Fréttablaðið - 02.11.2010, Síða 42
2. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
GUNNAR KRISTJÁNSSON mun líklega ganga endanlega í raðir FH-inga á næstunni
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Gunnar var lánaður til félagsins frá KR í sumar. FH-ingar
vilja halda Gunnari og KR-ingar vilja einnig hafa hann áfram í sínum herbúðum. Gunnar sér aftur
á móti fram á að fá að spila meira með FH og því vill hann fara þangað.
Leikir kvöldsins
A-riðill:
Tottenham - Inter Sport + HD
Werder Bremen - Twente
B-riðill:
Benfica - Lyon
Hapoel Tel-Aviv - Schalke
C-riðill:
Valencia - Rangers
Bursaspor - Man. United Sport 3
D-riðill:
Rubin Kazan - Panathinaikos
FC Kaupmannahöfn - Barcelona Sport 4
HANDBOLTI Strákarnir okkar voru
ekki nema skugginn af sjálfum
sér í landsleikjunum gegn Lett-
landi og Austurríki. Ef rýnt er í
tölfræðina sést að Ísland er undir
á flestum lykilsviðum leiksins.
Markvarslan var sérstaklega
döpur enda munar heilum 18
vörðum boltum á markvörðum
íslenska liðsins og markvörðum
andstæðinganna.
Skyttur Íslands áttu heldur
ekki góða leiki og þar erum við
hreinlega skotnir í kaf. Tólf mörk
utan af velli er augljóslega ekki
nógu gott í tveimur leikjum.
Vörnin hefur einnig séð betri
daga og eitt sterkasta vopn lands-
liðsins, hraðaupphlaupin, var vart
til staðar að þessu sinni. Svo náði
liðið ekki að nýta sér liðsmuninn
vel þegar andstæðingarnir voru
með menn í kælingu. - hbg, óój
Íslenska handboltalandsliðið:
Allt í mínus
OFMAT? Guðmundur þjálfari talaði
um að leikmenn hefðu ofmetnast eftir
góðan árangur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tölfræði landsliðsins
Leikirnir gegn Lettum og Austurríki:
Mörkin: -3 (51-54)
Varin skot: -18 (26-44)
Mörk úr langskotum: -13 (12-25)
Mörk úr hraðaupphlaupum: -1 (8-9)
Mörk af línu: +2 (8-6)
Mörk úr hornum: +6 (10-4)
Víti fengin: +12 (15-3)
Brottvísanir: -10 mín (20-30)
FÓTBOLTI Eftirsóttasti leikmaður-
inn á íslenska leikmannamark-
aðnum þessa dagana er Keflvík-
ingurinn Hólmar Örn Rúnarsson.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins koma þrjú félög til
greina hjá Hólmari – KR, FH og
Keflavík. Miðjumaðurinn lunkni
er með lausan samning hjá Kefla-
vík, sem vill halda leikmannin-
um en samkeppnin frá FH og KR
er hörð.
Sjálfur hefur Hólmar hug á
því að komast að erlendis og ef
hann semur við íslenskt félag á
næstu dögum, eins og hann stefn-
ir að, mun hann vera með klásúlu
í samningnuum sem heimilar
honum að fara frá félaginu komi
freistandi tilboð að utan.
Hólmar sagði við Fréttablaðið í
gær að hans mál myndu líklegast
skýrast í þessari viku. - hbg
Leikmannamál:
Hólmar enn
undir feldi
HVERT FER HANN? Bestu lið landsins
vilja fá Hólmar í sínar raðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Sölvi Geir Ottesen og
félagar í FC Kaupmannahöfn taka
á móti stórliði Barcelona í D-riðli
Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Þetta verður ekki auðvelt fyrir
dönsku meistarana enda sóknar-
lína Barcelona ógnarsterk, með
Argentínumanninn Lionel Messi
fremstan í flokki. Hann lék Dan-
ina grátt þegar liðin mættust á
Nou Camp fyrir tveimur vikum og
skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri.
FCK hefur átt frábæru gengi
að fagna á tímabilinu. Liðið er
enn ósigrað í dönsku úrvalsdeild-
inni eftir fjórtán umferðir og
vann fyrstu tvo leiki sína í Meist-
aradeildinni. Liðið tapaði að vísu
óvænt fyrir Horsens í bikarkeppn-
inni á dögunum en þjálfari liðsins,
Ståle Solbakken, ætlar sér stóra
hluti í kvöld.
„Þetta eru liðin í fyrsta og öðru
sæti riðilsins sem eru að mætast
og þannig verður það einnig eftir
kvöldið,“ sagði Solbakken en Bar-
celona (7 stig) og FCK (6 stig) eru
langefst í riðlinum. „Það er gott
fyrir okkur. Það þýðir að við getum
leyft okkur að taka áhættu og ef til
vill ná aftur efsta sæti riðilsins.“
Solbakken ætlar að treysta á
að heimavallarvígi FCK á Parken
haldi í kvöld. „Við höfum aldrei
tapað leik í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar á Parken og vonandi
verður það áfram þannig eftir
þennan leik. Ef við vinnum verð-
ur það líka okkar stærsti sigur frá
upphafi.“
Sölvi Geir á ríkan þátt í
velgengni FCK en hann
skoraði markið sem
tryggði liðinu sæti í
riðlakeppninni. Hann
varð hins vegar fyrir
því óláni að hand-
leggsbrotna í leik gegn
Bröndby í september
síðastliðnum. Hann er
byrjaður að spila á ný en
óvíst er hvort hann verði
í byrjunarliðinu í kvöld.
Sölvi hefur komið inn á
sem varamaður í síðustu
tveimur deildarleikjum
en spilaði reyndar allan
bikarleikinn gegn Hor-
sens.
Sölvi átti góða inn-
komu gegn Lyngby um
helgina. FCK var undir, 2-1, þegar
Sölvi kom inn á en liðið sneri leikn-
um sér í hag á síðustu fimm mínút-
um leiksins og skoraði Sölvi sigur-
markið í 3-2 sigri.
Börsungar munu þó gefa allt sitt
í leikinn enda mun sigur tryggja
liðinu sæti í 16 liða úrslitum
keppninnar. Þeir eru í góðu
formi eftir 5-0 sigur á Sevilla
um helgina.
Inter og Lyon eiga einnig
möguleika á að tryggja sér
sæti í 16 liða úrslitunum
með sigri í sínum leikj-
um í kvöld.
Bæði lið eiga erfiða
útileiki fyrir höndum í
kvöld. Lyon mætir Ben-
fica á útivelli og Inter fer
á White Hart Lane og etur
kappi við Tottenham. Allt
útlit var fyrir að Hollendingurinn
Rafael van der Vaart yrði ekki með
Tottenham í kvöld en betur fór en
á horfðist.
Hann gat æft með liðinu í gær
og Harry Redknapp knattspyrnu-
stjóri sagði hann eiga möguleika á
að spila í kvöld.
Manchester United er efst í C-
riðli með sjö stig og fer langt með
að tryggja sig áfram með sigri á
Bursaspor í Tyrklandi í kvöld.
eirikur@frettabladid.is
Yrði okkar stærsti sigur frá
upphafi að vinna Barcelona
Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Sölvi Geir Ottesen verður
vonandi í eldlínunni með FC Kaupmannahöfn er liðið tekur á móti stórliði Barce-
lona á heimavelli. Þrjú lið eiga möguleika á að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum.
ÖNNUR ÞRENNA Í KVÖLD? Gar-
eth Bale, leikmaður Tottenham,
skoraði þrennu gegn Internazi-
onale síðast en það dugði ekki
til. Liðin mætast aftur í kvöld.
NORDIC PHOTOS/AFP
STÓRHÆTTULEGUR Danir þurfa að hafa gætur á Lionel Messi, sem er af mörgum
talinn besti leikmaður heims. Hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Börsunga á FCK í
síðustu umferð. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, hefur svarað
ummælum Danny Murphy, leik-
manns Fulham.
Murphy sagði að leikmenn
væru stundum of grófir og að
sökin lægi að hluta til hjá knatt-
spyrnustjórum liðanna.
Margir knattspyrnustjórar
brugðust illa við þessum
um mælum og nú hefur Sir Alex
bæst í þann hóp. „Leikmenn í
dag eru eins og smábörn. Þegar
ég var að spila þurfti að höggva
einhvern með handöxi til að fá
áminningu,“ sagði Ferguson. - esá
Sir Alex Ferguson:
Leikmenn eins
og smábörn FÓTBOLTI Jack Wilshere hefur skrifað undir nýjan langtíma-
samning við Arsenal en þessi
stórefnilegi leikmaður er aðeins
átján ára gamall.
Wilshere hefur verið í herbúð-
um Arsenal síðan hann var níu
ára gamall og lék sinn fyrsta leik
með aðalliði félagsins þegar hann
var aðeins sextán ára gamall.
Hann var í láni hjá Bolton stór-
an hluta síðasta tímabils en hefur
fest sig í sessi í byrjunarliði Ars-
enal í haust.
„Það skiptir mig öllu máli að
mér var boðinn nýr samningur
við Arsenal,“ sagði hann á heima-
síðu félagsins. - esá
Jack Wilshere:
Framlengdi við
Arsenal
fylgir Fréttablaðinu einu sinni í mánuði
Næsta blað kemur út á morgun. … allt sem þú þarft
Michael Porter
– heimsþekktur fyrirlesari beinir sjónum að íslensku efnahagslífi og jarðvarma.
Skattar hins opinbera á fyrirtæki
– mislukkuð álagning?