Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 14
14 2. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Reykjavíkurborg hefur þróast hratt í átt til fjölmenningarsamfélags á undan- förnum árum. Í upphafi árs 2010 voru borgar búar 118.326 talsins og af þeim voru 8,1 prósent, um 9.555, með erlent ríkisfang. Þá eru ekki taldir með þeir innflytjendur sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt. Laugardaginn 6. nóvember fer fram fyrsta fjölmenningarþingið sem haldið er af Reykjavíkurborg. Þar mun fólk af erlendum uppruna, búsett í Reykjavík, fá tækifæri til að koma skoðunum sínum um þjónustu borgarinnar á framfæri. Þingið fer fram í Borgarleikhúsinu frá kl. 10 til 14. Markmið- ið með þinginu er að bæta þjónustu Reykja- víkurborgar við innflytjendur en með fjöl- breytilegri mannlífsflóru liggur í hlutarins eðli að krafan um þjónustu tekur breyt- ingum. Með fjölmenningar þinginu vonast borgin til að geta mætt þörfum nýrra íbúa borgarinnar betur með því að hlusta á þær raddir sem þar koma fram. Það er stjórn borgarinnar mikilvægt að heyra raddir íbúa til að geta mótað þjónust- una með því að taka tillit til mismunandi þarfa þeirra. Krafan um þjónustu getur verið ólík frá fólki með mismunandi menn- ingarbakgrunn en markmið borgarinnar er að allir borgarbúar njóti sem bestrar þjón- ustu burt séð frá uppruna þeirra. Í mannréttindastefnu Reykjavíkurborg- ar segir að tryggt skuli að innflytjendur og fólk af erlendum uppruna eigi greiðan aðgang að þjónustu borgarinnar. Þá skal tekið mið af þörfum innflytjenda þegar þjónusta á vegum borgarinnar er skipulögð og stofnunum borgarinnar ber að búa til aðgengilegt og auðskilið upplýsingaefni um þjónustu borgarinnar á tungumálum þeirra hópa sem fjölmennastir eru í Reykjavík. Loks er kveðið á um í mannréttindastefn- unni að starfsfólk borgarinnar skuli leggja sig fram um að skapa andrúmsloft sem sé laust við fordóma í garð einstaklinga vegna uppruna, litarháttar, þjóðernis eða menn- ingarlegs bakgrunns. Á fjölmenningarþinginu verður kosið í fyrsta fjölmenningarráð Reykjavíkurborg- ar en tilgangur ráðsins er að vera ráðgef- andi fyrir mannréttindaráð og stofnanir borgarinnar í málefnum innflytjenda. Allir sem eru eldri en 18 ára, búa í Reykjavík og eru af erlendum uppruna geta boðið sig fram til ráðsins en það verður skipað fimm fulltrúum og tveimur varamönnum. Það er von mannréttindaráðs að sem flestir innflytjendur sjái sér fært að mæta á fjölmenningarþingið og það verði vett- vangur uppbyggilegra skoðanaskipta til að bæta þjónustu borgarinnar. Hlustum á raddir innflytjenda Innflytj- endamál Margrét Sverrisdóttir, Sigurjón Birgir Sigurðsson, Margrét Kristín Blöndal, Bjarni Jónsson, Björn Gíslason, Þórey Vilhjálms- dóttir, Elín Sigurðardóttir fulltrúar í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar Þ ingmenn Hreyfingarinnar og lausbeislaður hópur kenndur við tunnumótmæli, sem varaformaður Frjálslynda flokksins er í forsvari fyrir, hafa lagt til að mynduð verði utanþingsstjórn sem hafi það verkefni að leysa úr brýnustu vandamálum þjóðar- innar. Tunnumótmælendur segja þau mál vera skuldavanda heimilanna og vaxandi atvinnuleysi en Hreyfingin nefnir að auki að setja þurfi lágmarks framfærsluviðmið og ráðast í lýð- ræðisumbætur. Fjárlög eru líka á lista Hreyfingarinnar yfir verkefni utanþingsstjórnarinnar og báðar hreyfingar segja að endurskoða beri samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Að baki hugmyndum um utanþingsstjórn búa draum- ar um að hægt sé að leysa úr öllum helsta vanda þjóðarinnar með töfrabrögðum. Því miður ríma slíkir draumar ekki við veruleikann. Auðvitað væri óskandi að hægt væri að segja hókus pókus, burt með atvinnu- leysið og skuldir heimilanna. Hér skal fullyrt að væri það hægt hefði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar gripið til þess ráðs. Þó að margt megi segja um stjórnina getur enginn maður með góðu móti sagt að hún sé hlynnt atvinnuleysi og óyfirstíganlegum skuldum. Hugmyndir Hreyfingarinnar og tunnufólksins ganga út á að færa stjórnmálin að hluta frá stjórnmálamönnunum og yfir til óskilgreinds hóps manna. Reyndar ekki alveg óskilgreinds því Hreyfingin vill að hann taki meðal annars mið af tillögum Hagsmunasamtaka heimilanna um lausn bráðavanda skuld- settra heimila. Hreyfingin leggur sem sagt utanþingsstjórninni verkefnið í hendur og ætlast þá til að í hana veljist fólk sem telur tillögur Hagsmunasamtakanna færar og er tilbúið að fara að þeim. Gagnlegt væri fyrir stjórnina að fá sambærilegar leið- beiningar um hvernig ráðast eigi gegn atvinnuleysinu. Sama á við um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hvað þýðir að það eigi að endurskoða? Á að breyta efnahagsáætluninni eða hætta samstarfinu? Og hvað meinar Hreyfingin þegar hún nefnir fjárlög sem verkefni utanþingsstjórnar? Eins og áður sagði snúast tillögur um utanþingsstjórn að hluta til um flutning stjórnmálanna frá stjórnmálamönnun- um. En aðeins að hluta. Löggjafarvaldið verður eftir sem áður í höndum Alþingis og 48. grein stjórnarskrárinnar, þar sem segir að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína, er í fullu gildi. Ætlast Hreyfingin og varaformaður Frjálslynda flokksins til þess að Alþingi greiði atkvæði með frumvörpum utanþings- stjórnarinnar með bundið fyrir augun? Á þingið að fá formlega stöðu sem afgreiðslustofnun framkvæmdarvaldsins? Tillögur um utanþingsstjórn eru ágætar til að sýna ímugust á ríkisstjórninni. En raunhæfar eru þær ekki. Gæti utanþingsstjórn leyst skuldavanda heimilanna og útrýmt atvinnuleysinu? Varla, því miður SKOÐUN Björn Þór Sigbjörnsson bjorn@frettabladid.is Krísustjórnun Það mæðir mikið á Þjóðkirkjunni. Kynferðisbrot og ásakanir um trúboð í skólum ber þar hæst. Upplýsinga- fulltrúi Biskupsstofu og upplýsinga- gefinn verkefnisstjóri hafa reynt að dempa höggið en gengið mis- jafnlega. Svo á kirkjan að skera niður eins og aðrar stofnanir en segist ekki eiga fyrir því. Þar að auki sé hún of mikilvæg til þess. Og hvað gera kirkjunnar menn þá? Jú, þeir eyða 900 þúsund krónum í að bæta ímynd sína með almannatengsla- þjónustu. Í góðum félagsskap Samtökin Vantrú voru að sjálfsögðu fyrst til að segja frá þessu í gær. Hvað eiga fyrirbærin Alcoa, Bændasam- tökin, Fjarðaál og ríkiskirkjan sameiginlegt? spurðu þeir Vantrúuðu. Jú, þau eru öll í viðskiptum við KOM almannatengsl. Eins og reyndar fjöldi annarra fyrirtækja og samtaka. Grænn eða grár hagvöxtur Norðurlandaráð fundar þessa dagana í Reykjavík. Umhverfisvernd, endurnýjanleg orka og sjálfbærni eru mönnum ofarlega í huga. Norður- löndin virðast hafa komið sér saman um að svokallaður grænn hag- vöxtur sé eina skynsamlega leiðin út úr kreppunni. Á nákvæmlega sama tíma kynnir Sjálfstæðis- flokkurinn sína leið út úr kreppunni. Einna mikilvægustu vörðurnar á þeirri leið eru álver í Helguvík og álver á Bakka. stigur@frettabladid.is ERTU MEÐ VIÐKVÆMA HÚÐ? Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu eða færðu sár við notkun dömubinda? Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs, ilm- og plastefna. www.natracare.is LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR Nàttúruleg vellíðan

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.