Fréttablaðið - 15.12.2010, Side 4
4 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Arnar Þór Másson, skrifstofustjóri í
forsætisráðuneytinu, var ranglega
sagður Ólafsson í frétt um breytingar
á lögum um Stjórnarráð Íslands í gær.
LEIÐRÉTTING
LÖGREGLUMÁL Mikið er um stöðu-
brot í Reykjavík og um síðustu
helgi hafði lögreglan afskipti af
hátt í fimm hundruð ökutækjum
vegna þessa. Sektin vegna slíks
brots er nú 5.000 krónur og renn-
ur gjaldið í Bílastæðasjóð. Þetta
þýðir að vel á þriðju milljón króna
hefur bæst í kassa sjóðsins um
helgina.
Auk þess sem fólk lagði ólög-
lega um allar trissur bar sömu-
leiðis nokkuð á því að fullfrískir
einstaklingar nýttu sér stæði sem
eru sérmerkt fötluðum. Fullorðin
fötluð kona á miðborgarsvæðinu
þurfti að hringja tvisvar í lögregl-
una um helgina, þar sem ófor-
skammaðir bílstjórar höfðu lagt í
merkt einkastæði hennar. - jss
Stöðubrot kostuðu sitt:
Sektir fyrir á
þriðju milljón
DÓMSMÁL Skaðabótamáli slita-
stjórnar Glitnis á hendur svo-
kallaðri sjömenningaklíku Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og endur-
skoðunarfyrirtækinu Pricewater-
houseCoopers var vísað frá dómi í
New York í gær. Niðurstaða dóm-
ara var sú að þar sem stefndu væru
allir Íslendingar og Glitnir íslenskt
fyrirtæki ætti málið heima fyrir
íslenskum dómstólum.
Slitastjórnin stefndi sjömenning-
unum til að endurgreiða tvo millj-
arða dala, jafnvirði 230 milljarða
króna, sem þeir eru sagðir hafa
sogið út úr Glitni í flóknu samsæri
gegn hluthöfum bankans.
Dómari hlýddi á málflutning um
frávísunarkröfu sjömenninganna
í gær og kvað svo upp úrskurð
fjörutíu mínútum síðar. Hann
féllst á frávísunina með tveimur
fyrirvörum: Annars vegar þurfa
sjömenningarnir að lýsa því yfir
skriflega að íslenskir dóm-
stólar hafi lögsögu í mál-
inu, þótt sumir þeirra hafi
ekki lögheimili hérlendis,
og hins vegar þurfa þeir
að fallast á það að eign-
ir þeirra í útlöndum verði
aðfararhæfar ef þeir tapa
á endanum málinu.
Steinunn Guðbjarts-
dóttir, formaður slita-
stjórnarinnar, segir
úrskurð dómstóls-
ins ekki vera áfall.
„Ég mundi ekki
taka svo sterkt
til orða. Þetta eru
viss vonbrigði en
málinu er hvergi
nærri lokið og
þetta er enginn
efnisdómur yfir
því sem stefnan
fjallar um,“ segir
hún.
Spurð hvort slitastjórnin geti
farið með málið fyrir íslenska
dómstóla í ljósi þess að hún hafi
hingað til ekki viljað fallast á
að þeir réðu við mál af þessari
stærðargráðu segir Steinunn: „Við
höfum í sjálfu sér ekki haldið því
fram. Við höfum haldið því fram
að málið ætti heima í Bandaríkjun-
um og það byggðist á ráðgjöf okkar
lögmanna. Niðurstaða dómsins var
önnur og við virðum það.“
Málarekstur fyrir dómstólum í
Bandaríkjunum er mjög dýr
en Steinunn segir kostn-
að slitastjórnarinnar
ekki unninn fyrir gýg.
Sú vinna sem farið hafi
fram ytra muni nýtast
við málsóknina, hvar sem
hún fari fram. Hún vill þó
ekki gefa upp hversu miklu
slitastjórnin hafi varið í
málið. Spurð hvort hún
telji slitastjórnina hafa
áframhaldandi stuðn-
ing kröfuhafa fyrir
málarekstrinum seg-
ist hún ekki hafa
áhyggjur af því.
stigur@frettabladid.is
Málið á heima á Íslandi
Dómari í New York vísar 230 milljarða skaðabótamáli á hendur sjömenningaklíku Jóns Ásgeirs frá dómi
með fyrirvörum. Vonbrigði en ekki áfall, segir formaður slitastjórnar Glitnis. Málinu sé hvergi nærri lokið.
STEINUNN
GUÐBJARTS-
DÓTTIR
PÁLMI
HARALDSSON
HANNES
SMÁRASON
LÁRUS WELDING JÓN SIGURÐSSON ÞORSTEINN
M. JÓNSSON
INGIBJÖRG
PÁLMADÓTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
12°
1°
-1°
1°
-2°
-6°
-3°
-3°
24°
4°
9°
-1°
14°
-3°
2°
11°
-4°Á MORGUN
5-10 m/s víða
en 10-20 m/s A-til.
FÖSTUDAGUR
10-20 m/s
um allt land.
4
2
-1
1
-2
-1
-2
6
4
7
-6
9
11
10
9
8
11
9
10
9
9
8
1
-5
-7
-7
-6 -1
-5
-6
-4
-2
BREYTINGAR
Næstu dagar verða
vindasamir, einkum
við austurströnd-
ina. Það kólnar
snögglega í dag
og síðdegis ætti
hitastigið að vera
komið niður undir
frostmark víðast
hvar. Á föstudaginn
spáir hvassviðri eða
stormi N- og A-til
ásamt snjókomu
og þá spillist færð.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
„Ég er mjög ánægður en um leið mjög leiður yfir því að hafa þurft að ganga í
gegnum þetta síðan í maí,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem slitastjórnin
fullyrðir að sé höfuðpaurinn í sjömenningaklíkunni sem sögð er hafa mergsogið
hundruð milljarða út úr Glitni. Jón Ásgeir bendir á að málsóknin hafi haft afdrifa-
ríkar afleiðingar fyrir þá sem hún beinist gegn, til dæmis hafi hann sjálfur þurft
að hætta í stjórnum félaga í Bretlandi.
Frávísun dómstólsins í New York er bundin þeim skilyrðum að stefndu viður-
kenni að íslenskir dómstólar hafi lögsögu í málinu, jafnvel þótt sumir þeirra séu
ekki búsettir á Íslandi, og að þeir fallist á að eignir þeirra alls staðar í heiminum
séu aðfararhæfar ef þeir tapi málinu hér heima. „Það er ekkert vandamál,“ segir
Jón Ásgeir. „Hins vegar sé ég ekki að skilanefndin geti farið með málið fyrir
íslenska dómstóla, búin að lýsa því ítrekað yfir að þeir
séu ekki hæfir til að taka á málinu. Að auki hafa
íslenskir lögspekingar tjáð mér að stefnan sem
sett var fram í Bandaríkjunum sé ekki dómtæk
á Íslandi.“
Jón Ásgeir segist ekki sjá hvernig
slitastjórninni sé sætt „eftir þessi ósköp“.
„Þau eru búin að eyða vel á þriðja milljarð
í þetta mál og ég trúi ekki að kröfuhafar
muni sætta sig við það. Þau lögðu allt undir
í þessu og töpuðu og þau hljóta að taka
pokann sinn.“
Jón Ásgeir segir að málareksturinn hafi
verið sjömenningunum dýr. „Þetta hefur
kostað okkur hjónin vel á þriðja hundrað
milljónir, plús auðvitað óþægindi sem verða
ekki metin til fjár.“ Spurður hvort
hann hyggist reyna að sækja það fé
aftur ef málið endar á þennan veg
jánkar hann því. „Ég held að það
séu allir á þeim buxunum að þeir
muni sækja sitt tjón.“
Slitastjórnin segi af sér og bæti tjónið
BANDARÍKIN Bandaríski diplóm-
atinn Richard Holbrooke lést á
sjúkrahúsi í Washington í gær
eftir skurðaðgerð til að lagfæra
rifna ósæð. Holbrooke þjónaði
öllum forsetum Demókrataflokks-
ins frá og með Kennedy en varð
heimskunnur sem sáttasemjari
árið 1995 þegar undirritað var
Dayton-samkomulagið sem batt
enda á Bosníustríðið. Í fyrra gerð-
ist hann sérstakur sendifulltrúi í
Afganistan og Pakistan.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti lýsti hryggð sinni yfir and-
láti Holbrookes og sagði hann
hafa verið „risa í utanríkisstefnu
Bandaríkjanna“. - mt
Höfundur Dayton-samnings:
Richard Hol-
brooke látinn
ÍTALÍA, AP Óeirðir brutust út fyrir utan
þinghúsið í Róm eftir að báðar deild-
ir ítalska þingsins höfðu samþykkt
traustsyfirlýsingu á Silvio Berlusconi for-
sætisráðherra og ríkisstjórn hans.
Mótmælendur kveiktu í bifreiðum,
brutu rúður og börðust við lögreglu,
sem beitti táragasi til að dreifa
mannfjöldanum.
Inni í þinghúsinu var spennan einnig
mikil þegar traustsyfirlýsingin var borin
undir atkvæðagreiðslu, fyrst í öldunga-
deild þar sem hún var samþykkt með
traustum meirihluta og síðan í fulltrúa-
deildinni þar sem aðeins munaði þremur
atkvæðum. Niðurstaðan er sigur fyrir
Berlusconi en áfall fyrir Gianfranco Fini,
leiðtoga Framtíðar- og frelsisflokksins.
Fini var áður bandamaður Berlusconis en
reynir nú að taka við af honum sem helsti
leiðtogi hægrimanna á Ítalíu.
Meirihluti Berlusconis á þinginu er
engu að síður ótraustur. Nokkrir flokksfé-
laga Finis snerust á síðustu stundu á sveif
með Berlusconi í gær og tryggðu tillög-
unni þar með þingmeirihluta.
Fini segir það munu koma í ljós á næstu
vikum hvort Berlusconi takist að tryggja
sér meirihluta áfram.
- gb
Ítalska þingið lýsti yfir trausti á forsætisráðherra á sama tíma og óeirðir brutust út:
Berlusconi slapp með skrekkinn í bili
ÓEIRÐIR Á ÍTALÍU Við þinghúsið í Róm tókust mótmælendur á
við lögreglu. NORDICPHOTOS/AFP
GENGIÐ 14.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,812
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,86 114,4
180,46 181,34
153,15 154,01
20,543 20,663
19,35 19,464
16,756 16,854
1,3711 1,3791
176,21 177,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is