Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1959, Side 22

Sameiningin - 01.12.1959, Side 22
20 Sameiningin að gera þetta mál hlægilegt, og þeim til skemmtunar, sem viðstaddir voru, taka þeir sem dæmi konu eina, sem hafði verið gift sjö sinnum og lifað alla menn sína, og spyrja svo: Hvers kona verður hún í upprisunni? Kristur svaraði spurn- ingu þeirra, sem sennilega var gripin úr lausu lofti, á þá leið, að hún bæri vott um þekkingarskort þeirra í tveimur grundvallaratriðum þessa máls; þeir þekktu hvorki kenn- ing ritninganna um þessi efni, og ekki heldur ástand framlið- inna. Lífið fyrir handa gröf og dauða verður ekki háð efnis- heiminum á sama hátt og áður. Mannlegar þarfir og þrár verða á öðrum og hærri sviðum en menn gera sér í hugar- lund. Sjálfur þekkir hann kærleika föðurins til barna sinna; í húsi föðurins eru mörg híbýli; líf manna slokknar ekki í dauðanum. Kristur kennir mjög ákveðið, í öllum guðspjöllunum, að allir menn rísi upp á hinzta degi, bæði vondir og góðir, í upprisunni hljóta þeir sem ofsóttir hafa verið hans vegna, makleg laun, en hins vegar munu óguðlegir mæta til dóms. En verðum vér þá að bíða upprisunnar á efsta degi, til þess að njóta sæluvistar í nærveru Guðs? Svar við þeirri spurningu fáum vér að nokkru dregið af samræðu Krists við iðrandi ræningjann á krossinum. í angist sinni fór hann aðeins fram á það, að Kristur minntist sín, er hann kæmi í ríki sitt. En honum veittist meira en hann bað um. Sælu- vist hans, hans annars heims, mundi ekki slegið á langan frest, hann skyldi ekki þurfa að bíða hinnar almennu upp- risu, — þá samdægurs mun honum veitt innganga í Paradís. Svipuð ummæli eru höfð eftir Kristi í Lúkasi 19:9, og aftur í Jóh. 14, þar sem hann talar um að taka á móti vinum sínum í bústöðum eilífðarinnar. Það er eftirtektarvert, að Nýja testamentið talar oft um farsæld framliðinna, án þess að upprisuhugmyndin komi þar til greina, og einnig er talað um vanlíðan þeirra, sem í þessu lífi hafa virt Guðs vegu og vilja að vettugi. Tvö dæmi nægja. Fyrst er frásagan samkvæmt Lúk. 16 um ríka sæl- kerann og Lazarus. Á þrautatíð sinni hefði Job vafalaust fundið hugfró í þeirri frásögn, og margur Job á vorri tíð mætti taka þetta efni til athugunar. Sagan er oss öllum svo kunn, að óþarft er að endursegja hana hér. Hinn augljósi lærdómur er þetta: dauðinn er ekki langur svefn, eða með- vitundarleysis-ástand fram á upprisudag og heimsenda. Hins

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.