Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1889, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.11.1889, Qupperneq 13
—141— lofaSi jeg að takast á hendur préstsþjónustu í Frelsis- og Fríkirkju- söfnuðum í Manitoba, ef söfnuðirnir gengju að þeim fíkilmálum, er jeg setti. Svar safnaðanna fjekk jeg í byrjun febrúarmánaðar þ. á. þeir urðu drengilega við skilmálum mínum, og þá var jeg alráðinn í að fara vestur. Af ýmsurn orsökum drógst því miður för mín alllengi, svo að jeg var ófarinn frá Höfn, þegar landshöfðingi íslands kom þangað í marzm. Við komu hans frjettist þegar, að biskup Islands, Pjetur Pjetursson, liefði sótt um lausn frá embætti sínu, og landshöfðined væri kominn til að setja nýjan biskup á biskupsstól Is- lands. Allir töldu auðvitað sjálfsagt bæði á Islandi og í Idöfn, að lector H. Hálfdánarson yrði biskup. En það fór eins og alkunnugt er, að dómkirkjuprestur Hallgrímur Sveinsson varð fyrir biskupskosning, og landshöfðingi sendi mann gagngjört til mín, til að segja mjer að sækja um Reykjavíkur prestakall. Sendimaðurinn kom með þetta eins og svar upp á nokkuð annað, sem jeg hafði spurt lands- höfðingja um. íslendingar í Höfn eggjuðu mig nú ákaft á að fylgja þessari bendingu landshöfðingja. þeir sögðu, að það væri skylda mín, að bjóða íslandi þjónustu mína, áður en jeg færi í aðra heimsálfu, annars væri jeg vanþakklátur sonur. þeir minntu mig á það, aðjeg hefði þegið óvenjulega mikinn styrk af fje íslands. Ef jeg færi ekki heim til íslands heldur vestur um haf, væri jeg landráöamaður. Margt sögðu þeir þessu líkt. þá beit jeg í mig gremjuna. Enginn skyldi nokkru sinni geta sagt, að jeg hefði ekki leyst skyldur mínar af hendi við Island. Jeg afrjeð því að fara heim til Islands, og sækja um Reykjavíkur prestakall eptir bendingu landshöfð- ingja og áeggjun landa minna í Höfn. Reykjavík var og hinn eini staður á Islandi, þar sem mjer fannst jeg geta gert fullt gagn. það var og hinn eini staöur meðal ís- lendinga, þar sem jeg hefði getaö lokið við dálítiö ritsmíði, er jeg var byrjaður á í Höfn. Hin gyldendalska bókaverzlun hafði lofað að láta prenta rit þetta og gefa mjer góð ritlaun fyrir það. Ritið átti að vera: Æfisaga fx-elsarans á íslenzku, og einn af guðfræðiskennui'unum við háskólann hafði lofað að leiðbeina mjer við samningu rits

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.