Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 18
Lífsýn fræðslumiðstöð hefur gefið út sjálfshjálpardisk ætlaðan þeim sem vilja vinna sig út úr fíkn. Diskurinn hefur að geyma hugleiðsluæfingar sem farið er í gegnum og eru lesnar af Elvari Bragasyni ráðgjafa. Allar upplýsingar veittar hjá Lífsýn, sjá lifsyn.is. Lyfjafræðingurinn Guðrún Páls- dóttir opnaði Urðarapótek í Grafarholti fyrir skemmstu en þar með rættist gamall draumur. „Ég er vissulega að taka áhættu en ég hef aldrei gert neitt jafn skemmti- legt,“ segir Guðrún. Hún hefur lengst af starfað við markaðssetningu á lyfjum. „Fyrir nokkrum árum ákvað ég að söðla um og fara í MBA-nám. Að því loknu fór ég að vinna í apóteki og kom það mér á óvart hvað mér þótti það gaman. Eftir þrjú ár réð ég mig sem framkvæmdastjóri fyrirtækis í samheitainnflutningi en fann bara ekki gleðina, sagði upp og ákvað að fara af stað með eigin rekstur.“ Guðrún segir einyrkjaapótekum að fjölga á ný en um tíma fór þeim ört fækkandi. „Það hefur orðið við- snúningur en bara á síðasta rúma ári hafa þrjú ný apótek opnað en það eru Apótek Hafnarfjarðar, Reykjavíkurapótek og nú Urðar- apótek. Ég veit ekki nákvæmlega hvað veldur en hugsa að ég hefði ekki fengið þetta tækifæri ef ekki væri fyrir kreppuna, því þá væri löngu komið apótek hér í Grafar- holti.“ Guðrún hefur mikla ánægju af nýja starfinu og segir samskipt- in við viðskiptavini gefa sér mest. „Ég legg ríka áherslu á góða þjón- ustu og samkeppnishæft verð og tel að þjónustan sé betri í svona litlum apótekum en hjá stórum keðjum í verslunarmiðstöðvum.“ Guðrún segist bjóða hefðbundið vöruúrval og þjónustu á borð við lyfjaskömmtun, póst- og heim- sendingar auk þess sem hún er með gott úrval af snyrtivörum. En hvaðan kemur nafnið á apó- tekinu? „Þetta var í raun fyrsta nafnið sem kom upp í hugann á mér. Síðan vann ég með nafn- ið Grafarholts apótek en fannst það heldur óþjált. Ég ákvað því að fylgja hjartanu og breytti því aftur í Urðarapótek rétt fyrir opnun enda finnst mér það undir- strika að þetta er ekki keðja.“ vera@frettabladid.is Opnar eigið apótek í Grafarholti Guðrún Pálsdóttir tók djarfa ákvörðun fyrir skemmstu og opnaði eigið apótek í Grafarholti. Hún sér ekki eftir því, enda hefur hún aldrei gert neitt skemmtilegra. Hún fylgdi hjartanu og nefndi apótekið eftir fyrsta hugboði. Guðrún, lengst til hægri, ásamt samstarfskonum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Námskeiðið 60+ er sérhannað með þarfir eldri borgara í huga. Í Heilsuborg í Faxafeni hófst í gær námskeiðið 60+, sem eingöngu er ætlað fyrir 60 ára og eldri. Nám- skeiðið er sagt henta vel þeim sem vilja auka vöðvastyrk, hægja á beinþynningu, ná betra jafnvægi, auka úthald við dagleg störf og fá markvissa þjálfun og ráðgjöf. Námskeiðið er fjögurra vikna lokað námskeið með léttri leikfimi, tækjaþjálfun, slökun og vellíðan. Námskeiðin eru haldin á fjögurra vikna fresti og njóta mikilla vin- sælda. - fsb Líkamsrækt fyrir 60 plús Það er óþarfi að sitja með hendur í skauti þótt árin færist yfir. Námskeiðið 60+ er eingöngu fyrir eldri borgara. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Einyrkjaapótek á Íslandi ● Apótek Hafnarfjarðar ● Apótek Vesturlands ● Reykjavíkurapótek ● Garðsapótek ● Árbæjarapótek ● Laugarnesapótek ● Rimaapótek ● Lyfjaver ● Urðarapótek Heimild: Lyfjastofnun.is Engin lyf eru til gegn kvefi og bólusetning við kvefi er ekki til. Eftir að maður hefur fengið kvefpest af völdum eins afbrigðis þeirrar veiru sem veldur henni fær maður hana þó ekki aftur. Mikilvæg for- vörn gegn kvefi er handþvottur. www.wikipedia.org Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á www.madurlifandi.is 03. nóvember - kl. 18:00 - 20:00 Matreiðslunámskeið - Hvernig á að gera heimilismatinn hollari Elísabet Reynsidóttir Næringarþerapisti C.E.T. Linda Pétursdóttir Certified Holistic Health Counselor 04. nóvember - kl. 18:30 - 20:30 Sykurfíknin söltuð 05. nóvember - kl. 17:30 - 20:30 Matreiðslunámskeið - heilnæmt, grænt og gómsætt 06. nóvember - kl. 12:00 - 15:00 Súpuveisla að hætti Lindu Maður lifandi námskeið Borgartúni 24 105 Reykjavík Hæðasmára 6 201 Kópavogi Hafnarborg 220 Hafnarfjörður Sími: 585 8700 www.madurlifandi.is Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Viltu ná kjörþyngd og komast í form? TT námskeiðin okkar sívinsælu, frá toppi til táar, miðast við að veita konum leiðsögn um lífshætti sem skila árangri. Þau byggjast á áralangri reynslu og fela í sér leiðbeiningar um mataræði, líkamsbeitingu, fundi, vigtun og mælingar. TT námskeiðin standa yfir í sex vikur. Þrjá tíma í viku er stunduð markviss líkamsrækt sem eflir þol og styrk og tekur mið af einstaklingsbundinni getu. Vigtað er í hverjum tíma og mælingar gerðar þrisvar á tímabilinu. Fundur er haldinn einu sinni í viku. Við veitum persónulega þjónustu í notalegu umhverfi þar sem algjör trúnaður ríkir. Velkomin í okkar hóp!EFLIR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Innritun hafin á síðustu TT-námskeið fyrir jól í síma 581 3730 telpurS onuK r Staðurinn - Ræktin TT tímar í boði: 6:15 A mánu-, miðviku- og föstudagar 7:20 C mánu-, miðviku- og föstudagar 10:15 D mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun 12:05 F mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun 14:20 G mánu-, miðviku- og föstudagar 16:40 H mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun 17:40 I mánu- og þriðjud, fimmtud 18:25 Barnapössun 18:40 J mánud, - miðvikud 19:25 og lau 8:30 18:25 TT3 Mánu- og miðvikud - (16-25 ára) NÁMSKEIÐUM FYLGIR FRJÁLS MÆTING Í TÆKJASAL Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 14. nóvember kl. 17:00 Námskeið hefjast 14. nóvember Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.