Sameiningin - 01.09.1952, Side 16
62
Sameiningin
' erið um 200 ker, en að komið hafi verið í hellinn á yíir-
ráðatíma Rómverja í landinu.
Nú vaknar sú spurning, hvernig á standi þessum hand-
ritum á þessum stað, því þarna fundust auk Jesajahandrita
tveggja og brots úr Jeremía einnig trúarrit annars eðlis,
reglurit sértrúarflokks, rit um „Stríðið milli ljóssins og
myrkursins barna“ og ýmislegt annað.
Fullvíst er talið, að einn af hinum mörgu trúarflokkum
meðal Gyðinga á öldunum í knng um Krists burð hafi átt
þessa stranga, og að þeir hafi verið hluti af helgiritasafni
trúarílokks þessa. Biblía trúarflokksins hefir því verið Jesaja
og vafalaust önnur spámannarit og svo sérstök nt, sem
upp hafa verið runnin með flokknum sjálfum. Nú er það
vitað, að á fyrstu öldinni f. Kr. geysuðu miklar ofsóknir
á hendur rétttrúaðra Gyðinga, sem ekki vildu þýðast yfir-
ráð framandi þjóða. Er mjög trúlegt, að flokkurinn hafi
flúið slíkar ofsóknir og falið helgiritasafn sitt til þess að
bjarga því frá glötun. Síðan hefir annað hvort staðurinn
gleymst eða flokkurinn aldrei komist á fvrri slóðir aftur.
Ég hefi áður minnst á það, hversu fundurinn í heliin-
um er þýðingarmikill fyrir textasögu Gamla testamentisins
og fyrir það, hversu hann staðfestir Massóretatextann. En
gildi hans er ekki síðra fyrir sögu tímabilsins fyrir fæðingu
Krists og upphaf krxstninnar.
Enda þótt kristin trú sé í raun og veru uppreisn gegn
gyðingdómnum eins og hann var á dögum Jesú, þá er hún
samt runnin af sömu rót. Eins og Gamla testamentið er ó-
missandi undanfari hins Nýja og Nýja testamentið verður
ekki skilið án hins Gamla, þannig verður einnig að skoða
upphafssögu kristninnar í ljósi þeirra trúarhreyfinga, sem
uppi voru með Gyðingum öldina fyrir Krists burð og á hinni
fyrstu kristnu öld. Kristm trú byggir á grundvallaratriðum
trúar Gyðinga eins og hún var hreinust í upphafi, enda
þótt hún sé andóf gegn lögmálsstefnunni, sem seinni alda
Gyðingdómur fæddi af sér. Einn þessara grundvallarþátta,
sem sprottnir eru með Gyðingum og verða að uppistöðu-
þráðum kristinnar trúar er kenningin um Messías. Kristur
ieit á sjálfan sig sem Messías. Hann kenndi að Messíasar-
vonir Gyðinga hefðu rætzt í honum. Enn fremur taldi hann
sig vera Mannssoninn, sem með Gyðingum var enn hærra
heiti en Messías. Ennfremur heíir Jesús án efa skoðað líf