Fréttablaðið - 20.12.2010, Page 28
20. desember 2010 MÁNUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
JOHN STEINBECK, bandarískur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (1902-1968) lést þennan dag.
„Það vill enginn ráðleggingar, bara staðfestingu.“
Ríkisútvarpið fagnar 80 ára afmæli
í dag. Afmælisárið hefur verið við-
burðaríkt og var þjóðinni boðið í
heimsókn í Útvarpshúsið í október í
tilefni afmælisins. Hér gefur að líta
nokkrar skemmtilegar myndir úr
sögu Ríkisútvarpsins.
31. desember 1930: Ríkisútvarpið
er stofnað. Á fyrstu áratugum
Útvarpsins er aðeins sent út á einni
útvarpsrás og fyrsta árið er aðeins
sent út í nokkrar klukkustundir á
hverju kvöldi.
30. september 1966: Sjónvarpið
hefur útsendingar. Fyrst um sinn er
einungis sjónvarpað tvisvar í viku
á föstudögum og miðvikudögum.
Fljótlega er útsendingardögum
fjölgað í sex en ekki sent út á
fimmtudögum.
1983: Sjónvarpsútsendingar alla
mánuði ársins, en áður var frí í júlí.
1. október 1987: Útsendingar Sjón-
varpsins eru sjö daga vikunnar.
September 1981: Tekið á móti
erlendu fréttaefni í gegnum
gervihnött.
1983: Rás 2 tekur til starfa og er
henni ætlað að höfða til yngri hlust-
endahóps en Rás 1.
1987: Útvarpið flyst í Efstaleiti 1.
30. september 1991: Textavarp Sjón-
varpsins lítur dagsins ljós.
1996: Þjónusta Ríkisútvarpsins á
internetinu hefst.
2000: Sjónvarpið flyst í Efstaleiti 1.
1. apríl 2007: Ríkisútvarpið ohf.
tekur til starfa með breyttu
rekstrar sniði.
RÍKISÚTVARPIÐ: STOFNAÐ FYRIR ÁTTATÍU ÁRUM
Hluti af daglegu lífi landans
DESEMBER 1971 María Markan óperusöngkona og Pétur Pétursson þulur ræðast við í sjónvarpssal.
Viðtalið var tekið fyrir þáttinn Kona er nefnd. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
1962 Valdimar Örnólfsson stjórnar morgunleikfimi í Ríkisútvarpinu. Hljóðnemi hangir fyrir framan
Valdimar og undir spilar maður á píanó. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
1962 Jón Múli Árnason í hljóðstofu
Útvarpsins með öskubakka og sígarettur
sér við hlið. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
UM 1970 Séra Sigurbjörn Einarsson biskup og Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður og síðar forseti, eru umkringdir ungu fólki í sjónvarpssal.
365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
1974 Gísli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjánsson sem Kaffibrúsakarlarnir ásamt Þórhalli Sigurðssyni
(Ladda), Bjarna Jónssyni, teiknara hjá sjónvarpinu, og Þóri Steingrímssyni tæknimanni hjá sjón-
varpinu. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Okkar ástkæra
Guðný Gísladóttir
frá Hnappavöllum í Öræfum,
síðar Sogni í Kjós
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði
miðvikudaginn 15. desember. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandanda
Guðni K. Elíasson.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Björn Berthel Líndal
Fyrrverandi forstjóri,
Hraunvangi 1 Hafnarfirði,
sem lést á heimili sínu þann 14. desember síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 22. desember kl. 13:00.
Guðmundur Ingi Björnsson
Ingibjörg Bertha Björnsdóttir Guðmundur Pedersen
Árni Már Björnsson Ásrún Jónsdóttir
Sigurbjörn Björnsson Unnur Petra Sigurjónsdóttir
Vilborg Anna Björnsdóttir Sigurður Flosason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórhallur Magnússon,
Fv. Flugstjóri, Asparási 6, Garðabæ,
Verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju þriðjudaginn 21.
Desember kl. 15.00
Hafdís Guðbergsdóttir
Guðberg Þórhallsson Sigrún Stefánsdóttir
Hulda Þórhallsdóttir Jóhann Kristinsson
Barnabörn og barnabarnabarn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hilmar R.B. Jóhannsson
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn
7. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birgir Hilmarsson
Sonur minn,
Marteinn Rafn
Sigurðsson
var bráðkvaddur sjöunda þessa mánaðar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey. Við viljum þakka öllu því góða fólki
sem annaðist hann til hinstu stundar.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður S. Guðmundsson Anna Lísa Sigurðardóttir.