Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2010, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 02.11.2010, Qupperneq 6
6 2. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL Til þess að komast út úr kreppunni þurfum við að nýta auðlindirnar og vera með hvetj- andi skattkerfi sem laðar hingað fjárfestingar. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, við kynningu á þingsályktunartillögu flokksins um „aðgerðir til að stuðla að sátt við heimilin, verja velferð með ábyrgum ríkisfjármálum, efla atvinnulífið og fjölga störfum“. Ályktunin sem allur sextán manna þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins stendur að, verður lögð fram á þingi á fimmtudag. Bjarni sagði margt í tillögunni kunnuglegt frá fyrri tillögu flokks- ins en nauðsynlegt væri að ítreka sumt af því sem áður hefði verið sagt. Ástandið hefði versnað, upp- haflega hefði staðið til að sam- starfið við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn stæði fram á þetta haust. „En eins og allir sjá hefur gjörsamlega mistekist að skapa umhverfi fyrir ný störf, koma fjárfestingu af stað og það er mikil örvænting á heim- ilunum.“ Tillögur flokksins væru grundvöllur þess að hér yrði áfram verðmætasköpun og störfum tæki að fjölga á ný. Bjarni rakti kostnaðinn við tillög- ur sjálfstæðismanna. Saman dregið kostuðu skattaaðgerðirnar rúma 30 milljarða og áherslur í skólamálum kostuðu nokkra milljarða að auki. „Þá kemur á móti sú fjölgun starfa sem við teljum að sé raunhæft að leggja upp með hér. Hún mun á móti bæta stöðu ríkis sjóðs í kring- um 36 milljarða á næsta ári og 33 milljarða 2012.“ Ráðstafanirnar færðu því ríkissjóði bata sem næmi um tveimur milljörðum umfram þann sem áform ríkisstjórnarinn- ar myndu færa. Enn og aftur ítrekaði Bjarni þá skoðun Sjálfstæðisflokksins að við gætum hvorki skattlagt okkur út úr kreppunni né lokað fjárlagagatinu með niðurskurði einum saman. Bjarni sagði mikilvægt að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. Ekki ætti að vera vand- kvæðum bundið að greiða úr vanda þeirra sem skulduðu milljarð eða minna og byggja á raunhæfum rekstraráætlunum. Að sama skapi væri ljóst að ekki yrði öllum fyrir- tækjum bjargað, sum yrðu að fara á hausinn. bjorn@frettabladid.is Hægt að skapa 22.000 störf Sjálfstæðisflokkurinn leggur til víðtækar efnahagsaðgerðir fyrir heimilin, atvinnulífið og ríkissjóð. Draga ber skattahækkanir til baka, lækka greiðslubyrði, auka aflaheimildir og fara í stóriðjuframkvæmdir. Flokkur- inn telur að þrátt fyrir skattalækkanir færi tillögurnar ríkissjóði betri afkomu en leið ríkisstjórnarinnar. Heimilin ■ Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar verði dregnar til baka á næstu tveimur árum. ■ Greiðsluaðlögunarúrræði verði einfölduð verulega og rýmkuð frá því sem nú er. ■ Öllum sem þess óska standi til boða að lækka greiðslubyrði fast- eignalána um allt að 50% næstu þrjú ár gegn lengri lánstíma. ■ Þeir sem missa atvinnu eigi rétt á frystingu á greiðslum vegna hús- næðisskulda í allt að sex mánuði. ■ Þeim sem misst hafa fasteignir sínar vegna mikillar skuldsetningar eða gjaldþrots verði gert kleift að endurleigja gegn hóflegri greiðslu sem endurspegli markaðsverð. Atvinnulífið ■ Þorskafli verði aukinn um 35 þúsund tonn. ■ Horfið verði frá hugmyndum um fyrningarleið. ■ Framkvæmdir við álver í Helguvík verði hafnar. ■ Arðbærum framkvæmdaverkefn- um verði komið af stað í sam- vinnu við lífeyrissjóðina og aðra fjármögnunaraðila. ■ Stjórnvöld leiti í fullri alvöru leiða til að koma af stað orkufreku atvinnuverkefni að Bakka. ■ Óhagkvæmir skattar sem letja verðmætasköpun verði afnumdir. ■ Skattaafslættir vegna rannsókna og þróunarstarfs verði auknir enn frekar. ■ Afsláttur frá tryggingargjaldi verði veittur fyrirtækjum sem sýnt geta fram á að störfum hafi fjölgað árin 2011 og 2012. ■ Skattaafslættir vegna hlutafjár- kaupa verði innleiddir á ný. ■ Vörugjöld og verndartollar sem skekkja samkeppni og rýra hag almennings verði endurskoðaðir. ■ Aðstoð verði veitt fólki sem hefur verið atvinnulaust í sex mánuði eða lengur og hefur áhuga á að hefja eigin rekstur. ■ Aðilum vinnumarkaðar verði falin umsjón með málefnum atvinnu- lausra. ■ Endurskipulagningu skulda fyrir- tækja verði að fullu lokið fyrir 31. mars 2011. Ríkisreksturinn ■ Ríkissjóður verði rekinn hallalaust 2013. Við niðurskurð og sparnað verði tryggður jafn réttur allra til grunnþjónustu í heimabyggð. ■ Hagræða þarf í grunn- og fram- haldsskólum og byggja á aukinni hagkvæmni á háskólastiginu. ■ Útrýma á fátæktargildrum í lífeyr- is- og bótakerfum og skerpa hvata til atvinnuþátttöku. ■ Lífeyrisréttindakerfi opinberra starfsmanna verði samræmt almenna kerfinu. ■ Heilbrigðiskerfið verði endurskipu- lagt með aukinni hagkvæmni, auknu svigrúmi fyrir starfsemi einkaaðila og í auknum mæli verði byggt á samkeppni. Leið Sjálfstæðisflokksins LEIÐIN KYNNT Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti tillögu flokksins í efnahagsmálum í Valhöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJÉTUR HJALTEYRI Gamla síldarverksmiðj- an á Hjalteyri við Eyjafjörð verð- ur seld eða leigð út, ef tillögur sveitarstjórnar Hörgársveitar ná fram að ganga. Listafólk hefur meðal annarra haft aðstöðu í verksmiðjunni undanfarin tvö ár. Þetta kemur fram á nordur- landid.is. Verksmiðjan var með afkasta- mestu síldarvinnslum Evrópu þegar hún var byggð 1937. Seint á 7. áratugnum lagðist vinnsla af í verksmiðjunni, sem er um 7.000 fermetrar að stærð. Aðeins hefur ríflega helmingur húsanna verið nýttur undanfarin ár og vill sveitar stjórnin auka nýtingu þeirra. Breytingar á Hjalteyri: Síldarverksmiðj- an seld eða leigð SJÁVARÚTVEGSMÁL Frístundaveiði- bátar í krókaaflamarkskerfinu veiddu samtals 264 tonn á þessu ári, samkvæmt tölum Fiski- stofu. Um 200 bátar veiddu aflann, allt frá nokkrum kílóum upp í tæp 13 tonn. Hvíldarklettur ehf. og Sumar- byggð hf. á Vestfjörðum voru aflahæst í frístundaveiðunum. Aflinn telst í krókaaflamarks. Þá varð afli í sjóstangaveiði- mótum 151 tonn í ár en hann er utan kvóta. Aflaháir bátar á Vestfjörðum: 264 tonn veidd í frístundaveiðum FRÁ HJALTEYRI Selja á eða leigja út gömlu síldarverksmiðjuna á Hjalteyri samkvæmt hugmyndum sveitastjórnar í Hörgársveit. FRÉTTABLAÐIÐ/VERA Réðist á leigubíl Lögregla handtók í fyrrinótt ölóðan mann sem hafði skeytt skapi sínu á leigubíl. Maðurinn sparkaði ítrekað í leigubílinn svo skemmdir hlutust af en stökk á flótta þegar vitni að aðförunum ætluðu að skerast í leikinn. Hann féll fljótlega í götuna og var hirtur upp af lögreglu. Hann svaf síðan úr sér vímuna í fangaklefa. LÖGREGLUFRÉTTIR EFNAHAGSMÁL Atvinnuleysi mælist nú 7,5 prósent í Þýskalandi, sem merkir að rúm 3,1 milljón manna er þar án atvinnu, samkvæmt upp- lýsingum hagstofu Evrópusam- bandsins. Óendurskoðaðar tölur sem Ursula von der Leyen, vinnumálaráðherra Þýskalands, lak til fjölmiðla þar í landi á fimmtudag bentu til sjö pró- senta atvinnuleysis. Slíkar tölur hafa ekki sést í Þýskalandi í átján ár, síðan árið 1992. Þrátt fyrir það geta Þjóðverj- ar verið sáttir. Dregið hefur úr atvinnuleysi þar samfleytt í sextán mánuði og er það nú nokkuð undir meðalatvinnuleysi á evrusvæð- inu. Þar mælist það 10,1 prósent og hefur aldrei verið meira. Minnst er atvinnuleysið í suð- austurhluta Þýskalands, sem áður tilheyrði Vestur-Þýskalandi, eða nálægt fjórum prósentum. Í fyrr- verandi Austur-Þýskalandi er það hins vegar yfir tíu prósentum. Financial Times hefur eftir þýsk- um sérfræðingum aukna atvinnu- þátttöku haldast í hendur við bata efnahagslífsins í Þýskalandi. Þar er spáð 3,4 prósenta hagvexti á árinu. - jab Aukin atvinnuþátttaka í Þýskalandi er í takt við bættar efnahagshorfur þar í landi: Atvinnuleysi mælist 7,5 prósent MÁLIN RÆDD Vinnumálaráðherrann Ursula von de Leyen lak tölum til fjöl- miðla á miðvikudag sem bentu til mun minna atvinnuleysis en raunin varð. Hér ræðir hún við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift *Árleg nafnávöxtun frá 15.01.2001 til 31.09.2010. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. @Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is Eiga stjórnvöld að setja aukið hlutfall fjármuna til rannsókn- arstarfs í samkeppnissjóði? Já 36,6% Nei 63,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Finnst þér þú borða nógu hollan mat? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.