Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2010, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 30.12.2010, Qupperneq 33
 30. DESEMBER 2010 FIMMTUDAGURHeilsuátak Má bjóða þér aðgang að öllum tímum, jafnt opnum sem lokuðum námskeiðum? Í Baðhúsinu borgar þú aðeins 5.990* kr. á mánuði og hefur aðgang að öllu þessu með þátttöku í KK klúbbnum. Klárar konur sjá hvaða leið er hagstæðust. -innifalið í áskrift- w w w. b a d h u s i d . i s S í m i 5 1 5 1 9 0 0 5. 99 0 * á m án uð i í K K á sk rif ta rk lú bb nu m , l ág m ar ks tím i 1 2 m án uð ir. H æ gt e r að v el ja u m 3 le ið ir, Sk ól aá sk rif t, G ru nn ás kr ift o g Eð al ás kr ift . Fr ír að ga ng ur a ð lo ku ðu m tí m um fy lg ir G ru nn - o g Eð al ás kr ift . Nánari upplýsingar á www.badhusid.is/kk Konur hafa sótt baðhúsið í 17 ár. Eftir áramótin hefjast heilsu- átaksnámskeið til viðbótar við fasta tíma stöðvarinnar. „Uppistaðan í starfseminni eru fastakúnnarnir sem hafa komið árum saman. Margar hafa verið með frá uppphafi og nú eru einn- ig margar konur að koma aftur inn. Baðhúsið var hluti af stórri keðju á tímabili en er nú aftur komið í einkaeigu Lindu Péturs- dóttur. Það er allt önnur og nota- legri stemming þegar hlutunum er ekki fjarstýrt af stóri batteríi,“ útskýrir Kristjana Þorgeirsdótt- ir, verkefnastjóri líkamsræktar í Baðhúsinu. Baðhúsið hefur starfað í 17 ár. Það er einungis ætlað konum og segir Kristjana megináherslu ávallt hafa verið lagða á nota- legt umhverfi. Meðal þess sem er á dagskrá Baðhússins strax eftir áramótin eru heilsuátaks- námskeið sem hafa jafnan verið vel sótt. „Heilsuátak eru alltaf gríðar- lega vinsæl námskeið hjá okkur. Þrátt fyrir að fólk sé farið að æfa meira allt árið um kring fer það líka á skemmri námskeið til að fá meira utanumhald,“ segir Kristjana en námskeiðin fyll- ast hratt þessa dagana. „Á þess- um tíma er fólk að taka sig á eftir vellystingar jólanna. Námskeiðin eru hins vegar ákveðinn kjarni í dagskránni hjá okkur allt árið og við byrjuðum að keyra þessi námskeið í nóvember. Þau eru byggð upp á vaxtarmótandi æf- ingum og styrktarþjálfun og eins fáum við næringarþerapista sem heldur fyrirlestur um mataræði almennt. Fólk þarf alltaf áminn- ingu varðandi mataræði. Þó að þetta séu hlutir sem fólk kannski veit og kann virðist hollustan allt- af eiga erfitt uppdráttar á móti vel lystingunum.“ Stundaskrá Baðhússins býður upp á fjölbreytta tíma og nefnir Kristjana Hot jóga, Tabata og Salsaleikfimi sem vinsæla tíma en margar æfinganna í Baðhús- inu eru með dansívafi. Hún segir einnig vinsælt að mæta til æf- inga eldsnemma á morgnana og er meðal annars boðið upp á nám- skeið klukkan 7 á morgnana. „Það er alltaf að verða vinsælla að konur drífi sig fyrir vinnu í ræktina. Ef fólk nær þeirri rútínu þá vill það ekki skipta. Það er gott að vera búin að þessu að vinnu- degi loknum.“ Kristjana segir einkaþjálfun einnig mjög vin- sæla og hafi í raun aukist síðustu ár frekar en hitt. „Þetta er eitt af því sem fólk á ekki að minnka við sig. Þú ert miklu betur undirbúin til að takast á við aðrar áhyggjur í lífinu ef þú ert í góðu líkamlegu ástandi. Maður á ekkert eftir ef maður missir heilsuna. Við finn- um alls ekki fyrir minni aðsókn, frekar gleði og notalegri stemm- ingu hér í Baðhúsinu.“ Notalegheit í Baðhúsinu Kristín Rúnarsdóttir er einn af þjálfurum Baðhússins og er til dæmis með námskeið snemma á morgnana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „KK klúbburinn er okkar áskriftar- klúbbur við Baðhúsið. Þar borga konurnar alltaf lægsta mögulega gjald á mánuði allt árið um kring en lágmarks binditími er 12 mán- uðir. Þá er ekki hægt að nota þá afsökun að kortið sé útrunnið til að sleppa við ræktina,“ segir Kristjana hlæjandi. Meðlimir KK klúbbsins fá ótakmarkaðan aðgang að öllum opnum tímum, tækjasal, heitri laug, vatnsgufu og hvíldarhreiðri auk 10 prósenta afláttar af snyrtivörum og af þjón- ustu snyrtistofu, nuddstofu og af heilsudrykkjum. Einnig er hægt að skrá sig í svokallaða Eðal áskrift. „Þá fær viðkomandi handklæði í hvert skipti sem mætt er, ár- skort í sundlaugarnar og dekur- pakka sem hægt er að nota yfir allt árið á snyrtistofu Baðhússins, tíma hjá einkaþjálfara, næringar- þerapista og margt fleira. Ásókn í Eðal áskriftina hefur aukist mikið því það munar ekki nema 1.000 krónum á Eðaláskrift og grunn- áskrift í KK klúbbnum, en þæg- indin eru mikil.“ KK klúbbur og Eðaláskrift Meðlimir KK klúbbsins fá ótakmarkaðan aðgang að öllum opnum tímum, tækjasal, heitri laug, vatnsgufu og hvíldarhreiðri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.