Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 10
10 2. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Skoðanakannanir í Bandaríkjun-
um spá demókrötum ekki góðum
árangri í þingkosninunum, sem
haldnar verða í dag. Þeir hafa
haft öruggan meirihluta í báðum
deildum þingsins, en nú virðist
ætla að verða breyting þar á.
„Það er eiginlega gefið að þeir
missi meirihlutann í fulltrúa-
deildinni,“ segir Magnús Sveinn
Helgason, sérfræðingur í banda-
rískum stjórnmálum. „Það þarf
eitthvað mjög merkilegt að ger-
ast til að svo verði ekki. Það gerir
enginn ráð fyrir því. Stóra spurn-
ingin snýst um það með hversu
miklum mun demókratar tapa í
fulltrúadeildinni, og hvort meiri-
hluti repúblikana verður mjög
naumur.“
„Eiginlega er engin spenna
heldur um öldungadeildina,“ segir
Magnús, „því allar líkur eru til
að demókratar haldi meirihluta
sínum þar. Það þarf eitthvað mjög
skrýtið að gerast til að það verði
ekki.“
Mesta spennan
Magnús segir að mesta spenn-
an í kosningunum snúist í kring-
um það hvernig Teboðshreyfing-
unni svonefndu vegnar, umdeildri
grasrótarhreyfingu róttækra
hægrimanna innan Repúblikana-
flokksins sem hefur heldur betur
hrist upp í kosningabaráttunni.
„Í því sambandi beinast sjón-
ir manna einkum að Nevada, þar
sem Sharron Angle býður sig
fram gegn Harry Reid, leiðtoga
meirihluta Demókrataflokksins
í öldungadeild. Það er allt útlit
fyrir að Angle vinni, en þó er
ekki alveg útilokað að Reid haldi
sætinu. Ef svo fer, að Angle tapar
eða vinnur mjög nauman sigur þá
munu það verða með áhugaverð-
ustu niðurstöðum kosninganna,
því í byrjun ársins leit út fyrir
að Reid myndi tapa með gríðar-
legum mun, því hann hefur ekki
verið mjög vinsæll. Angle er hins
vegar það róttæk að henni hefur
tekist að reita fylgið af Repúblik-
anaflokknum, og tapi hún verð-
ur það túlkað sem mikill ósigur
fyrir Teboðshreyfinguna.“
Allt samkvæmt bókinni
Fyrir fram á það reyndar að koma
fáum á óvart þótt demókratar tapi
fylgi í þessum kosningum, sem
eru fyrstu millikosningarnar eftir
að Barack Obama var kosinn for-
seti fyrir tveimur árum.
„Það er nánast ófrávíkjanleg
regla að flokkur sitjandi forseta
Sjónir manna beinast að Nevada
Demókratar í Bandaríkjunum hafa síðustu daga reynt að draga eftir því sem hægt er úr því tapi, sem þeirra bíður í þingkosningunum
í dag. Magnús Sveinn Helgason segir mestu spennuna í kosningunum snúast um frambjóðendur Teboðshreyfingarinnar svonefndu.
FORSETINN OG VARAFORSETINN Barack Obama og Joe Biden mega búast við erfið-
leikum við að koma lögum í gegnum þingið næstu tvö árin. NORDICPHOTOS/AFP
Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild, gæti
hæglega misst þingsæti sitt í kosningunum í dag.
Hann er orðinn sjötugur og hefur setið á þingi fyrir
Nevadafylki síðan 1983, fyrst í fulltrúadeildinni og
síðan í öldungadeild frá 1987. Repúblikaninn og
Teboðsframbjóðandinn Sharron Angle keppir við
Reid um þingsætið og virðist ætla að velta honum
úr sessi.
Harry Reid í baráttu við
teboðskonu
Sparaðu
með Siemens
Siemens er þekkt fyrir
umhverfisvæna stefnu
sína og er í fremstu röð
þegar skoðaðar eru
tækninýjungar er varða
orkusparnað á heimilum.
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.issparnaður
-50%
1995 2010
0,13 kwst.
sparnaður
-36%
1995 2010
0,11 kwst. 0,07 kwst.
sparnaður
-48%
1995 2010
Þvottavél
WM 16S770DN
Orkunotkun miðuð við
þvott á 1 kg á 60° C.
Uppþvottavél
SN 46T590SK
Orkunotkun miðuð við
borðbúnað fyrir einn.
Kæliskápur
KG 36VX74
Orkunotkun miðuð við
100 l á sólarhring.
0,48 kwst. 0,25 kwst.0,26 kwst.
FRÉTTASKÝRING: Þingkosningar í Bandaríkjunum
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
ÖÐRU VÍSI KOSNINGASTEMNING Fjölmennasti kosningafundur ársins var haldinn í Washington um helgina að frumkvæði sjón-
varpsgrínistanna Jons Stewart og Stephens Colbert undir kjörorðinu: Endurreisum heilbrigði og/eða ótta. NORDICPHOTOS/AFP
tapar í millikosningum. Einnig er
nánast gefið að sá flokkur, sem er
við völd þegar efnahagsástandið
er svona slæmt, tapar atkvæð-
um,“ segir Magnús.
„Fyrir utan þetta, þá er það
líka nánast venjulegt ástand í
Bandaríkjunum að flokkur for-
setans sé ekki með meirihluta í
báðum þingdeildunum. Og svo er
eitt í viðbót, því demókratar unnu
svo stóra sigra bæði 2006 og 2008
að þeir hafa verið með mörg sæti
sem voru sögulega sæti Repúblik-
anaflokksins.“
Illvígt þrátefli
Magnús segir ástandið í þinginu
verða gjörbreytt fari svo, sem allt
bendir til, að demókratar missi
meirihluta sinn í fulltrúadeild-
inni.
„Þingið mun ekki starfa með
forsetanum, svo það stefnir í
tvö ár af þrátefli milli þings og
forseta. Þetta verður ekki bara
pattstaða, heldur má búast við
illvígum átökum því Repúblik-
anaflokkurinn hefur beinlín-
is lýst því yfir að það sé helsta
markmið hans á næstu tveimur
árum að grafa undan forsetanum
og koma í veg fyrir að hann nái
endurkjöri eftir tvö ár.“
Þetta þýðir að Bandaríkjafor-
seti mun eiga erfitt með að koma
lögum í gegnum þingið.
„Það má til dæmis gefa sér að
næstu tvö árin verða ekki sam-
þykktar neinar nýjar aðgerðir til
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda,“ segir Magnús.
Óljós framtíð
Ekki er gott að segja hvernig
Teboðshreyfingunni reiðir af eða
hvaða áhrif hún hefur á Repúblik-
anaflokkinn til frambúðar.
„Teboðshreyfingin er grasrótar-
bylting innan Repúblikanaflokks-
ins og hann nýtur góðs af því.
Hins vegar á eftir að sjá hvern-
ig spilast úr þessu til lengri tíma
litið. Þessi hreyfing er mjög rót-
tæk og það gæti verið slæmt fyrir
flokkinn að vera kominn of langt
til hægri þegar efnahagsástandið
batnar og óánægjufylgið minnk-
ar.“
Bandaríkjamenn ganga
til þingkosninga á tveggja
ára fresti, jafnan fyrsta
þriðjudaginn í nóvember, og
er þá kosið um alla þingmenn
fulltrúadeildar, en þeir eru alls
435, og þriðjung þingmanna
öldungadeildar, eða 37 þetta árið.
Forsetakosningar eru í Bandaríkj-
unum haldnar á fjögurra ára fresti
þannig að í annað hvert skipti eru
þingkosningar án forsetakosninga.
Auk þess er efnt til ríkisstjórakosn-
inga á hverju ári, og í ár eru þær
haldnar í 39 ríkjum.
Kosið á tveggja
ára fresti