eitt allsherjar kirkjufje- lag; og til þess aS koma öllu þessu á, liefur það víst ekki getaS dulizt honum, aS menn hafa lagt mjög mikið í sölurnár. Hefur nú tilgangurinn með allt þetta getað dulizt lionum? Hefur hann ekki orSið þess var, aS allt þetta hefur veriS gjört, til þess aS varSveita kristindóm þess hluta fólks vors, sem hingaS hefur fiutt ? Og svo spyr hann, hvort vjer höf- um kristindóm. Fólk vort hjer leggur út svo þúsundum dollars nemur á einu ári, til þess að koma sjer upp vönd- uðum kirkjubygginguin, svo orS kristindóinsins og hin hei- lögu sakramenti megi „búa ríkulega" meSal vor. Og saint er þaS spurt: „hafið þið kristindóm?" HiS eina kristindóms tímarit, sem til er á voru máli, „Sameiningin", liefur ekki þótt neitt sjerlega myrk í máli. Hún hefur ekki dregið neinar dulur á markmiS hins kirkjulega fjelagsskapar meS-' al vor. Hún hefur vitnað svo hátt og meS svo sterkum rómi um hinn lifandi kristindóin sem hiS eina frelsi frá andlegum dauða fyrir þjóð vora, að sá vitnisburSur stend- ur eins einstakur nú á dögum í hinni íslenzku kirkju, eins og „Sameiningin“ sjálf stendur einstök í bókmennta- legu tilliti. Vjer höfuin átt í höggi við ýmsár andlegar stefnur, er ráðizt hafa með oddi og egg aS þeifn kristin- dómi, er vjer höfum prjedikað, til aS verSa houum að bana. Annarsvegar trúleysið, sem neitar öllum grundvallar átiiS- um kristindómsins, hefur opinberun drottins í ritningunni aS sífeldum skotspæni og treður villumannlega undir fót allt þaS, er trúin heldur heilagt, til þess að koma- því í fyrirlitning hjá fólki voru og fá það til þess gjörsamlega aS snúa bakinu viS kristindóminum. Hins vegar skrípa- trúin, sem meS sínu ógurlega þröngsýni lierpir sjóndeildar- hring mannsins saman, í stað þess að lypta honúm upp á sjónarhæðir sannleikans, eins og hinn sanni kristindómur ætíð gjörir, — sem snýr hinni kristilegu hugsun mannsins í andlega brjálsemi, og fer eins og óhemjandi eldur yfir allt sálarlíf hans, svo ekkert verSur eptir nema ein út- brunnin auðn. ViS báSar þessar stefnur höfum vjer átt í höggi, og „Sam.“ hefur sannarlega vitnað gegn þeim báðurn

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.