Sameiningin - 01.09.1952, Qupperneq 18
64
Sameiningin
Hátíðisdagur í Argyle
Það var dýrðlegt veður, sunnudaginn 13. júlí s.l., sól-
skin og svalviðri; þann dag var hátíðisdagur í Argyle. Guð
og náttúran og fólkið tjaldaði því bezta sem til var. Það
var sameiginleg guðsþjónusta í kirkju Frelsissafnaðar, hófuð-
kirkiu byggðarinnar og prestakallsins, og við þá athöfn
var hinn nýkjörni prestur safnaðanna séra Jóhann Fred-
riksson hátíðlega settur inn í embættið af séra Valdimar J.
Eylands forseta kirkjufélagsins. Séra Valdimar prédikaði,
söngflokkurinn söng hátíðlega, og Mrs. Ester Ingjaldsson
söng einsöng (Solo). Séra Jóhann flutti stutta ræðu á eftir.
Þá var hlé um stund þar til skemtiskrá hófst, þar sem séra
Jóhanni og fólki hans var opinberlega fagnað. Söngflokkur-
inn söng nokkur lög og forsetar safnaðanna buðu séra
Jóhann og fólk hans velkomið, H. S. Johnson (Fríkirkju),
Tryggvi Johnson (Immanuel, Baldur), F. Frederickson
(Glenboro) og B. S. Johnson (Frelsis), hann stjórnaði einnig
skemtiskránni með sínum vanalega skörungsskap. G. J.
Oleson talaði fyrir hönd alls prestakallsins, er ávarp hans
birt hér á eftir.
.Ræður fluttu prestarnir þrír, sem viðstaddir voru: Séra
V. J. Eylands, séra J. Fredriksson og séra Ross Stewart frá
Glenboro, flutti hann einnig kveðju frá presti United kirkj-
unnar á Baldur, Mr. Johnson, sem ekki gat verið við-
staddur.
Kaffi og beztu veitingar var öllum gefið að lokum í
Argyle Hall. Stóðu konur byggðarinnar fyrir því með sínum
alvana skörungsskap. Um 200 manns voru þarna samankomn-
ir, og var það fríður hópur. Minnti það nokkuð á gamla tíð,
þegar öll byggð ísl. í Argyle sótti þessa höfuðkirkju bæði
fyrir guðsþjónustur og aðrar samkomur, var þar oft fjöl-
menni og frítt föruneyti.
Argyle fagnar séra Jóhanni og býður hann velkominn
og vonar að starf hans verði honum og byggðinni til marg-
faldrar blessunar í bráð og lengd.
☆ ☆ ☆
Ég er mjög glaður að geta verið hér í dag og taka þátt
í þessari athöfn, sem í alla staði er svo hátíðleg. Það er